Kveikt á jólatré 2020 | Stokkseyri
Kveikt verður á jólatrénu kl 16:00 sunnudaginn 29. nóvember. Vegna aðstæðna verður ekki hefðbundin dagskrá við tréð.
Klukkan 16:00 munu jólasveinar fara um Stokkseyri á kerru undir dúndrandi jólatónlist og kasta góðgæti til barnanna sem á vegi þeirra verða.
Við byrjum austast í bænum og förum inn allar helstu götur, austur Hásteisveg, inn Ólafsvelli, inn Íragerði, Strandgötu, Blómsturvelli, Sólvelli upp Holtsveg, inn Heiðarbrún og svo vestur Eyrarbraut.
Ungmennafélag Stokkseyrar og Sveitafélagið Árborg.