Suðri

Íþróttafélagið Suðri
Suðri,  íþróttafélag fatlaðra á Suðurlandi, var stofnað árið 1986. Það  er eitt af mörgum aðildarfélögum Íþróttasambands fatlaðra (ÍF) sem er eitt af sérsamböndum Íþróttasambands Íslands (ÍSÍ).

Hlutverk félagsins er að bjóða upp á íþróttir fyrir fatlaða. Þar er lögð áhersla á að efla líkamlega-og félagslega færni og að byggja upp jákvæða sjálfsmynd í gegnum leik og keppni við jafningja. 

Undanfarin ár hafa verið æfðar 5 íþróttagreinar hjá félaginu. Þær eru boccia, sund, frjálsar íþróttir, knattspyrna og golf. 

Haustið 2011
Æfingartímar
 
Boccia í Iðu 
Þriðjudaga    kl. 17:00 – 18:30
fimmtudaga   kl. 16:00 – 17:00
Unnur og Örvar ásamt Svanhildi þjálfa boccia

Sund
Þriðjudaga    kl. 18:30-19:30
miðvikudaga. kl. 16:30-17:15
Sigurlín þjálfar sundið.

Suðrafélagar taka þátt í öllum stærstu mótum sem fram fara í þeim greinum sem æfðar eru. Það er frjálst val að keppa en flestir gera það og hafa margir eignast góða vini sem hittast reglulega á íþróttamótum. Félagslegi þátturinn er gríðarlega mikilvægur og það er eftirtektarvert hversu margir hafa náð að blómstra félagslega í gegnum íþróttastarfið.

Suðrafélagar taka vel á móti nýliðum og hvetja alla sem áhuga hafa  til að kynna sér starfið.

Upplýsingar gefa formaður félagsins og aðrir stjórnarmeðlimir

Stjórn Suðra

Formaður: Þorbjörg Vilhjálmsdóttir s. 866-1819, netfang: obba@ismennt.is
Gjaldkeri : G. Linda Björgvinsdóttir s.898-9592, netfang: lindab@btnet.is
Ritari: Þórdís Bjarnadóttir, netfang: gauksrimi10@simnet.is

Meðstjórnendur:
María Sigurjónsdóttir