Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 81

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
22.12.2021 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Sveinn Pálsson byggingafulltrúi, Puja Acharya fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Sölvi Leví Gunnarsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Rúnar Guðmundsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Guðmundur Gestur Þórisson f.h. slökkviliðsstjóra.
Fundargerð ritaði: Sveinn Pálsson, byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2112170 - Norðurleið 12 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Vigfús Halldórsson fyrir hönd Svört föt ehf. sækir um leyfi til að byggja einbýlishús. Helstu stærðir eru; 431,7 m2 og 2.136,9 m3
Áformin samræmast samþykktu deiliskipulagi Tjarnarbyggðar.
Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að gögn verði leiðrétt skv. athugasemdum byggingarfulltrúa og eldvarnareftirlits.

Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. 3. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar liggja fyrir:
- Aðaluppdrættir og skráningartafla, undirritað af hönnuði
- Yfirlýsing byggingarstjóra um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á starfsábyrgðartryggingu byggingarstjóra
- Ábyrgðaryfirlýsing húsasmíða-, múrara-, pípulagninga- og rafvirkjameistara
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
2. 2112190 - Norðurgata 26 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen fyrir hönd Eiríks S. Arndals sækir um leyfi til að byggja hesthús og geymslu. Helstu stærðir eru; 300,4m2 og 1396,1m3
Áformin samræmast ekki samþykktu deiliskipulagi Tjarnabyggðar.
Umsókn hafnað.
3. 2112224 - Björkurstekkur 52 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen fyrir hönd Leifs Arnar Leifssonar sækur um leyfi til að byggja einbýlishús. Helstu stærðir eru; 200,4 m2 og 951,6 m3
Áformin eru í samræmi við deiliskipulag.
Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt.

Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. 3. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar liggja fyrir:
- Aðaluppdrættir og skráningartafla, undirritað af hönnuði
- Yfirlýsing byggingarstjóra um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á starfsábyrgðartryggingu byggingarstjóra
- Ábyrgðaryfirlýsing húsasmíða-, múrara-, pípulagninga- og rafvirkjameistara
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
4. 2112232 - Tryggvagata 32 - Umsókn um byggingarheimild
Guðjón Sigfússon fyrir hönd Wojciech Widenski og Maria Widenska sækir um leyfi fyrir breytingum innanhús og breyttri notkun.
Breytingin felst í að innrétta sólbaðsstofu yfir bílskúr þar sem áður var geymsla. Brunahólfun er breytt til samræmis við áformaða notkun.

Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1 skv. byggingarreglugerð gr. 1.3.2.
Deiliskipulag liggur ekki fyrir.
Vísað til skipulags- og byggingarnefndar.
5. 2112320 - Hulduhóll 37 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason fyrir hönd RG smíði ehf. sækir um leyfi til að byggja einbýlishús. Helstu stærðir eru; 166,5m2 og 665,2m3
Áformin eru í samræmi við saþykkt deiliskipulag.
Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt.

Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. 3. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar liggja fyrir:
- Aðaluppdrættir og skráningartafla, undirritað af hönnuði
- Yfirlýsing byggingarstjóra um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á starfsábyrgðartryggingu byggingarstjóra
- Ábyrgðaryfirlýsing húsasmíða-, múrara-, pípulagninga- og rafvirkjameistara
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
6. 2111442 - Björkurstekkur 79 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Óli Rúnar Eyjólfsson fyrir hönd Unnar Eyjólfsdóttur sækir um leyfi til að byggja einbýlishús. Helstu stærðir eru; 300,7 m2 og 1.271,4 m3.
Áformin innifela frávik frá samþykktu deiliskipulagi.
Vísað til skipulags- og byggingarnefndar að ósk umsækjenda.
7. 2112197 - Austurvegur 23 - Stöðuleyfi
Hjálparsveitin Tintron sækir um stöðuleyfi fyrir 3 stk. 20 feta gáma vegna flugeldasölu.
Sótt er um leyfi fyrir tímabilið 26.12.2021 - 10.01.2022.
Fyrir liggur samþykki lóðarhafa.

Samþykkt að veita stöðuleyfi fyrir tímabilið 26.12.2021 - 10.01.2022
8. 2112172 - Tryggvatorg 3 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Pylsuvagninn Selfossi
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands biður um umsögn vegna endurútgáfu starfsleyfis fyrir Pylsuvagninn Selfossi
Byggingarfulltrúi staðfestir að byggingin og starfsemin er í samræmi við deiliskipulag og útgefið byggingarleyfi.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við endurnýun starfsleyfis.
9. 2112341 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir leiksvæði við Kringlumýri
Heilbrigðiseftirlit Suðurland biður um umsögn vegna endurnýjunar starfsleyfis fyrir leiksvæðið við Kringlumýri, landnr. 186665


Svæðið er opið svæði skv. gildandi aðalskipulagi. Deiliskipulag hefur ekki verið gert.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við endurnýjun starfsleyfis.
10. 2112342 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir leiksvæði við Dælengi
Heilbrigðiseftirlit Suðurland biður um umsögn vegna endurnýjunar starfsleyfis fyrir leiksvæðið við Dælengi, landnr. 161978
Svæðið er opið svæði skv. gildandi aðalskipulagi. Deiliskipulag hefur ekki verið gert.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við endurnýjun starfsleyfis.
11. 2112343 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir leiksvæði við Fossveg
Heilbrigðiseftirlit Suðurland biður um umsögn vegna endurnýjunar starfsleyfis fyrir leiksvæðið við Fossveg, landnr. 186665
Svæðið er opið svæði skv. gildandi aðalskipulagi. Deiliskipulag hefur ekki verið gert.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við endurnýjun starfsleyfis.
12. 2112344 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir leiksvæði við Túngötu
Heilbrigðiseftirlit Suðurland biður um umsögn vegna endurnýjunar starfsleyfis fyrir leiksvæðið við Túngötu.
Óskað er eftir nánari skýringu á staðsetningu.
Afgreiðslu frestað.
13. 2112345 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir leiksvæði við Miðengi
Heilbrigðiseftirlit Suðurland biður um umsögn vegna endurnýjunar starfsleyfis fyrir leiksvæðið við Miðengi, landnr. 218242.
Svæðið er íbúðasvæði skv. gildandi aðalskipulagi. Deiliskipulag hefur ekki verið gert.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við endurnýjun starfsleyfis.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:00 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica