Bæjar- og menningarhátíðir í Árborg

Forsíða » Upplýsingar » Bæjar- og menningarhátíðir í Árborg


        
                   Viðburða- og menningardagskrá
                       í Sveitarfélaginu Árborg 2012
 - PDF skjal

Drög 27.feb.

MARS
3.mars– Íslandsmótið í skák haldið á Selfossi.
Íslandsmót skákfélaga á Íslandi haldið í aðalsal Fjölbrautaskóla Suðurlands.
17.mars – Sunnlenskt barnakóramót
Sunnlenskir barnakórar syngja saman í Selfosskirkju. Opnir tónleikar kl. 16:00.
29. mars – 1.apríl – Drepstokkur – menningarhátíð ungs fólks á Suðurlandi
verður haldin í ungmennahúsi Árborgar, Pakkhúsinu, á Selfossi. Ungir listamenn sýna og koma fram. Í boði verða tískusýningar og tónleikar auk útvarpssendinga yfir helgina. Nánar á www.pakkhusid.is

APRÍL
2. – 9. apríl – Lesið í lauginni
Yfir páskahátíðina vinna bókasöfnin og sundlaugarnar saman að verkefninu ,,Lesið í lauginni”  eða  ,, Ljóð í lauginni”.  Það er Bókasafn Árborgar á Selfossi og Sundhöll Selfoss og Bókasafn Árborgar á Stokkseyri og Sundlaug Stokkseyrar sem bjóða sundlaugargestum upp á ljóð og lesmál. Upplýsingar á www.arborg.is og www.stokkseyri.is.

MAÍ
1.maí Verkalýðsdagurinn
Fjölbreytt fjölskyldudagskrá að Austurvegi 56. Dagskráin hefst kl.11:00.
5. maí  Sunnlenski sveitadagurinn
Jötunn vélar á Selfossi halda Sunnlenska sveitadaginn í fjórða sinn. Kynning á búvélum og matarframleiðslu í sveitum. Hægt að kynnast dýrunum í sveitinni og sjá fjölda skemmtilegra viðburða sem henta allri fjölskyldunni. Nánari upplýsingar á www.jötunn.is.
5. maí Dagur tónlistarinnar
Barnakórar í umsjón Edit Molnár með dagskrá í Selfosskirkju.
17. – 20. maí – Vor í Árborg
Vor í Árborg er menningarhátíð sem haldin er af Sveitarfélaginu Árborg. Fjöldi viðburða verða í gangi alla helgina ásamt fjölskylduleiknum „Gaman saman sem fjölskylda”. Nánari upplýsingar um dagskrá og viðburði er að finna á www.arborg.is en dagskrá verður einnig borin í hús.

JÚNÍ
3. júní – Sjómannadagurinn
Sjómannadagurinn haldinn hátíðlegur á Eyrarbakka og Stokkseyri. Fjölmargir skemmtilegir viðburðir verða á dagskrá. Nánari upplýsingar eru á www.arborg.is, www.stokkseyri.is og á www.eyrarbakki.is.
8. – 10. Júní – Kótelettan 2012
Bæjar-, fjölskyldu- og tónlistarhátíð sem haldinn er af EB kerfum. Barnadagskrá, tónleikar og kynning frá sunnlenskum framleiðslufyrirtækjum. Nánari upplýsingar á www.kotelettan.is.
9. júní – Hálandaleikar á Selfossi
Hálandaleikar haldnir í miðbæjargarðinum á Selfossi laugardaginn 9.júní. Aflraunamenn frá fjölmörgum löndum etja kappi í ekta skoskum hálandaleikum. Einstök skosk stemmning. Nánar á www.arborg.is.  
17. júní í Árborg 2012
17. júní haldin hátíðlegur í Árborg. Skipulagðar skemmtanir eru á Selfossi og á Eyrarbakka. Nánari upplýsingar á www.arborg.is, www.stokkseyri.is og www.eyrarbakki.is.
23. júní – Jónsmessuhátíðin á Eyrarbakka
Jónsmessuhátíðin er haldin á Eyrarbakka í kringum Jónsmessuna ár hvert. Fjölbreytt dagskrá í gangi, varðeldur, söngur og fl. Nánari upplýsingar á www.arborg.is og www.eyrarbakki.is.   
22. – 24. júní – Landsmót fornbílaklúbbs Íslands
Landsmót Fornbílaklúbbs Íslands verður nú haldið í níunda sinn á Gesthúsasvæðinu, Selfossi. Bílasýning á laugardeginum 23. júní (ókeypis inn á svæðið), bílaleikir og fl. á sunnudeginum. Allir velkomnir að mæta með sína eldri bíla/tæki og taka þátt í skemmtilegu móti. Nánar á www.fornbill.is.
29. júní – 1.júlí – Sumarmót hvítasunnumanna 2012
Glæsileg kristileg fjölskyldudagskrá fyrir alla aldurshópa. Hátíðin er haldin á Selfossi við hvítasunnukirkjuna.

JÚLÍ
8. júlí – Safnadagurinn
Íslenski safnadagurinn haldinn hátíðlegur í sveitarfélaginu. Nánari dagskrá á www.arborg.is 
20. – 22. júlí – Bryggjuhátíðin á Stokkseyri
Bryggjuhátíðin “brú til brottfluttra” er haldin á Stokkseyri. Varðeldur og bryggjusöngur ásamt fjölbreyttri fjölskyldudagskrá.  Nánari upplýsingar um hátíðina eru á www.arborg.is og www.stokkseyri.is

ÁGÚST
3. – 6. ágúst – Fjölskyldudagar á Stokkseyri
Færeyskir fjölskyldudagar verða haldnir á Stokkseyri um verslunarmannahelgina. Fjölmargir listamenn munu skemmta svo öll fjölskyldan ætti að finna eitthvað við sitt hæfi. Nánari upplýsingar eru á www.stokkseyri.is, www.stokkseyri.org og www.arborg.is
3. – 5. ágúst – Unglingalandsmót UMFÍ á Selfossi
15. Unglingalandsmót UMFÍ verðu haldið á Selfossi um verslunarmannahelgina. Fjölbreytt afþreyingardagskrá fyrir alla fjölskylduna samhliða skemmtilegri keppni.
10. – 12. ágúst – Meistaradeild Olís á Selfossi
Knattspyrnudeild Selfoss heldur knattspyrnumótið Meistaradeild Olís í áttunda skipti í sumar á nýju glæsilegu vallarsvæði. Mótið fer fram á Selfossi og er ætlað fyrir stráka í 5. flokki. www.olismot.is.
11. ágúst – Sumar á Selfossi og Delludagur
Sumar á Selfossi er rótgróinn bæjar- og fjölskylduhátíð. Morgunverður, varðeldur og sléttusöngur ásamt fjölda viðburða og skemmtilegra leikja. Bærinn skreyttur hátt og lágt en hverfunum á Selfossi er skipt eftir litum. Bifreiðaklúbbur Suðurlands verður í samstarfi við Sumar á Selfossi þessa helgi og stendur fyrir skemmtilegum Delludegi. Allar upplýsingar um dagskrá hátíðanna verða á www.arborg.is.
18. – 19. ágúst – Aldamótahátíð á Eyrarbakka
Hestar, kindur, geitur og hænur, menn, konur og börn bjóða ykkur velkomin á hina árlegu þorpshátíð sem haldin verður á Eyrarbakka.  Íbúar og gestir klæða sig upp á í anda aldamótanna 1900. Allar nánari upplýsingar um hátíðina verða á www.arborg.is og á www.eyrarbakki.is.

SEPTEMBER
1. september – Brúarhlaupið á Selfossi
Brúarhlaupið verður haldið laugardaginn 1. september. Frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss heldur hlaupið og er hægt að nálgast allar frekari upplýsingar á www.umfs.is og www.hlaup.is.

OKTÓBER
Menningarmánuðurinn október haldinn hátíðlegur í Árborg
Fjölbreyttir menningarviðburðir haldnir allan mánuðinn. Nánari upplýsingar verða á www.arborg.is

NÓVEMBER
2. – 4. nóvember – Safnahelgi á Suðurlandi
Fjölbreyttir menningarviðburðir í gangi um allt Suðurland, www.sunnanmenning.is.
22. nóvember – Jólaljósin kveikt í Árborg
Yngsta afmælisbarn dagsins í Árborg kveikir á jólaljósunum fyrir framan Bókasafn Árborgar á Selfossi. Skátafélagið Fossbúar býður upp á heitt kakó.

DESEMBER