Frístundaklúbbur fyrir grunnskólanemendur
Þann 1.september s.l. hófst ný starfsemi í Árborg en þá opnaði Frístundaklúbbur fyrir grunnskólanemendur með fötlun sem eru í 5.-10.bekk. Frístundaklúbburinn er opinn alla virka daga frá því skóla lýkur og þar til kl. 17.
Megin markmið með Frístundaklúbbnum er að efla og styrkja félagsleg tengsl þátttakenda.
Lögð er áhersla á hópefli og samskipti. Unnið er út frá áhugasviði þátttakenda.
Klúbburinn skiptist í tvo hópa en það eru 5.-7. bekkingar, með aðstöðu í Vallaskóla og 8.-10. bekkingar, með aðstöðu í Félagsmiðstöðinni Zelsíus.
Andri Már Númason forstöðumaður svarar fyrirspurnum og tekur við skráningum í klúbbinn í síma: 480-5858. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið: andrimar@arborg.is Símanúmer Frístundaklúbbsins er 480-5858








