Almenningssamgöngur

Strætóleiðir 51 og 52 eiga leið um Selfoss en þær tengja Sveitarfélagið Árborg við Reykjavík og Suðurland.  Árborgarstrætó (ÁS) gengur innan Sveitarfélagsins Árborgar (sjá nánar neðar á síðunni)

Hagnýtt

Leið 51: Tvær ferðir á dag alla daga vikunnar á milli Reykjavíkur og Hafnar í Hornafirði
Leið 52: Þrjár ferðir á dag milli Reykjavíkur og  Landeyjahafnar í Herjólf, alla daga vikunnar.
Leið 71: Fjórar ferðir mánudaga til föstudaga milli  Þorlákshafnar og Hveragerðis.
Leið 72: Selfoss um Grímsnes að Flúðum og til baka um Skeið.
Leið 73: Selfoss um Skeið að Flúðum og til baka um Grímsnes.
Kótelettan: Innanbæjarstrætó á Kótelettunni.


Íbúar eru hvattir til að nota Strætó-Appið til að kaupa strætómiða

Nemakort

Námsmenn, með lögheimili í Sveitarfélaginu Árborg, sem skráðir eru í nám við háskóla eða framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu fái 15% afslátt af fargjöldum með strætó, kaupi þeir persónubundin íbúakort.

Umsókn

Ás

Frítt er í strætó innan Árborgar fyrir alla aldurshópa 

Frá 2.janúar 2021 var frítt fyrir alla aldurshópa í Árborgarstrætóinn. Nú geta allir íbúar Árborgar nýtt sér innanbæjarstrætói endurgjaldslaust. Að auki fjölgar ferðum upp í tíu á virkum dögum og fimm um helgar þar sem ekið er bæði laugardaga og sunnudaga. 
Árborgarstrætóinn nýtist að auki sem frístundaakstur milli þéttbýliskjarna í sveitarfélaginu og tengist við frístundaaksturinn innan Selfoss sem sjá má betur hér: Frístundaakstur.
Foreldrar eru hvattir til að fara fyrstu ferðirnar með börnunum sínum til að þau læri betur inn á akstursleiðir og stoppistöðvar.   

Akstursleið Árborgarstrætó:



Þetta vefsvæði byggir á Eplica