Bæjarstjórn - 4 |
Haldinn í Grænumörk 5, Selfossi, 07.09.2022 og hófst hann kl. 17:00 |
|
Fundinn sátu: Bragi Bjarnason bæjarfulltrúi, D-lista, Fjóla Steindóra Kristinsdóttir bæjarfulltrúi, D-lista, Kjartan Björnsson bæjarfulltrúi, D-lista, Sveinn Ægir Birgisson bæjarfulltrúi, D-lista, Þórhildur Dröfn Ingvadóttir varamaður, D-lista, Helga Lind Pálsdóttir bæjarfulltrúi, D-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir bæjarfulltrúi, S-lista, Sigurjón Vídalín Guðmundsson bæjarfulltrúi, S-lista, Arnar Freyr Ólafsson bæjarfulltrúi, B-lista, Gísli Guðjónsson varamaður, B-lista, Álfheiður Eymarsdóttir bæjarfulltrúi, Á-lista, Rósa Sif Jónsdóttir ritari. |
|
Fundargerð ritaði: Rósa Sif Jónsdóttir, ritari |
|
Í upphafi fundar kallar forseti eftir athugasemdum við útsent fundarboð. Engar athugasemdir eru gerðar.
Forseti býður Gísla Guðjónsson, varamann B-lista, sérstaklega velkominn á sinn fyrsta bæjarstjórnarfund. Forseti leitar afbrigða að taka á dagskrá mál frá 6. fundi skipulags- og byggingarnefndar frá 6. september, lið 1, Larsenstræti 2, óveruleg breyting á deiliskipulagi. Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum. |
|
|
|
Dagskrá: |
|
|
Almenn erindi |
1. 2206245 - Tillaga frá bæjarfulltrúum Á- B- og S-lista - framtíðarskólahúsnæði á Eyrarbakka |
Sveinn Ægir Birgisson, D-lista, tekur til máls.
Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum. |
Erindisbréf f. undirbúningshóp BES.pdf |
|
|
|
2. 2208264 - Friðland í Flóa- Endurheimt votlendis - Umsókn um framkvæmdaleyfi |
Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista tekur til máls og leggur fram eftirfarandi bókun:
Hér með leggja undirrituð til að staðfestingu á framkvæmdaleyfi vegna endurheimt votlendis í Friðlandi í Flóa verði frestað og Náttúrufræðistofnun Íslands verði fenginn til að vinna vistgerðarkort fyrir Friðland í Flóa með svohljóðandi bókun: “Þrátt fyrir að undirrituð geri ekki athugasemdir við ávinning þess að loka gömlum skurðum með það í huga að endurheimta votlendi og binda kolefni þá er viðbúið að það geti haft margvísleg áhrif á vistkerfi svæðisins, ásýnd og landnýtingu til framtíðar. Undirrituð telja að það sé nauðsynlegt fyrir framtíð svæðisins að fá Náttúrufræðistofnun Íslands til að vinna vistgerðarkort fyrir Friðland í Flóa og nálæg svæði sem yrði síðan grunnur fyrir sveitarfélagið til að taka upplýstar ákvarðanir um alla landnotkun og áætlanagerð, s.s. vegna náttúruverndar, skipulagsmála, mats á umhverfisáhrifum framkvæmda og náttúruvöktunar. Undirrituð telja að með þessu sé unnt að koma í veg fyrir að mistök verði gerð þegar ákvarðanir verða teknar um framkvæmdir á svæðinu líkt og gerðist fyrir nokkrum árum þegar fyllt var uppí hluta af Stakkholtsósnum þar sem talið var að hann væri gamall skurður. Stakkholtsósinn er hins vegar náttúrulegt afrennsli af svæðinu og getið er um í Landnámu.
Arna Ír Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi S-lista Sigurjón Vídalín Guðmundsson, bæjarfulltrúi S-lista Álfheiður Eymarsdóttir, bæjarfulltrúi Á-lista Arnar Freyr Ólafsson, bæjarfulltrúi B-lista Gísli Guðjónsson, varabæjarfulltrúi B-lista
Bragi Bjarnason, D-lista, tekur til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum að fresta afgreiðslu á framkvæmdaleyfi vegna endurheimts votlendis í Friðlandi í Flóa. |
Flói, friðland, bréf til Árborgar, agust 2022.pdf |
|
|
|
3. 2207196 - Eyrargata Eyrabakka- Umsókn um framkvæmdaleyfi. (endurnýjun yfirborðs götu) |
Bragi Bjarnason, D-lista tekur til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum umsókn um framkvæmdaleyfi vegna framkvæmda við endurnýjun yfirborðs götu og lagningu gangstétta á um 260m kafla Eyrargötu á Eyrarbakka og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.
|
Eyrarbakki_honnun_06_Gotukantur-sudur-2022.pdf |
|
|
|
4. 2201175 - Viðauki við fjárhagsáætlun 2022 |
Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista tekur til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum viðauka nr. 8 við fjárhagsáætlun ársins 2022. |
Sveitarfélagið Árborg - viðauki nr. 8.pdf |
|
|
|
5. 2208279 - Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning |
Helga Lind Pálsdóttir, D-lista, Álfheiður Eymarsdóttir, Á-lista og Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista taka til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum framlagðar reglur um sérstakan húsnæðisstuðning. |
Drög að reglum sveitafélagsins Árborgar um sérstakan húnsæðisstuðning.pdf |
|
|
|
6. 2208269 - Larsenstræti 2. - Óveruleg breyting á deiliskipulagi |
Bragi Bjarnason, D-lista tekur til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum breytingartillögu í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga og felur skipulagsfulltrúa að senda Skipulagsstofnun tillöguna og auglýsa í B-deild Stjórnartíðinda. |
102_Larsenstræti 2.pdf |
101_Larsenstræti 2.pdf |
100_Larsenstræti 2.pdf |
Larsenstræti 2_deiliskipulagsbreyting_3.pdf |
|
|
|
|
Fundargerðir |
7. 2208014F - Bæjarráð - 7 |
Bragi Bjarnason, D-lista, tekur til máls undir lið 1. milliuppgjör og fjárhagstölur 2022 og lið 2, afnotaleyfi vegna Haustgildis 2022 og lið 5. mönnun heilbrigðisstarfsfólks á landsbyggðinni. |
|
|
|
Kjartan Björnsson, forseti bæjarstjórnar óskar eftir að 2. varaforseti Bragi Bjarnason taki við stjórn fundarins.
|
8. 2208018F - Frístunda- og menningarnefnd - 2 |
Kjartan Björnsson, D-lista og Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista taka til máls undir lið 1, Menningarmánuðurinn október 2022 og lið 2, stuðningur við börn með sérþarfir í íþrótta- og æskulýðsstarfi. |
|
Kjartan Björnsson, forseti tekur við stjórn fundarins.
|
|
|
9. 2208019F - Eigna- og veitunefnd - 3 |
Sveinn Ægir Birgisson, D-lista, tekur til máls undir lið 1, fjárfestingaráætlun 2022-2025, lið 3, frístundamiðstöð- hönnun og framkvæmdir, lið 4, nýr miðlunargeymir Austurvegi 67 og lið 5, bygging á nýjum grunnskóla í Björkurstykki - Stekkjaskóla. Álfheiður Eymarsdóttir, Á- lista tekur til máls undir lið 1, fjárfestingaráætlun 2022-2025, lið 3, frístundamiðstöð - hönnun og framkvæmdir og lið 4, nýr miðlunargeymir Austurvegi 67. Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista, tekur til máls undir lið 3, frístundamiðstöð - hönnun og framkvæmdir og lið 4, nýr miðlunargeymir Austurvegi 67. |
|
|
|
10. 2208007F - Fræðslunefnd - 2 |
Þórhildur Dröfn Ingvadóttir, D-lista tekur til máls undir lið 2, menntastefna Árborgar. Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista tekur til máls undir lið 1, minnisblað um skólaþjónustu Árborgar. |
|
|
|
11. 2208030F - Bæjarráð - 8 |
Bragi Bjarnason, D-lista tekur til máls undir lið 3, fjölgun rafhleðslustöðva í Sveitarfélaginu Árborg. Álheiður Eymarsdóttir, Á lista, tekur til máls undir lið 1, starfshópur um kennslusundlaug við Sunnulækjarskóla og lið 2, tillaga um stofnun starfshóps um hönnun á útisvæði Sundhallar Selfoss. Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista, tekur til máls undir lið 4, mönnun heilbrigðisstarfsfólks á landsbyggðinni.
Kjartan Björnsson, forseti bæjarstjórnar óskar eftir að 2. varaforseti Bragi Bjarnason taki við stjórn fundarins.
Kjartan Björnsson, D-lista tekur til máls undir lið 4, mönnun heilbrigðisstarfsfólks á landsbyggðinni.
Kjartan Björnsson, forseti tekur við stjórn fundarins. |
|
|
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:13 |
|