Myrkradagar á Bókasafninu
Það er forn siður að halda hátíðir í vetrarbyrjun til að þakka fyrir uppskeru sumarsins og taka á móti myrkrinu og kuldanum.
Vetrarbyrjun sem stundum var kölluð nýár var talin vera um mánaðarmót október - nóvember í heiðnum sið, kirkjan setti sína Allra sálna messu á 30. október til að yfirtaka dísablót og vetrarnætur og aðrar heiðnar hátíðar sem hafa nú blandast skemmtilega saman.
Á Myrkradögum ætlum við að aðstoða ykkur við að hanna skreytingar fyrir Hrekkjavökuna og fullorðnir fá líka eitthvað fyrir sig þegar andlega þenkjandi fólk mun heimsækja safnið og segja frá tengslum sína við orkukerfi, okkur flestum hulin.
Tökum vel á móti vetri konungi myrkrinu og myrkraverunum!