Áhugaverðir staðir

Forsíða » Upplýsingar » Fróðleikur um Árborg » Áhugaverðir staðir

12 góðar ástæður til að heimsækja Árborg

1. Stattu á endimörkum Þjórsárhrauns hins mikla,  frá 6700 f.Kr., stærsta
hrauns sem runnið hefur á jörð-inni frá lokum síðustu ísaldar, þar sem
glóandi hraunið var stöðvað af köldum öldum Norður-Atlantshafsins.

                                                                                       

Sjá upplýsingaskilti um
endamörk Þjórsarhrauns
2. Skoðaðu Drepstokkshól, þar sem bær Bjarna Herjólfssonar stóð, en
hann uppgötvaði Ameríku árið 985, og Skipamel, þaðan sem Bjarni sigldi
líklega í sína sögulegu ferð.
Sjá upplýsingaskilti um Drepstokk

3. Gakktu yfir Ölfusárbrú, yfir vatnsmesta fljót á Ís-landi (meðalrennsli
384 rúmmetrar á sekúndu á árs-grundvelli). Við suðurenda brúarinnar
hjá Tryggvaskála er skilti sem sýnir flóðahæð í þremur mestu flóðum í
Ölfusá á 20. öld.

Sjá uppl. skilti um Ölfusá
Sjá uppl.skilti um Ölfusárbrú
Sjá uppl.skilti um Hraunbolla
4. Heimsæktu Eyrarbakka þar sem er fjöldi gamalla húsa, þar á meðal
Húsið frá 1765  sem hýsir Byggðasafn Árnesinga.

Sjá upplýsingaskilti um Húsið
5. Skoðaðu Sjóminjasafnið á Eyrarbakka  og Þuríðarbúð, eftirmynd
19. aldar verbúðar á Stokkseyri.
 
6. Skoðaðu Fuglafriðlandið í Flóa, norðan Eyrarbakka.  
7. Heimsæktu Rjómabúið á Baugsstöðum  og skoðaðu Knarraróssvita 
austan við Stokkseyri. Hönnun vitans er áhugaverð blanda af fúnkis
og art nouveau stíl.

Sjá upplýsingaskilti um Rjómabúið
Sjá upplýsingaskilti um Knarrarósvita

8. Gakktu í fjörunni hjá Stokkseyri og Eyrarbakka. Upplýsingaskilti eru
á báðum stöðum.
 
9. Heimsæktu Einholtshelli í Hellislandi,  norðan við Selfoss. Eini íbúi
hellisins er draugur með bláan trefil!
Sjá upplýsingaskilti um Stóra helli
10. Spilaðu golf á Golfvelli Selfoss (9 holu/par 72), með glæstri fjallasýn,
þar á meðal til Ingólfsfjalls og eldfjallsins Heklu.
 
11. Slappaðu af í Sundhöll Selfoss  og sundlaug Stokkseyrar. Kobbi kútur
og Fribbi froskur taka vel á móti gestum, einkanlega börnunum.
 
12. Spennandi veitingastaðir, verslanir, þjónusta, hótel og önnur gisting
eru í miklu úrvali í Árborg.
 

Sjá fleiri upplýsingaskilti