Selfoss

Selfoss er landnámsjörð Þóris Hersis Ásasonar en einnig er getið um vetursetu Ingólfs Arnarsonar 873-74 „undir Ingólfsfelli fyrir vestan Ölfusá“. Sumarið 1891 var fyrir forgöngu Tryggva Gunnarssonar byggð hengibrú yfir Ölfusá hjá Selfossi. Hún var þá mesta mannvirki sem Íslendingar höfðu ráðist í. Með tilkomu brúarinnar urðu straumhvörf í þróun byggðar á Selfossi. 

Selfoss er stærsti byggðarkjarni á Suðurlandi. Árið 1890 reisti Tryggvi Gunnarsson skála fyrir brúarsmiðina sem síðar var við hann kenndur, Tryggvaskáli. Árið 1901 varð skálinn veitingastaður og gistiheimili. Í skálanum var sett upp símstöð árið 1909 og Landsbanki Íslands opnaði þar fyrsta bankaútibúið á Suðurlandi haustið 1918. Um 1930 tóku Mjólkurbú Flóamanna og Kaupfélag Árnesinga til starfa og urðu burðarásar atvinnulífsins næstu áratugina. Á stríðsárunum höfðu Bretar nokkurt setulið á Selfossi til gæslu brúarinnar og einnig víðar á Suðurlandi. Minjar frá þessum tíma er enn að finna.

Mannlífið

Á Selfossi er fjölbreytt mannlíf. Stærsta menntasetur bæjarins er Fjölbrautaskóli Suðurlands. Í tengslum við hann er einnig starfrækt Fræðslunet Suðurlands. Þrír grunnskólar eru á Selfossi, skólavistun, fimm leikskólar og Tónlistarskóli Árnesinga. Bókasafn og upplýsingamiðstöð eru staðsett í ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2. Þar er einnig að finna lítinn sýningarsal í kjallara ráðhússins, Listagjána. Héraðsskjalasafn Árnesinga er einnig staðsett að Austurvegi 2. Kvikmyndahús, kaffihús og fjölbreytt úrval veitingastaða er á Selfossi.

Vinnustofur listamanna er að finna víða á Selfossi. Á Selfossi er einnig blómlegt félagslíf. Í bænum eru starfandi fjöldi félaga og klúbba, leikfélag, kórar, íþróttafélög og aðrir hópar sem vinna markvisst að því að byggja upp samfélag þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Íþróttastarfsemi á Selfossi er mjög öflug og hefur skilað sér í miklum áhuga á handbolta, en einnig eru aðrar greinar í örum vexti, eins og td. körfubolti. Sundhöll Selfoss býður gestum upp á heita potta, gufubað, vaðlaug og rennibraut. Löglegur keppnisvöllur er fyrir hestaíþróttir. Á Selfossi er haldið hið árlega Brúarhlaup þar sem fólk alls staðar að af landinu tekur þátt. 

Menningarhátíðin Vor í Árborg hefst á sumardaginn fyrsta hvert ár og stendur yfir í fjóra daga. Í ágúst er bæjarhátíðin Sumar á Selfossi þar sem íbúar eru hvattir til að fegra hverfin sín og endar hátíðin á hópsamkomu með fjöldasöng bálköst í rökkrinu. 

 Á Selfossi er starfrækt öflug þjónusta fyrir unga sem aldna. Félagsmiðstöð er fyrir unga fólkið og dægradvöl fyrir eldri borgara.

Atvinnuvegir

Upphaf farsællar atvinnusögu Selfoss var grundvölluð á byggingu brúarinnar á Ölfusá. Selfoss þróaðist í að verða miðstöð samgangna og þjónustu og síðar vettvangur öflugrar vinnslu á afurðum sunnlensks landbúnaðar og þjónustu við hann. Fjölbreytni í atvinnulífi er nú meiri en áður á sviði framleiðslu og þjónustu.

Á Selfossi eru nokkur af framsæknustu fyrirtækjum landsins í framleiðslu á matvælum. Má þar nefna stærsta mjólkurbú landsins. Áratuga reynsla, þekking og fagmennska er m.a. ástæða hinnar miklu nýsköpunar og vöruþróunar sem á sér stað við vinnslu landbúnaðarafurða á Selfossi. Fjöldi bygginga- og verktakafyrirtækja staðfestir að á Selfossi er byggingariðnaður rótgróin atvinnugrein. Landsþekkt er framleiðsla á einingahúsum og sumarbústöðum. Annar iðnaður er einnig í mikilli sókn. Selfoss er miðstöð skóla, heilbrigðis- og bankaþjónustu ásamt opinberri stjórnsýslu á Suðurlandi. Vaxandi fjöldi fyrirtækja er einnig starfandi við margs konar þjónustu við einstaklinga og fyrirtæki. Blómleg verslun er einn af hornsteinum þéttbýlismyndunar á Selfossi. Miðstöð verslunar á Suðurlandi er á Selfossi og fjölmargar verslanir eru starfandi á ýmsum sviðum.

Ferðaþjónusta

Grunnur að ferðaþjónustu á Selfossi var lagður með byggingu brúar yfir Ölfusá árið 1891 og byggingu Tryggvaskála árið áður. Síðan hefur verið rekin öflug ferðaþjónusta á Selfossi sem hefur vaxið og þróast í takt við breytta tíma. Selfoss er miðstöð verslunar, þjónustu og iðnaðar á Suðurlandi. Ýmsir gistimöguleikar eru í boði, má þar nefna hótel, gistihúsabyggð við tjaldsvæðið, tjald- og húsbílasvæði, íbúðahótel og heimagistingu. 

Á Selfossi er að finna fjölbreytt veitinga- og kaffihúsa, auk rúmgóðra veislu- og ráðstefnusala. Á bökkum Ölfusár er glæsilegur 9 holu golfvöllur. Stutt er í góðar gönguleiðir, t.d. í Hellisskóg, þar sem útsýni er yfir Ölfusá og golfvöllinn eða ganga á Ingólfsfjall en þaðan sést vel yfir sléttur Suðurlands, fjallahringinn í norðri og austri og til Vestmannaeyja í suðri. Sundhöll Selfoss býður upp á bæði inni- og útilaug, vaðlaug fyrir börnin, gufuböð og ljósaböð. 

Á Selfossi er góð íþróttaaðstaða, íþróttahús við Sólvallaskóla og við Fjölbrautaskóla Suðurlands og víðáttumikið útivistarsvæði með íþróttavöllum. Nýtt fjölnota íþróttahús, Lindexhöllin, var tekin í notkun haustið 2021. Brávellir er nýlegur reið- og keppnisvöllur fyrir hestamenn og reiðleiðir eru víða. Á Selfossi eru margs konar vinnustofur og gallerí, verslanir, bíóhús, leikhús, Bæjar- og héraðsbókasafn, sjúkrahús, tveir grunnskólar og Fjölbrautaskóli Suðurlands. Selfoss er helsta samgöngumiðstöð Suðurlands. 

Áætlunarferðir eru frá Selfossi til allra átta. Auk Reykjavíkur má þar nefna Gullfoss og Geysi og niður að ströndinni til Stokkseyrar, Eyrabakka og Þorlákshafnar. Á sumrin eru ferðir í Þórsmörk og Landmannalaugar, til Akureyrar og austur á land, auk margra annarra staða í byggð og óbyggð. Á Selfossi eru starfræktar nokkrar ferðaskrifstofur og þar er einnig upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn.

Framtíðarbær

Selfoss er miðstöð þjónustu og verslunar á svæðinu. Með rúmlega átta þúsund íbúa og í aðeins um 50 kílómetra fjarlægð frá stærsta markaðssvæði þjóðarinnar er Selfoss eftirsóttur staður af mörgum ástæðum. Nálægðin við höfuðborgarsvæðið þýðir að auðvelt er að sækja þangað nauðsynlega þjónustu, en um leið er staðsetningin heppilega langt frá skarkala stórborgarlífsins. Bærinn hefur vaxið hratt og hefur íbúafjölgun á milli ára verið langt umfram landsmeðaltal. 

Atvinnulífið á Selfossi er þekkt fyrir stöðugleika. Þetta hafa margir atvinnurekendur nýtt sér og valið atvinnustarfsemi sinni stað á Selfossi. Á síðastliðnum árum hefur fyrirtækjum og þjónustuaðilum á Selfossi stöðugt fjölgað. 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica