Viss, vinnu- og hæfingarstöð
Viss, vinnu- og hæfingastöð – Gagnheiði 39 – 800 Selfoss,
s: 480-6920 / 480-6927 – viss(hjá)arborg.is / ragnhildur(hjá)arborg.is
Viss, vinnu- og hæfingastöð – Unubakki 4 – 815 Þorlákshöfn,
S: 483-3843 GSM: 864-5808 – viss(hjá)olfus.is / ragnhildur(hjá)arborg.is
Á Viss, vinnu- og hæfingarstöð eru rúmlega 40 einstaklingar með mismunandi fötlun. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu HLUTVERKS – SAMTAKA UM VINNU OG VERKÞJÁLFUN
Starfsemi Viss hófst árið 1982, en árið 1990 flutti starfsemin í núverandi húsnæði, að Gagnheiði 39, Sefossi. Í lok árs 2004 var tekin í notkun ný og glæsileg 290 fermetra viðbygging. Á haustmánuðum 2004 var opnað útibú frá Viss að Unubakka 4 í Þorlákshöfn. Þar er rekin dagþjónusta og nýta 8 einstaklingar sér þjónustuna.
Á Viss er lögð áhersla á að skapa atvinnutækifæri fyrir þá sem búa við fötlun og veita starfsþjálfun og hæfingu með það að markmiði að efla starfsfærni viðkomandi. Á það við hvort sem einstaklingur stefnir á almennan vinnumarkað seinna meir eða áframhaldandi starf á Viss.
Yfirmarkmið Viss er að veita starfsmönnum fjölþætt tilboð með það að leiðarljósi að efla starfshæfni og starfsmöguleika hvers og eins.
Starfsemi Viss skiptist í:
· Dagþjónusta - fjölbreytt þjálfunar- og örvunartilboð
· Iðja - léttari verkefni og ýmis vinnuverkefni
· Vinnusalur - verkefni fyrir fyrirtæki og vinna við ýmsar framleiðsluvörur sem seldar eru í gallerý Viss.
· Starfsþjálfun í öðrum fyrirtækjum – starfsmenn Viss fara í önnur fyrirtæki og vinna störf þar.
· Atvinna með stuðningi – miðar að því að finna verkefni og störf á almennum vinnumarkaði fyrir þá sem það vilja.
Viss, vinnu- og hæfingarstöð er aðili að Hlutverk – samtökum um vinnu og verkþjálfun: www.hlutverk.is
Stöðin er opin alla virka daga vikunnar frá kl. 8.30 – 16.00








