Snjóhreinsun, fyrir eldri borgara

Snjóhreinsun af þökum, gangstígum og innkeyrslum fyrir eldri borgara á Selfossi

Samkomulag er á milli félags eldri borgara á Selfossi og Björgunarfélags Árborgar um snjóhreinsun af þökum og gangstígum á  Selfossi.  Gjald er 1.000 krónur.  Verkbeiðnum skal vísa í síma 896-6623.  Verkum verður sinnt við fyrsta tækifæri þeirra Björgunarfélagsmanna m.t.t. frítíma þeirra á kvöldin og um helgar.  Neyðaratvik verða tekin sérstaklega og reynt að sinna þeim tafarlaust.
Samkomulag um snjóhreinsun úr innkeyrslum milli félags eldri borgara á Selfossi og Ræktunarsambands Flóa og Skeiða.  Gjald fyrir þessa hreinsun úr innkeyrslum er að jafnaði 2.500 krónur með virðisauka.  Þeir sem vilja njóta þessarar þjónustu skulu hafa samband við Ræktunarsamband Flóa og Skeiða í síma 480-8500.      

Guðlaug Jóna Hilmarsdóttir
Verkefnisstjóri félagslegra úrræða


Prenta þessa síðu