Bæjarstjórn - 2 |
Haldinn í Grænumörk 5, Selfossi, 22.06.2022 og hófst hann kl. 17:00 |
|
Fundinn sátu: Bragi Bjarnason bæjarfulltrúi, D-lista, Fjóla Steindóra Kristinsdóttir bæjarfulltrúi, D-lista, Kjartan Björnsson bæjarfulltrúi, D-lista, Sveinn Ægir Birgisson bæjarfulltrúi, D-lista, Brynhildur Jónsdóttir bæjarfulltrúi, D-lista, Þórhildur Dröfn Ingvadóttir varamaður, D-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir bæjarfulltrúi, S-lista, Sigurjón Vídalín Guðmundsson bæjarfulltrúi, S-lista, Arnar Freyr Ólafsson bæjarfulltrúi, B-lista, Ellý Tómasdóttir bæjarfulltrúi, B-lista, Álfheiður Eymarsdóttir bæjarfulltrúi, Á-lista, Ari B. Thorarensen varamaður, D-lista, Helga María Pálsdóttir bæjarritari. |
|
Fundargerð ritaði: Helga María Pálsdóttir, bæjarritari |
|
Í upphafi fundar kallar forseti eftir athugasemdum við útsent fundarboð. Engar athugasemdir eru gerðar. |
|
|
|
Dagskrá: |
|
|
Almenn erindi |
1. 2206048 - Ráðning bæjarstjóra kjörtímabilið 2022-2026 |
Fjóla St. Kristinsdóttir,D-lista víkur af fundi og Ari B. Thorarensen, D-lista tekur sæti.
Sigurjón V. Guðmundsson, S-lista, Arnar Freyr Ólafsson, B-lista og Sveinn Ægir Birgisson, D-lista taka til máls.
Ráðningarsamningur við Fjólu St. Kristinsdóttur er lagður fram til samþykktar og samþykktur með 6 atkvæðum, 2 fulltrúar S-lista, 2 fulltrúar B-lista og einn fulltrúi Á-lista sitja hjá.
Ari B. Thorarensen, D-lista víkur af fundi og Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista tekur sæti. |
Undirritaður ráðningarsamningur við bæjarstjóra.pdf |
|
|
|
2. 2206047 - Breytingar á samþykktum um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Árborgar kjörtímabilið 2022-2026 |
Lagt er til að samþykkja breytingar á samþykktum um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Árborgar kjörtímabilið 2022-2026.
Álfheiður Eymarsdóttir, Á-lista og Bragi Bjarnason, D-lista taka til máls.
Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum. |
tillaga til breytinga á bæjarmálasamþykkt (1).pdf |
|
|
|
3. 1810115 - Tillaga um endurskoðun aðalskipulags Árborgar 2010-2030 |
Bragi Bjarnason, D-lista, Arnar Freyr Ólafsson, B-lista og Sigurjón V. Guðmundsson, S-lista taka til máls.
Bæjarstjórn Árborgar samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum í samræmi við 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að endurskoðuðu aðalskipulagi Árborgar 2020-2036. Bæjarstjórn Árborgar telur að þær breytingar sem gerðar hafa verið á tillögu eftir að auglýsingu lauk, séu ekki þess eðlis að auglýsa skuli að nýju.
Bæjarstjórn Árborgar samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum að fela skipulagsfulltrúa að svara þeima athugasemdum og ábendingum sem fram hafa komið, og senda Skipulagsstofnun tillöguna til afgreiðslu í samræmi við 1. og 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga. |
2839-111-ASK-003-V01-Árborg.pdf |
2839-111-ASK-004-V01-Selfoss.pdf |
2839-111-ASK-005-V01-Eyrabakki.pdf |
2839-111-GRG-001-V06-Greinargerð.pdf |
FlokkunVegaArb.pdf |
Landbunadarland1.pdf |
|
|
|
4. 1804013 - Deiliskipulagstillaga Austurvegur 67 |
Bæjarstjórn Árborgar samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum tillöguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og felur skipulagsfulltrúa að auglýsa tillöguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga. |
17285-Dsk-Austurvegur 67-uppdr (ID 59803).pdf |
|
|
|
5. 2206095 - Eyði-Sandvík - Deiliskipulag |
Álfheiður Eymarsdóttir, Á-lista og Bragi Bjarnason, D-lista taka til máls.
Bæjarstjórn Árborgar samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum tillöguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og felur skipulagsfulltrúa að auglýsa tillöguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga. |
9527-100440-01-DSK-V06-Eyði-Sandvík-DSK.pdf |
|
|
|
6. 2205259 - Kosning í embætti og nefndir 2022 - 2026 |
Lagt er til að Díana Lind Sigurjónsdóttir verði aðalmaður og Gísli Guðjónsson verði varamaður.
Tillagan er borin undir atkvæðum og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum. |
|
|
|
7. 2204079 - Faghópur um leikskóla |
Ellý Tómasdóttir, B-lista, Sveinn Ægir Birgisson, D-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista og Brynhildur Jónsdóttir, D-lista taka til máls.
Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista leggur fram eftirfarandi bókun: Undirrituð þakka faghópi um leikskólamál fyrir góða vinnu og tillögur um næstu skref í uppbyggingu og fjölgun leikskólarýma í Svf. Árborg. Þrátt fyrir að á síðasta kjörtímabili hafi leikskólarýmum fjölgað um 180, fleiri en á nokkru sinni fyrr, þá er nauðsynlegt að vinna áfram að frekari uppbyggingu og úrbótum á aðstöðu í leikskólanna í sveitarfélaginu. Undirrituð leggja til að starfshópnum verði falið að vinna áfram og þá sérstaklega með það fyrir augum að koma með tillögur að úrbótum varðandi færanlegt kennsluhúsnæði við leikskólana Árbæ og Álfheima sem komið er til ára sinna.
Arna Ír Gunnarsdóttir S-lista Sigurjón Vídalín Guðmundsson S-lista
Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.
|
|
|
|
8. 2206157 - Tillaga um fyrirkomulag funda bæjarstjórnar í júlí og ágúst og að bæjarráði verði falin fullnaðarafgreiðsla mála. |
Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum. |
|
|
|
|
Fundargerðir |
9. 2206009F - Bæjarráð - 1 |
Sigurjón V. Guðmundsson, S-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista, Álfheiður Eymarsdóttir, Á-lista og Arnar Freyr Ólafsson, B-lista taka til máls undir lið nr. 17. - Fyrirspurn - verkefni formanns bæjarráðs.
Arnar Ólafsson, B-lista, Álfheiður Eymarsdóttir, Á-lista og Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista taka til máls undir lið nr. 2. -Skipulagsbreytingar á UT deild. |
|
|
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:25 |
|