Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Listagjáin | G. Gyða Halldórsdóttir

  • 16.6.2025 - 30.6.2025, Listagjáin

Sjötta einkasýning Gyðu verður frá 16. júní til 14. júlí í Listagjánni, Austurvegi 2.

Guðríður Gyða Halldórsdóttir fæddist 3. ágúst 1951 á Suðureyri við Súgandafjörð

G-gyda-halldorsdottir-01Gyða lærði í Myndlistarskóla Kópavogs í nokkur ár og útskrifaðist af Hönnunarbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Gyða er lærður nuddari og á einnig að baki 6 ára nám í ilmkjarnaolíufræðum, hún gaf m.a. út bók um ilmkjarnaolíur árið 2019.

G-gyda-halldorsdottir-02Þetta er sjötta einkasýning Gyðu og jafnframt sú fyrsta á Selfossi

Myndefni á sýningunni er nátengt áhugasviði Gyðu sjálfrar. Gömul hús og skúrar af ýmsum gerðum hafa lengi heillað hana og skemmst er frá því að segja að hún smíðaði tíu kofa á meðan hún var á barnsaldri. Gyða er einnig jurtanorn og því fá nornirnar sinn sess á sýningunni.

Einnig hefur Gyða myndskreytt barnabók

Bókin heitir "Bernskubrek á Suðureyri" og eru endurminningar 5 telpna frá Suðureyri við Súgandafjörð.
Gyða málar einnig eftir gömlum myndum.

Sýning Gyðu í Listagjánni er opin á opnunartíma Bókasafns Árborgar, Selfossi.

Sýningin heldur áfram á Norðurgangi, Sundhöll Selfoss frá 15. júlí til 14. ágúst.

Bokasaf-logo


Viðburðadagatal

18.2.2026 - 11.3.2026 Stokkseyrarkirkja Vetrartónar Stokkseyrarkirkju 2026

Tónleikaröðin Vetrartónar í Stokkseyrarkirkju sem hóf göngu sína í fyrra snýr aftur með glæsilega dagskrá. Að þessu sinni verða tónleikarnir fernir og fara fram fjögur miðvikudagskvöld í röð.

Sjá nánar
 

25.2.2026 - 18.3.2026 Stokkseyrarkirkja Vetrartónar Stokkseyrarkirkju 2026

Tónleikaröðin Vetrartónar í Stokkseyrarkirkju sem hóf göngu sína í fyrra snýr aftur með glæsilega dagskrá. Að þessu sinni verða tónleikarnir fernir og fara fram fjögur miðvikudagskvöld í röð.

Sjá nánar
 

27.2.2026 - 30.4.2026 Litla Leikhúsið Skilaboðaskjóðan hjá Leikfélagi Selfoss

Miðasala er hafin á Skilaboðaskjóðuna hjá Leikfélagi Selfoss. 

Sjá nánar
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica