Sorphirða í Árborg | Uppfært kl. 10:00
Vegna veðurs verður heldur ekki farið af stað í að hirða sorp í dag.
Vikan framundan verður erfið og mun verktaki setja auka kraft í sorphirðu þegar veðrinu slotar. Íbúar beðnir um að sýna þolinmæði og skilning á aðstæðum.
Bent er á mikilvægi þess að hafa greitt aðgengi að ílátum þegar verktaki fer svo af stað þegar veður leyfir, sorp verður ekki hirt sé ekki mokað frá tunnum þannig að verktaki eigi greiða leið að þeim.
Upplýsingum verður komið á netið um sorphirðu þegar þær liggja fyrir.