Frístundaakstur

Frístundabíllinn ekur alla  virka daga frá kl. 13:10 - 16:47 (sjá neðar) og hefur það hlutverk að keyra börn frá frístundaheimilum og skóla í íþrótta- og frístundastarf innan sveitarfélagsins. Öll börn geta nýtt sér frístundabílinn og ekki er innheimt neitt gjald í bílinn.

Frístundaakstur innan Sveitarfélagsins Árborgar heldur áfram skólaárið 2023 - 2024. Aksturskipulagið fyrir leið 2 milli Selfoss, Stokkseyri, Eyrarbakka og Tjarnarbyggðar er áfram hluti af Árborgarstrætó sem er innanbæjarstrætó innan Árborgar og leið 1 innan Selfoss er áfram keyrð í samstarfi við Guðmund Tyrfingsson ehf. 

Hagnýtt

Leið 1: Innanbæjar á Selfossi (keyrt af Guðmundi Tyrfingssyni ehf. (GTS))
Leið 2:  Eyrarbakki - Stokkseyri - Selfoss (Hluti af Árborgarstrætó, gamla leið 75)

Leið 1 | Frístundaakstur í Árborg veturinn 2023 - 2024
Leið 2 | Árborgarstrætó haust 2023 | Virkir dagar


Frístundabíllinn keyrir frá  04. september 2023 til og með 7. júní 2024  samkvæmt tímatöflu og er ekið alla virka daga þar á meðal merkta frídaga í grunnskólum líkt og vetrarfrí eða aðra starfsdaga. Ekki er þó ekið í jólafríinu frá 20. desember til 3. janúar og í páskafríinu frá og með 25. mars til 2. apríl 2024.

Það er enginn starfsmaður (utan bílstjóra) í frístundabílnum en foreldrar eru hvattir til að fara fyrstu ferðina með börnunum sínum til að kenna þeim á aðstæður. 

Allar ábendingar um frístundaaksturinn eru vel þegnar en hægt er að senda þær ásamt fyrirspurnum á netfangið  gunnars@arborg.is eða hafa samband í síma 480 1900. 

  • Leiðakerfið innan Selfoss er að taka breytingum reglulega til að mæta auknum notendafjölda en allar breytingar eru settar inn hérna á síðunni.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica