Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarráð - 1

Haldinn í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi,
04.06.2026 og hófst hann kl. 08:10
Fundinn sátu: Sveinn Ægir Birgisson formaður, D-lista,
Brynhildur Jónsdóttir bæjarfulltrúi, D-lista,
Margrét Björk Ólafsdóttir varamaður, S-lista,
Matthías Bjarnason áheyrnarfulltrúi, B-lista,
Þorsteinn Haukur Harðarson varaáheyrnarfulltrúi, C-lista,
Bragi Bjarnason bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Bragi Bjarnason, bæjarstjóri


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2605369 - Tillaga um viðmið í gjaldskrám Svf. Árborgar í fjárhagsáætlun 2027
Tekið er fyrir minnisblað bæjarstjóra um viðmið í gjaldskrám sveitarfélagsins í fjárhagsáætlun ársins 2027.

Bæjarráð samþykkir að við vinnu fjárhagsáætlunar 2027 verði horft til þess að almennar hækkanir gjaldskráa hjá A-hluta Svf. Árborgar verði ekki umfram 2,5 prósent, sem er verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands. Bæjarráð skorar jafnframt á bæði ríkisvaldið og önnur sveitarfélög að gera slíkt hið sama með það að markmiði að opinberir aðilar gefi skýr skilaboð um að ná megi niður verðbólgu í landinu.

Bæjarráð leggur áherslu á að með ákvörðuninni sé Svf. Árborg að sýna ábyrgð með því að leggja sitt af mörkum til að draga úr verðbólguþrýstingi og létta undir með íbúum og fyrirtækjum í Árborg.
Samþykkt
2. 2606021 - Húsnæði undir frístundastarf og starfsemi mannvirkja- og umhverfissviðs
Tillaga um að auglýsa eftir húsnæði undir frístundastarf með eða án aðstöðu fyrir hluta af starfsemi mannvirkja- og umhverfissviðs.

Kynnt er minnisblað bæjarstjóra og sviðstjóra mannvirkja- og umhverfissviðs vegna málsins, dags. 1. júní 2026.

Bæjarráð samþykkir að Svf. Árborg auglýsi eftir hentugu húsnæði undir frístundastarf og mögulega hluta af starfsemi mannvirkja- og umhverfissviðs. Lagt verði upp með tvo valkosti í auglýsingunni. Annars vegar að Svf. Árborg geti leigt eða keypt um 500-600m2 húsnæði undir frístundastarf eða keypt um 1.200m2 húsnæði sem myndi bæði henta frístundastarfi og hluta af starfsemi mannvirkja- og umhverfissviðs. Með seinni valkostinum getur Svf. Árborg losað um aðrar eignir og náð fram hagræðingu með því að koma hluta af starfsemi mannvirkja- og umhverfissviðs í sama húsnæði.

Bæjarráð leggur áherslu á að við úrvinnslu þeirra húsnæðismöguleika sem gætu komið fram sé horft til eftirfarandi atriða: kostnaði á leigu eða kaupum, tímasetningu afhendingar, staðsetningu m.t.t. aðgengis fatlaðra, hjólandi, gangandi og frístundabíls ásamt nálægð við íbúabyggð. Sveitarfélagið áskilur sér rétt til að hafna öllum tilboðum. Tillaga að mögulegri leigu eða kaupum verði lögð fyrir bæjarráð til afgreiðslu. Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðstjóra mannvirkja- og umhverfissviðs að vinna málið áfram.
Samþykkt
3. 2606017 - Umferðaröryggisaðgerðir 2026 - Gangbrautarljós á Austurvegi fyrir framan ráðhúsið
Lögð fram hugmynd Vegagerðarinnar um uppsetningu gangbrautarljósa á gangbraut á Austurveginum á milli Ráðhússins og Krónunnar.
Lögð fram hugmynd Vegagerðarinnar um uppsetningu gangbrautarljósa á gangbraut á Austurvegi milli Ráðhúss og Krónunnar. Bæjarráð vísar erindinu áfram til skoðunar á mannvirkja- og umhverfissviði sem vinni málið áfram og leggi fram tillögu til skipulagsnefndar sem fer með umferðaröryggismál.
Samþykkt
Gangbrautarljós á Austurvegi.pdf
5. 2606005 - Ársskýrsla 2025- Orkídea
Ársskýrsla Orkídeu fyrir árið 2025, lögð fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
arsskyrsla-orkideu-2025-v002.pdf
Fundargerðir
4. 2606006 - Félagsfundir Veiðifélag Árnesinga 2026
Lagðar fram upplýsingar um undirbúning félagsfundar sem er áætlaður 18. júní n.k.
Lagt fram til kynningar.
Félagsfundur_undirbúningur 18juni.pdf
Fundargerðir til kynningar
6. 2606023 - Fundargerðir Farsældarráð Suðurlands - 2026-2030
Fundargerð 1. fundar farsældarráðs Suðurlands, sem haldinn var 4. mars sl. og fundargerð 2. fundar farsældarráðs Suðurlands, sem haldinn var 9. apríl sl.
Lagt fram til kynningar.
Fundargerð 1.fundur Farsældarráð undirrituð.pdf
Fundargerð 2.fundur farsældarráðs pdf_undirritað.pdf

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 08:45 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica