29. fundur bæjarstjórnar, kjörtímabilið 2022 - 26
Fundur bæjarstjórnar Árborgar verður haldinn miðvikudaginn 29. nóvember 2023 í Grænumörk 5, Selfossi, kl.16:00.
https://www.youtube.com/watch?v=YSxdLuCNkvA
Dagskrá:
Almenn erindi
- 2301248 - Handbók vetrarþjónustu
Tillaga frá 24. fundi eigna- veitunefndar, frá 14. nóvember, liður 3. Handbók vetrarþjónustu.
Farið yfir drög að handbók vetrarþjónustu í Árborg. Nefndin samþykkti handbók um vetrarþjónustu og vísaði til umræðu í bæjarstjórn. - 2311318 - Húsaleigusamningur við Héraðsskjalasafn - hækkun 2024
Erindi frá framkvæmdastjórn Héraðsnefndar Árnesinga, dags. 14. nóvember, þar sem óskað er eftir samþykki um hækkun á húsaleigusamningi Héraðsskjalasafns Árnesinga við Sveitarfélagið Árborg. - 2302244 - Eyravegur 42 - 44. - Deiliskipulag verslunar- og þjónustu auk íbúðabyggðar
Tillaga frá 14. fundi skipulagsnefndar, frá 27. september, liður 3. - Eyravegur 42 - 44. - Deiliskipulag verslunar- og þjónustu auk íbúðabyggðar.
Mál áður á dagkrá 13.09.2023: Edda Kristín Einarsdóttir f.h. Eik fasteignafélags, leggur fram tillögu að nýju deiliskipulagi blandaðar byggðar á lóðunum Eyravegur 42 og 44 á Selfossi. Svæðið er skilgreint í aðalskipulagi Árborgar 2020 - 2036 sem miðsvæði, en er jafnframt skilgreint sem þróunarsvæði, þar sem skuli vera blanda af verslunar-, þjónustu- og íbúðarsvæði. Svæðið er ekki deiliskipulagt.
Samkvæmt orðalagi tillögunnar eru helstu markmið hennar að þétta núverandi byggð með nýtingu á lóðum sem nýttar hafa verið sem verslunar- og lagersvæði. Tillagan tekur til breytinga á núverandi notkun lóðanna 42 og 44 við Eyraveg. Lóðirnar hafa í áranna rás verið nýttar undir starfsemi byggingarvöruverslunar. Í tillögunni er gert ráð fyrir að verslunarstarfsemi verði á lóð 42, og hluti núverandi bygginga verði rifinn og fjarlægður. Á lóð 44 er gert ráð fyrir að rísi á tveimur reitum F1 og F2 íbúðarhúsnæði á 3 - 5 hæðum. Gert er ráð fyrir að á lóðinni verði rými fyrir allt að 55 - 62 íbúðir, með nýtingarhlutfall upp á 1,1. Tillagan gerir ráð fyrir að heimilt verði að byggja bílakjallara. Tillagan gerir ráð fyrir að lóðirnar 44 og 44a á Eyravegi verði sameinaðar í eina lóð.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til umsagnar hjá mannvirkja- og umhverfissviði Árborgar. Jákvæð umsögn mannvirkja- og umhverfissviðs Árborgar liggur fyrir. Skipulagsnefnd samþykkir tillögu að deiliskipulagi í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og mælist til að bæjarstjórn Árborgar samþykki tillöguna, að teknu tilliti til nýrrar samþykktar Sveitarfélagsins Árborgar um samningsákvæði vegna aukins byggingarmagns og nýtingarhlutfalls, auk þess að fyrir liggi samkomulag um kaup á viðbótarlandi sem deiliskipulagið nær yfir. Skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 41. gr. sömu laga.
Skipulagsnefnd tekur nú málið fyrir að nýju þar sem á fundi 13.9.2023, voru gögn ekki að fullu uppfærð. Breyting sem gerð hefur verið frá fyrri uppdrætti fellst í að búið er að bæta við stæðum/svæði fyrir rafhleðslustöðvar rafbíla, auk spennustöðvarskúrs í horni lóðar.
Skipulagsnefnd samþykkti tillögu að deiliskipulagi í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og mæltist til að bæjarstjórn Árborgar samþykkti tillöguna, að teknu tilliti til nýrrar samþykktar Sveitarfélagsins Árborgar um samningsákvæði vegna aukins byggingarmagns og nýtingarhlutfalls, auk þess að fyrir lægi samkomulag um kaup á viðbótarlandi sem deiliskipulagið nær yfir. Skipulagsfulltrúa yrði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 41. gr. Skipulagslaga. Afgreiðslu málsins var frestað á 27. fundi bæjarstjórnar 1. nóvember sl. þar sem endanlegt samkomulag um kaup á viðbótarlandi lá ekki fyrir. - 2311060 - Nýjar samþykktir SOS
Síðari umræða. - 2309088 - Viðauki við samkomulag um lögn úr Ósabotnum
Viðauki við samkomulag um hitaveitulögn Ósabotnum.
Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann. - 2210154 - Fjárfestingaráætlun 2023 - 2026
Endurskoðuð fjárfestingaráætlun ársins 2023. - 2306308 - Viðauki við fjárhagsáætlun 2023
Viðauki 4. - 2311161 - Gjaldskrár 2024
Fyrri umræða.
1) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir frístundaheimili, frístundaklúbba og sumarfrístund 2024
2) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir leikskólum Árborgar 2024
3) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir fæði í grunnskólum Árborgar 2024
4) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald í Árborg 2024
5) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir bókasöfn Árborgar 2024
6) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir félagslega stuðningsþjónustu í Árborg 2024
7) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir leigubílaakstur aldraðra í Árborg 2024
8) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir Grænumörk 2024
9) Tillaga að breytingu á gjaldskrá húseigna 2024
10) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir sundstaði í Árborg 2024
11) Tillaga að breytingu á gjaldskrá íþróttahúsa í Árborg 2024
12) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir heimsendan mat í Árborg 2024
13) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir vatnsveitu 2024
14) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir skipulags- og byggingardeild 2024
15) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir fráveitu (tæming rotþróa) í Árborg 2024
16) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir sorphirðu í Árborg 2024
17) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir gámasvæði Árborgar 2024
18) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir Selfossveitur 2024 - 2311163 - Útsvarsprósenta 2024
Lögð fram tillaga að útsvarsprósentu fyrir árið 2024. - 2306129 - Fjárhagsáætlun 2024 - 2027
Fyrri umræða.
Fundargerðir - 2311011F - Bæjarráð - 62
62. fundur haldinn 16. nóvember. - 2310023F - Skipulagsnefnd - 17
17. fundur haldinn 15. nóvember. - 2311013F - Eigna- og veitunefnd - 24
24. fundur haldinn 14. nóvember. - 2311010F - Umhverfisnefnd - 13
13. fundur haldinn 14. nóvember. - 2311017F - Bæjarráð - 63
63. fundur haldinn 23. nóvember.
Fjóla St. Kristinsdóttir, bæjarstjóri