Jól í Árborg

Jólahátíðin í Sveitarfélaginu Árborg er sannarlega skemmtileg með fjölbreyttum viðburðum fyrir alla fjölskylduna. 

Tónleikar, jólagluggar, barnaskemmtun, jólamarkaðir, kveikt á jólatrjám í byggðakjörnum og
innkoma jólasveinanna eru hluti af jóladagskránni í Sveitarfélaginu Árborg

VIÐBURÐARDAGATAL
Við minnum á viðburðadagatal Sveitarfélags Árborgar er reglulega uppfært 

Jól í Árborg  | Facebook

Allir áhugasamir geta sent inn upplýsingar um viðburði í tölvupósti á olafur.rafnar@arborg.is |  margretb@arborg.is eða í síma 480 1900

Banner_1700649110723

Jólagluggarnir opna í stofnunum og fyrirtækjum frá 1. des.- 24. des. og verður jólagátan í gangi fyrir yngri kynslóðina. 

Gátan virkar þannig að þátttakendur skoða hvern jólaglugga og finna bókstaf sem settur er á réttan stað í þátttökublaðið. Bókstafirnir mynda í lokin setningar sem gefa svar við tveimur spurningum og þá er gátan leyst!  

Þegar svörin eru komin er tekið á móti svörum í Bókasöfnum sveitarfélagsins, Selfossi, Eyrarbakka og Stokkseyri og í Sundhöll Selfoss. Skemmtileg verðlaun í boði!

Þátttökublað Jólagluggans er hægt að nálgast á Bókasöfnum Árborgar, Selfossi, Stokkseyri og Eyrarbakka, Sundhöll Selfoss og Byggðasafni Árnesinga. Einnig er hægt að sækja gátuna með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan. Góða skemmtun!

Jólagluggar 2023


Þetta vefsvæði byggir á Eplica