25. fundur bæjarstjórnar, kjörtímabilið 2022 - 26
Fundur bæjarstjórnar Árborgar verður haldinn miðvikudaginn 4. október 2023 í Grænumörk 5, Selfossi, kl.16:00.
https://www.youtube.com/watch?v=6xd41Elxf4M
Dagskrá:
Almenn erindi
- 2301152 - Lántökur 2023
Tillaga frá 55. fundi bæjarráðs, frá 28. september, liður 10. Lántökur 2023.
Lántaka hjá Lánasjóði Sveitarfélaga.
Bæjarráð samþykkti samhljóða töku láns hjá Lánasjóði sveitarfélaga og lagði til við bæjarstjórn að staðfesta þá ákvörðun samanber tillögu að bókun hér að neðan:
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar samþykkir hér með á bæjarstjórnarfundi að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að útgreiðslufjárhæð allt að kr. 625.000.000, með lokagjalddaga þann 5. nóvember 2055, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem bæjarstjórnin hefur kynnt sér.
Bæjarstjórnin samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstólsfjárhæðinni, uppgreiðslugjaldi, auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Er lánið tekið til endurfjármögnunar afborgana lána sveitarfélagsins hjá lánasjóðnum, sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Jafnframt er Fjólu Steindóru Kristinsdóttur, bæjarstjóra, kt. 270272-5849, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Sveitarfélagsins Árborgar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns. - 2205259 - Kosning í embætti og nefndir 2022 - 2026
Breyting á fulltrúa D-lista í menningarnefnd.
Breyting varamanni D-lista á aðalfundi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, og Bergrisans bs.
Breyting á varamanni D-lista í fulltrúarráð Héraðsnefndar Árnesinga. - 2307063 - Víkurheiði I - Deiliskipulagsbreyting 2023
Tillaga frá 14. fundi skipulagsnefndar frá 27. september, liður 2. Víkurheiði I - Deiliskipulagsbreyting 2023.
Bæjarráð Árborgar samþykkti þann 27.7.2023, tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi athafnalóða í Víkurheiði I.
Breytingar taka til lóðanna Víkurheiði 1, 3, 5, 13 - 15 (sameinast og verður lóð 13), 17, 18, 19, 20, 21 og 22. Breytingar nú snúa að því að laga byggingarreiti og lóðir betur að niðurstöðu nýlegrar jarðvegsrannsóknar á svæðinu. Samfara því er byggingamagn og nýtingarhlutfall aukið, og aðlagað að eftirspurn framkvæmdaaðila almennt. Að öðru leyti en að ofan greinir gilda skilmálar eldra skipulags, með síðari breytingum.
Tillagan hefur verið auglýst í samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010, frá 3.8.2023 til og með 14.9.2023. Borist hafa umsagnir frá Minjastofnun Ísland og Landsneti. Landsnet bendir á að á skipulagsuppdrætti hafi Selfosslína 3, sem er 66kV jarðstrengur fallið út. Óskað er eftir að hann verði settur inn og gerð grein fyrir honum, auk helgunarsvæðis.
Skipulagsnefnd tók undir ábendingar Landsnets og mun jarðstrengur verða settur inn á uppdrátt, auk helgunarsvæðis. Nefndin taldi að ábendingar Landsnets væru þess eðlis að þær hefðu ekki áhrif á fyrri samþykkt skipulagsbreytingar, og samþykkti því breytinguna og fól skipulagsfulltrúa að afgreiða tillöguna til skipulagsstofnunar til yfirferðar.
Lagt er til við bæjarstjórn að staðfesta skipulagsbreytinguna.
Fundargerðir - 2309002F - Skipulagsnefnd - 13
13. fundur haldinn 13. september. - 2309011F - Eigna- og veitunefnd - 22
22. fundur haldinn 12. september. - 2309018F - Bæjarráð - 54
54. fundur haldinn 20. september. - 2309012F - Ungmennaráð - 11/2023V
11. fundur haldinn 12. september. - 2309008F - Umhverfisnefnd - 12
12. fundur haldinn 19. september. - 2309023F - Bæjarráð - 55
55. fundur haldinn 28. september.