Lög og reglugerðir

Forsíða » Þjónusta » Málefni fatlaðra » Lög og reglugerðir

Lög um málefni fatlaðra, nr. 59/1992, eru sérlög sem taka til velferðarþjónustu við fatlaða sem ekki er tryggð samkvæmt öðrum lögum. Fötluðum skal ætíð veitt þjónusta samkvæmt almennum lögum áður en þjónusta samkvæmt sérlögunum kemur til greina. Með almennum lögum er t.d. átt við lög um heilbrigðisþjónustu, lög á sviði skólamála, atvinnumála og lög um almannatryggingar.

Settar hafa verið eftirfarandi reglugerðir samkvæmt lögum um málefni fatlaðra:

Reglugerð um svæðisskrifstofur málefna fatlaðra, nr. 273/1993.
Reglugerð um stjórnarnefnd málefna fatlaðra og Framkvæmdasjóð fatlaðra, nr. 204/1994.
Reglugerð um styrki vegna námskostnaðar og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðra, nr. 550/1994.
Reglugerð um þjónustu við fötluð börn og fjölskyldur þeirra, nr. 155/1995.
Reglugerð nr. 308/2000 um breytingu á reglugerð , nr. 155/1995, um þjónustu við fötluð börn og fjölskyldur fatlaðra.
Reglugerð um atvinnumál fatlaðra, nr. 376/1996.
Reglugerð um svæðisráð málefna fatlaðra, nr. 606/1998 (áður reglugerð nr. 142/1993)
Reglugerð um búsetu fatlaðra, nr. 296/2002, sbr. reglugerð. nr. 685/2002 og nr. 856/2002 (gildistaka 1. janúar 2003)