Vinabæir Eyrarbakka
Vinabæir eru sveitarfélög á Norðurlöndum og stundum víðar, eitt frá hverju landi, sem stofnað hafa til samskipta um ýmis málefni. Markmið þeirra er að miðla reynslu á sem flestum sviðum, styrkja menningartengsl, koma á skiptum milli félaga, skóla og vinnuhópa og stuðla að vináttu einstaklinga í hverju landi og efla þannig þekkingu þjóðanna hverrar á annarri.
Um áramótin 1986-87 hóf Eyrarbakki vinabæjarsamstarf við Kalundborg í Danmörku, Kimito í Finnlandi, Lillesand í Noregi og Nynäshamn í Svíþjóð.
Eyrarbakki hefur tekið þátt í vinabæjaráðstefnum við þessi sveitarfélög annað hvert ár frá árinu 1987.
![]() |
Kalundborg í Danmörku Danmark |
|
![]() |
Kimito í Finnlandi Pb 7 25701 Kimito Suomen Finland |
|
![]() |
Lillesand í Noregi Postboks 23 4791 Lillesand Norge |
|
![]() |
Nynäshamn í Svíþjóð 149 81 Nynäshamn Sverige |












