Eyrarbakkakirjkja
Eyrarbakkakirkja var vígð í desember 1890, en fram að því áttu Eyrbekkingar kirkjusókn í nágrannaþorpið Stokkseyri. Íbúar voru 702 á Eyrarbakka árið 1890 og var fólksfjölgunin ástæðan fyrir því að Stokkseyrarsókn var skipt í tvennt og ný kirkja reist á Eyrarbakka. Aðalforgöngumaðurinn um kirkjubygginguna var sóknarpresturinn, séra Jón Björnsson, og höguðu örlögin því svo, að hann var fyrsti maðurinn sem kvaddur var frá Eyrarbakkakirkju 1892. Fjögur ár liðu frá vígslu Eyrarbakkakirkju uns hún öðlaðist full réttindi sem sóknar- og graftarkirkja, en nýr kirkjugarður var ekki vígður og tekinn í notkun á Eyrarbakka fyrr en árið 1894. Kirkjan er teiknuð af Jóhanni Fr. Jónssyni, en hann var helsti trésmiður á Eyrarbakka á áratugnum 1880-90, en lést á meðan á byggingu kirkjunnar stóð.
Kirkjan tekur um 230-40 manns í sæti. Á turni hennar var allhá járnstöng með veðurvita, sem hefur verið tekin niður og stað þess settur ljóskross. Vindhani þessi hefur verið kallaður Járnblómið af Guðmundi Daníelssyni, rithöfundi, og bar ein af skáldsögum hans það nafn.
Sögufrægasti gripur kirkjunnar er altaristaflan. Er það mynd af Jesú á tali við Samversku konuna við Jakobsbrunninn (Jóh. 4, 13-14) og stendur undir töflunni: „Hver sem drekkur af því vatni, sem ég mun gefa honum, hann mun aldrei að eilífu þyrsta.” Tilurð hennar á sér sérstaka sögu. Séra Jón Björnsson sigldi m.a. í erindum kirkjubyggingarinnar til Kaupmannahafnar til þess að útvega kirkjuviðinn. Gekk hann þá einnig á fund konungs og drottningar. Hlaut hann þar svo góðar viðtökur, að Louise, drottning Kristjáns konungs IX., gaf kirkjunni altaristöflu, sem hún hafði sjálf málað og er nafn drottningar á töflunni og ártalið 1891. Drottning var listfeng í besta lagi og er kunnugt um altaristöflur eftir hana í þremur kirkjum í Danmörku í kirkjunum í Gentofte, Klitmøller og Lundø.
Af öðrum merkum kirkjugripum má nefna kertastjaka úr Kaldaðarneskirkju, en kirkja þar var lögð niður árið 1902. Á þeim er ártalið 1780 og stafirnir E.S.S. Stjakarnir eru greinilega íslensk smíð og að öllu handunnir. Einnig er úr Kaldaðarneskirkju ljósakróna í kór kirkjunnar. Árið 1918 var sett upp stundaklukka í turn kirkjunnar sem slær á heilum og hálfum tíma. Hún var gjöf frá Jakob A. Lefolii kaupmanni.
Viðamiklar endurbætur og lagfæringar á Eyrarbakkakirkju hófust árið 1977 og var þeim lokið í árslok 1979. Nýtt íslenskt 11 radda pípuorgel var tekið í notkun í kirkjunni á jólum 1995.
Í dag er sóknarprestur á Eyrarbakka sr. Úlfar Guðmundsson.
Texti: © Inga Lára Baldvinsdóttir / Magnús Karel Hannesson
Ljósmyndir: © Arnar Þór Óskarsson








