Ævintýranámskeið


Ævintýranámskeiðið er 6 vikna námskeið fyrir krakka á aldrinum 10-13 ára.

Námskeiðinu er skipt upp í vikur, hver vika hefur sitt skemmtilega þema og hver dagur innan vikunnar hefur undirþema. Námskeiðið er frá kl 8:00 – 13:00 alla virka daga.
Í vor var gerð BS ritgerð um Ævintýri í íþróttafræði við Háskóla Íslands, þar sem ítarlega var fjallað um námskeiðið og mikilvægi þess. Námskeiðið er hannað með það að leiðarljósi að efla sjálfsöryggi og samskiptahæfni krakka. Sjálfstyrkingin byggir á leiklist, tónlist, forvörnum, fræðslu, tjáningu, framkomu, hópavinnu o.fl. Leitast er við að veita nemendum yfirsýn yfir fjölbreytta þætti í lífi sínu, ásamt því að aðstoða þau við að finna áhugamál við sitt hæfi. Námskeiðið er einstaklingsmiðað, skemmtilegt og fjölbreytt.

Á hverjum föstudegi fara nemendur í ferðalag og sýna afrakstur vikunnar í sveitafélaginu sínu sem og öðrum sveitarfélögum, þá má nefna: götuleikhús, ævintýrahreysti, hljómsveitarferðalag, heimsálfuferðalag o.fl. Skýrar reglur og góð umgengni eru höfð í fyrirrúmi, og þess má geta að þær reglur sem farið er eftir eru samdar af krökkunum sjálfum. Farið er eftir ítarlegu skipulagi í bland við létt andrúmsloft með það að markmiði að auka öryggi krakkanna.

Við ætlum að skemmta okkur saman í sumar og okkur langar að fá alla krakka með okkur að njóta Ævintýra sumarsins.

Verð:
3 vikur: 20.000 kr.
6 vikur: 30.000. kr.

Rauði kross Íslands, Árnesingadeild, niðurgreiðir námskeiðið fyrir öryrkja og einstæða foreldra.
Nánari upplýsingar og skráning er hjá Halldóru Rut í síma 868 7144 og Söndru Sigurðardóttur í síma 865 4448 eða á sumarskraning@gmail.com

GÖTULEIKHÚS
VIKA 1 (15. júní-19. júní)
Hér búum við til okkar eigið götuleikhús. Síðasta sumar kom Sveppi í heimsókn og fór með Ævintýrum í skemmtilega leiklistarleiki. Samstarfið með honum gekk svo vel að hann mun mæta aftur til leiks núna í sumar til að leika sér með okkur. Við endum vikuna á að kíkja í heimsókn til Götuleikhúss Árborgar.

AÐ VERA Í FÉLAGI
VIKA 2 (22. júní-26. júní)
Í þessari viku skipta Ævintýri sér í hópa og búa til sín eigin félög. Skýra félögin sín, semja reglur þeirra, búa til búninga ásamt fána hvers félags. Í vikulok útbúa félögin ratleiki.  Félögin enda síðan saman vikuna með því að fara á veitingastað og borða gómsætann mat.

EYÐIEYJA ÆVINTÝRA OG LJÓSMYNDUN
VIKA 3 (29.júní-3.júlí)
Hér verða búnir til nýir hópar sem hanna þrautir og leiki í anda “Survivor”.  Þá er miklvægt að skyndihjálpin sé til staðar og hittum við dúkkuna Palla sem við lærum að bjarga frá drukknun.  Ævintýri kenna því undirstöðuatriðin í skyndihjálp. Ásamt þessu fer fram ljósmyndanámskeið. Vikan endar svo á “Survivor” um alla Árborg.

HLJÓMSVEITIN MÍN
VIKA 4 (13. júní-17.júlí)
Ævintýri skiptir sér í hópa og býr til hljómsveitir. Hver og ein hljómsveit semur svo lag. Ingó Idol kom síðasta sumar í heimsókn og varði þremur dögum með Ævintýrum. Hann kenndi okkur ólíka tónlistastíla og stefnur, samdi með okkur lag og svo enduðu Ævintýri vikuna á því að fara í hljóðver hjá Labba í Glóru og taka upp lagið með Ingó. Ingó mætir eldhress aftur í sumar og eyðir með okkur nokkrum dögum í þessari viku.

HEIMSÁLFUR
VIKA 5 (20.júlí-24. júlí)
Við búum til ólíka menningarheima. Ævintýri hittir erlenda krakka og þau ræða um muninn á Íslandi og þeirra heimalöndum. Ævintýri ferðast um Árborg og  fara í fjöruna á Stokkseyri og fleira skemmtilegt. Við endum svo vikuna í Sambíóunum á skemmtilegri bíómynd.

GALDRAR OG ÞJÓÐSÖGUR
VIKA 6 (27. júlí-30.júlí)
Við fræðumst um galdra og þjóðsögur. Búum til okkar eigin galdra, heimsækjum Draugasetrið ásamt fleiru skemmtilegu. Við endum þessa viku á risa útilegu með
foreldrum. Grillum pylsur og förum í skemmtilega leiki. Hara systur mæta hressar og kátar, spila og syngja skemmtileg lög og kenna okkur dansa. Eftir að foreldrar fara heim kveikjum við brennu, segjum sögur, rifjum upp okkar frábæra Ævintýrasumar og grillum sykurpúða. Þegar allir vakna daginn eftir fá allir krakkarnir viðurkenningu fyrir það sem þau hafa áorkað á námskeiðinu.   

      

   



Prenta þessa síðu