Fundargerðir

Til baka Prenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 82

Haldinn í gegnum fjarfundarbúnað,
05.01.2022 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Sveinn Pálsson byggingafulltrúi, Leifur Stefánsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Anton Kári Halldórsson skipulagsfulltrúi, Rúnar Guðmundsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Guðmundur Gestur Þórisson f.h. slökkviliðsstjóra.
Fundargerð ritaði: Sveinn Pálsson, byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2112363 - Suðurtröð 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Sigurður Þ. Jakobsson f.h. Sundhesta ehf, sækir um leyfi til byggingar hesthúss.
Stærð 325,0 m2 og 958,8 m3.

Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.
Byggingaráformin samrýmast gildandi skipulagsáætlun og eru samþykkt með fyrirvara um að uppdrættir verði leiðréttir.
Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:
- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu
- Byggingarheimildargjöld hafa verið greidd.
2. 2112126 - Suðurengi 27-35 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Ágúst Hafsteinsson fyrir hönd Elínborgar Telmu Ágústdóttur sækir um leyfi til breytinga á hurðum og gluggum að Suðurengi 33.
Málið var áður á 80. fundi og þá vísað til skipulags- og byggingarnefndar sem ákvað að grenndarkynna áformin fyrir öðrum eigendum Suðurengis 27-35.
Fyrir liggur undirritað samþykki viðkomandi.

Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.
Byggingaráformin hafa verið grenndarkynnt og eru samþykkt.
Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:
- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu
- Byggingarheimildargjöld hafa verið greidd.
3. 21101285 - Vallholt 19 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Davíð Sigurðsson f.h. Oddfellowhússins á Selfossi, sækir um leyfi til að byggja ofan á svalir á annari hæð.
Stærð viðbyggingar 78,9 m2 og 320,0 m3.
Heildarstærð húss verður 1003,4 m2 og nýtingarhlutfall á lóð verður 0,65

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð (viðbygging við þegar byggt hús).
Byggingaráformin hafa verið grenndarkynnt og eru samþykkt.
Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:
- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu
- Byggingarheimildargjöld hafa verið greidd.
4. 2112402 - Sílatjörn 2-8 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Fannar Aron Hafsteinsson sækir um leyfi vegna innri breytinga á Sílatjörn 2 og útlitsbreytingar vegna færslu glugga frá norðurhlið þvottahúss á austurhlið bílskúrs.
Innri breytingar felast í að núverandi þvottahús verður sameinað eldhúsi og þvottaaðstaða verður í bílskúr.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð og breytingin er óveruleg sbr. gr. 2.3.4.
Framkvæmdin hvað varðar ytra útlit er háð byggingarheimild. Umsókn um byggingarheimild skulu fylgja gögn skv. gr. 2.3.7:
- Aðaluppdrættir sem sýna innri og ytri breytingar.
- Samþykki eigenda annarra eigna í raðhúsinu.

Afgreiðslu frestað.
5. 2107116 - Einarshöfn 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Halldór Pétur Þorsteinson sækir um leyfi til að byggja u.þ.b. 50 m2 bílskúr á lóðinni Einarshöfn 2,(II) L166120, á Eyrarbakka.
Byggingarfulltrúi synjar umsókn um byggingarleyfi, þar sem umsóknin samræmist ekki gildandi deiliskipulagi svæðisins. Þá hefa ekki verið lögð fram nægilega ítarleg gögn til að hægt sér að taka afstöðu til umsóknar.

Hafnað



6. 2201028 - Skólavellir 5 - Umsókn um stöðuleyfi
Guðmundur B. Vigfússon sækir um stöðuleyfi fyrir gám, smáhús og þak vegna framkvæmda fyrir tímabilið 01.01.2022 - 30.06.2022.
Með bréfi dags. 19.10.2020 krafðist byggingarfulltrúi þess að öll mannvirki norðan hússins yrðu fjarlægð enda um óleyfisbyggingar að ræða. Umsækjandi hefur ítrekað óskað eftir fresti og hefur framvísað stöðuleyfi fyrir hluta mannvirkjanna frá öðru sveitarfélagi.
Fundur verður með umsækjanda og lögfræðingi hans 11. janúar nk.

Afgreiðslu frestað.
7. 2112360 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir leiksvæði við Rimahverfi
Heilbrigðiseftirlit Suðurland biður um umsögn vegna endurnýjunar starfsleyfis fyrir leiksvæðið við Rimahverfi.





Svæðið er opið svæði skv. gildandi aðalskipulagi. Deiliskipulag hefur ekki verið gert. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við endurnýjun starfsleyfis.
8. 2112361 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir leikvæði við Miðtún
Heilbrigðiseftirlit Suðurland biður um umsögn vegna endurnýjunar starfsleyfis vegna reksturs leiksvæðis við Miðtún á Selfossi.
Svæðið er opið svæði skv. gildandi aðalskipulagi. Deiliskipulag hefur ekki verið gert. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við endurnýjun starfsleyfis.
9. 2112362 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir leikvæði við Reyrhaga
Heilbrigðiseftirlit Suðurland biður um umsögn vegna endurnýjunar starfsleyfis vegna reksturs leiksvæðis við Reyrhaga.
Svæðið er opið svæði skv. gildandi aðalskipulagi. Deiliskipulag hefur ekki verið gert. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við endurnýjun starfsleyfis.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:00 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica