Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarstjórn - 3

Haldinn í Grænumörk 5, Selfossi,
24.08.2022 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu: Bragi Bjarnason bæjarfulltrúi, D-lista,
Fjóla Steindóra Kristinsdóttir bæjarfulltrúi, D-lista,
Kjartan Björnsson bæjarfulltrúi, D-lista,
Sveinn Ægir Birgisson bæjarfulltrúi, D-lista,
Brynhildur Jónsdóttir bæjarfulltrúi, D-lista,
Helga Lind Pálsdóttir bæjarfulltrúi, D-lista,
Arna Ír Gunnarsdóttir bæjarfulltrúi, S-lista,
Sigurjón Vídalín Guðmundsson bæjarfulltrúi, S-lista,
Arnar Freyr Ólafsson bæjarfulltrúi, B-lista,
Ellý Tómasdóttir bæjarfulltrúi, B-lista,
Axel Sigurðsson varamaður, Á-lista,
Helga María Pálsdóttir bæjarritari.
Fundargerð ritaði: Fjóla St. Kristinsdóttir, bæjarstjóri


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2109104 - Fjárfestingaráætlun 2022-2025
Tekið fyrir á 3. fundi eigna- og veitunefndar 23. ágúst.
Farið yfir endurskoðaða fjárfestingaáætlun 2022.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja hjálagðan viðauka vegna endurskoðunar og breytinga á fjárfestingaráætlun ársins 2022.


Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.
2. 2201175 - Viðauki við fjárhagsáætlun 2022
Viðauki nr. 7

Tilfærsla á verkefnum í fjárfestingaáætlun.

Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista og Sveinn Ægir Birgirsson, D-lista taka til máls.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum viðauka nr. 7 við fjárhagsáætlun ársins 2022.
Sveitarfélagið Árborg - viðauki nr. 7.pdf
3. 2208116 - Árvegur 1. HSU - Breyting á gildandi deiliskipulagi
Tekið fyrir á 4. fundi skipulags- og byggingarnefndar þann 17. ágúst sl.

Sigríður Magnúsdóttir Teiknistofunni Tröð, lagði fram tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir Árveg 1, á Selfossi. Breytingin er tilkomin vegna áforma um stækkun á húsnæði HSU.
Umfang væntanlegrar stækkunar er meira en núverandi heimildir í gildandi deiliskipulagi.
Óskað er eftir breytingu sem felur í sér auknar byggingarheimildir og rýmri byggingarreit, skv. meðfylgjandi uppdrætti.

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkti tillöguna í samræmi við 43.gr. skipulagslaga nr. 123.2010, og lagði til við bæjarstjórn Árborgar að samþykkja tillöguna í samræmi við ofangreinda lagagrein skipulagslaga, og að hún verði auglýst í samræmi við 41.gr. skipulagslaga.

Bragi Bjarnason, D-lista tekur til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum tillöguna í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og felur skipulagsfulltrúa að auglýsa tillöguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.
3304-S0401.pdf
DSK.br Uppdráttur dags. 18.8.2022.pdf
4. 2208127 - Skógarflöt DSK br. - Skógarflöt L203345 (Byggðarhorn 9.)
Tekið fyrir á 4. fundi skipulags- og byggingarnefndar, dags. 17. ágúst sl.

Guðjón Þórir Sigfússon f.h. landeiganda, lagði fram tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir lóðina Skógarflöt, L203245. Breytingin felur í sér að stofnuð verði ný lóð, og skilgreindur byggingarreitur auk byggingarheimilda fyrir íbúðarhúsi, allt að 300m2, bifreiða- og vélageymslu, allt að 250m2 og hesthúsi allt að 200m2. Nýtingarhlutfall að 0,15. Mesta þakhæð allt að 8,0m. Þakhalli 0-45 gráður. Sömu skilmálar gilda fyrir núverandi lóð.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkti tillöguna í samræmi við 43.gr. skipulagslaga nr. 123.2010, og lagði til við bæjarstjórn Árborgar að samþykkja tillöguna í samræmi við ofangreinda lagagrein skipulagslaga, og að hún verði auglýst í samræmi við 41.gr. skipulagslaga

Bragi Bjarnason, D-lista tekur til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum tillöguna í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og felur skipulagsfulltrúa að auglýsa tillöguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.

Skógarflöt Deiliskipulag 2022 útg 4.0 sent á RG 16-8-22.pdf
5. 2207196 - Eyrargata Eyrabakka- Umsókn um framkvæmdaleyfi. (endurnýjun yfirborðs götu)
Tekið fyrir á 4. fundi skipulags- og byggingarnefndar, dags. 17. ágúst sl.

María Dís Ásgeirsdóttir f.h. Mannvirkja- og umhverfissviðs Árborgar óskaði eftir framkvæmdaleyfi til að rífa af og endurnýja malbik á um 260 m kafla Eyrargötu á Eyrarbakka, samkvæmt meðfylgjandi gögnum. Vegkaflinn afmarkast frá húsi nr.42, að vestan og austur að húsi nr. 49 við Eyrargötu.
Mannvirkja og Umhverfissvið mun fara yfir athugasemdir Skipulags- og byggingarnefndar frá fundi 27.7.2022, og skila inn uppfærðum gögnum, sem mæta athugasemdum.

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkti umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir rif og endurmalbikun götu, og lagði til við Bæjarstjórn Árborgar að umsókn verði samþykkt, og skipulagsfulltrúa verði falið að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.

Bragi Bjarnason, D-lista tekur til máls.
Bæjarstjórn Árborgar samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum umsókn um framkvæmdaleyfi of felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.
Eyrarbakki_honnun_06_Gotukantur-sudur-2022.pdf
Eyrarbakki_honnun_06_Gotukantur-sudur-2021_t2.pdf
6. 2208192 - Beiðni um samþykki - sala leigulóðarréttinda
Erindi frá Sigtúni Þróunarfélagi ehf., dags. 18. ágúst sl. þar sem óskað er eftir að sveitarfélagið veiti samþykki sitt fyrir sölu SÞ ehf. á leigurétti sínum og framsali á lóðinni að Tryggvagötu 10-12, Selfossi til JÁVERK.
Bragi Bjarnason, D-lista og Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista taka til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum að Sveitarfélagið Árborg veiti samþykki sitt fyrir sölu SÞ ehf. á leigurétti sínum og framsali á lóðinni að Tryggvagötu 10-12, Selfossi til JÁVERK. 2 bæjarfulltrúar S-lista, 2 bæjarfulltrúar B-lista og einn bæjarfulltrúi Á-lista sitja hjá undir atkvæðagreiðslu málsins.
Erindi til Árborgar 18 8 2022.pdf
DSK Miðbær Selfoss. Deiliskipulagsuppdráttur staðfest 30.8.2021.pdf
DSK Miðbær Selfoss. Skýringaruppdráttur staðfest 30.8.2021.pdf
Fundargerðir
7. 2206017F - Bæjarráð - 2
2. fundur haldinn 23. júní.
8. 2206027F - Bæjarráð - 3
3. fundur haldinn 30. júní.
9. 2207001F - Bæjarráð - 4
4. fundur haldinn 7. júlí.
Bragi Bjarnason, D-lista tekur máls undir lið nr. 3 og lið nr. 6.
10. 2207014F - Bæjarráð - 5
5. fundur haldinn 28. júlí.
Sveinn Ægir Birgisson, D-lista tekur til máls undir lið nr. 1 og lið nr. 8.
11. 2208002F - Bæjarráð - 6
6. fundur haldinn 11. ágúst sl.
Bragi Bjarnason, D-lista tekur til máls undir lið nr. 2 og lið nr. 4.
12. 2208012F - Skipulags og byggingarnefnd - 4
4. fundur haldinn 18. ágúst sl.
Bragi Bjarnason, D-lista tekur til máls.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica