Bryggjuhátíðin Stokkseyri

Bryggjuhátíðin er árleg bæjar- og fjölskylduhátíð á Stokkseyri. Næg tjaldsvæði og glæsileg dagskrá. Fjöldi félaga og fyrirtækja styrkja hátíðina hvert ár.

Jól í Árborg

Jólahátíðin í Sveitarfélaginu Árborg er sannarlega skemmtileg með fjölbreyttum viðburðum fyrir alla fjölskylduna. 

Jónsmessuhátíð Eyrarbakka

Árviss viðburður á Eyrarbakka. Jónsmessuhátíðin er styrkt af Sveitarfélaginu Árborg, Björgunarsveitinni Björg, Ungmennafélagi Eyrarbakka, Slysavarnadeildinni Björg á Eyrarbakka ásamt verslunum og veitingarstöðum á Eyrarbakka.

Menningarmánuðurinn október

Menningarmánuðurinn október er haldinn hátíðlegur Sveitarfélaginu Árborg ár hvert. Fjölbreyttir viðburðir fyrir alla aldurshópa. Tónleikar, opin hús, sýningar, sögukvöld, menningargöngur, listasmiðjur og margt fleira.

Sumar á Selfossi

Sumar á Selfossi fer fram í ágúst ár hvert, frá fimmtudegi til sunnudags. Laugardagurinn hefst með morgunverðarhlaðborði í stóra tjaldinu í miðbæjargarðinum á Selfossi.

Vor í Árborg

Menningar- og bæjarhátíðin Vor í Árborg er árlegur viðburður þar sem skipulagning og undirbúningur á dagskrá eru að stærsta hluta í höndum íbúa og félagasamtaka í Árborg.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica