Breytingar á leikskólakerfinu í Árborg skólaárið 2024-2025
Ný tilrauna- og þróunarverkefni meðal breytinga á leikskólakerfinu á komandi skólaári
Undanfarin ár hefur leikskólakerfið staðið frammi fyrir vanda sem felur í sér fækkun á faglærðu starfsfólki, aukinn frítökurétt og styttingu vinnuvikunnar. Þessi vandi bitnar á faglegu starfi og starfsþróun leikskólans og undanfarna 9 mánuði hefur þurft að virkja fáliðunaráætlanir leikskólanna allt að tuttugu sinnum í hverjum skóla. Það hafði í för með sér að börn þurftu að fara heim með litlum fyrirvara sem hefur komið mörgum foreldrum illa.
Skólaárið 2024-2025 verður farið af stað með tilraunaverkefni sem felur í sér að innleiða skráningardaga í fríum og frá kl. 14-16 á föstudögum.
Leikskólagjöld munu lækka sem nemur þessum skráningardögum og skráningartíma á föstudögum. Ef foreldrar nýta alla skráningardaga og vistun á milli kl. 14-16 á föstudögum verður gjaldið það sama og áður.
Skráningardagar verða eftirfarandi: haustfrí 17.-18. október, dymbilvika 14.-16. apríl og vetrarfrí 17.-18. febrúar. Skráningu þarf að vera lokið þremur vikum fyrir skráningardag. Lokað verður milli jóla og nýárs, 27. desember og 30. desember. Leikskólagjöld munu lækka sem nemur lokun á þessu tveimur dögum hjá öllum börnum.
Ekkert barn verður sjálfkrafa skráð með vistun eftir klukkan 14 á föstudögum en ef foreldrar þurfa að nýta þá þjónustu, skrá þeir barnið í vistun og greiða sérstaklega fyrir hana. Ef foreldrar nýta sér að fullu þjónustuna á skráningardögum og föstudögum kemur ekki til hækkunar á gjaldi heldur helst það óbreytt.
Nýtt kerfi tekur gildi frá opnun leikskólans þann 10. ágúst og gildir fram að 3. júlí 2025 þegar sumarleyfi hefjast að nýju. Ef foreldrar nýta ekki skráningardaga og vistun á milli kl. 14-16 á föstudögum fer mánaðargjaldið úr 48.555 kr. á mánuði í 44.570 kr. á mánuði miðað við 8 tíma vistun.
Þróunarverkefni
Skólaárið 2024-2025 verður boðið upp á uppeldisnámskeið í tveimur leikskólum og verður það hluti af aðlögun barna sem eru að hefja leikskólagöngu. Markmiðið með námskeiðinu er að skapa vettvang fyrir fræðslu til foreldra við upphaf leikskólagöngu barnanna.
Niðurgreiðsla til foreldra barna 18 mánaða og eldri sem nýta sér þjónustu hjá dagforeldrum verður hækkuð og munu þeir foreldrar greiða gjald sem samsvarar fullu leikskólaplássi hjá sveitarfélaginu Árborg. Með því er komið til móts við þá foreldra sem eru á bið eftir leikskólaplássi með barn 18 mánaða og eldra. Með aukinni kostnaðarþátttöku sveitarfélagsins verður ekki munur á greiðslum til dagforeldra og leikskóla þegar börn hafa náð 18 mánaða aldri og eru í vistun hjá dagforeldrum.