32. fundur bæjarstjórnar, kjörtímabilið 2022 - 26
Fundur bæjarstjórnar Árborgar verður haldinn miðvikudaginn 17. janúar 2024 í Grænumörk 5, Selfossi, kl.16:00.
https://www.youtube.com/watch?v=anD-02ytu3Q
Dagskrá:
Almenn erindi
- 2312161 - Húsnæðisáætlun 2024
Húsnæðisáætlun fyrir Sveitarfélagið Árborg 2024 tekur mið af tveimur megin þáttum sem hafa áhrif á áætlunina. Annar er sá þáttur er snýr að gríðarlega hraðri og mikilli uppbyggingu síðustu ár, þar sem hækkun mannfjölda var um 5-6%. Tekið er tillit til þess í áætlun fyrir árið 2024 að margar íbúðir eru tilbúnar eða á lokastigi en um leið hefur hægt verulega á byggingarhraða, vegna utanaðkomandi áhrifa, svo sem vaxtastigs og hækkunar á verði aðfanga. Hinn þátturinn sem hefur áhrif á áætlunin fyrir árið 2024, að komið hefur í ljós að erfitt hefur reynst að anna eftirspurn eftir orku, þ.e. heitu vatni, og hefur það haft áhrif á framleiðni í byggingariðnaði. Í ljósi framangreinds gerir háspá ráð fyrir 6% íbúafjölgun, miðspá 3%og lágspá 2% fyrir árið 2024. Reikna má með að raunin verði um miðspá miðað við ofangreindar forsendur. Fjöldi íbúa í Árborg er nú rúmlega 11.800 manns.
Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja Húsnæðisáætlun Árborgar 2024. - 2211216 - Yfirdráttarheimild fyrir Sveitarfélagið Árborg
Lagt er til að bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar heimili yfirdráttarheimild hjá Íslandsbanka á reikning 0586-26-1 allt að 400.000.000 kr. - 2311131 - Styrkir til uppsetninga á varmadælum 2024
Reglur um styrki vegna varmadælna í Sveitarfélaginu Árborg. Eigna- og veitunefnd samþykktu á 25. fundi eiga og veitunefndar að framlengja reglur um að styrkja uppsetningu varmadælna í Sveitarfélaginu Árborg til ársloka 2027.
Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja reglurnar. - 2303364 - Upprunaland Selfoss - Áfangaskipting- uppdrættir og eignayfirlýsing
Tillaga frá 20. fundi skipulagsnefndar, frá 10. janúar, liður 4.
Lögð er fram eignayfirlýsing ásamt fylgiskjölum vegna staðfestingar á Upprunalandi Selfoss, landnúmer 222365, til samþykktar hjá skipulagsnefnd. Í eignayfirlýsingu er gerð grein fyrir þinglýstum eignarheimildum Sveitarfélagsins Árborgar að því landsvæði sem Upprunaland Selfoss nær til, þannig að unnt sé að staðfesta eignina í þinglýsingarbók sýslumannsins á Suðurlandi. Skráð stærð landsins í fasteignaskrá er 0,0 fermetrar en landssvæðið er hnitsett í samræmi við leiðbeiningar frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Skipulagsnefnd fagnar því að unnt sé að fá staðfestingu á stærstum hluta af upprunalandi á Selfossi og að 1. áfanga í vinnu starfshóps Eflu verkfræðistofu og Lögmanna Suðurlandi sé að ljúka.
Skipulagsnefnd Árborgar samþykkti fyrirliggjandi eignayfirlýsingu, ásamt fylgiskjölum. Lagt var til við bæjarstjórn Árborgar að staðfesta yfirlýsinguna auk fylgigagna og veita bæjarstjóra umboð til undirritunar skjalanna f.h. sveitarfélagsins. - 2311129 - Lágengi 2 - 20 - Deiliskipulag íbúðabyggðar
Tillaga frá 20. fundi skipulagsnefndar frá 10. febrúar, liður 5. Lögð er fram deiliskipulagstillaga Landhönnunar slf, fyrir götumyndina Lágengi 2 - 20 á Selfossi. Skipulagsnefnd Árborgar hefur um nokkurt skeið horft til þess að reyna að þétta byggð, þar sem þess er nokkur kostur. Hefur verið horft sérstaklega til auðra lóða sem einhverra hluta vegna hafa staðið þannig árum og áratugum saman í þegar byggðum hverfum. Í einhverjum tilfellum hafa umræddar "lóðir" verið leiksvæði, sem í áranna rás hafa ekki verið nýttar. Nefndin telur að það sé ávinningur fyrir sveitarfélagið Árborg, að það séu byggð hús á lóðunum, innan um önnur íbúðarhús, og myndist þá heilstæð götumynd á hverju svæði fyrir sig. Meginmarkmið deiliskipulagstillögunnar er að gera deiliskipulag fyrir götulínuna á fyrrgreindum húsum við Lágengi, og þá sérstaklega vegna lóðar nr. 10. Lóðin Lágengi 10, er 750m2 að stærð. Gert er ráð fyrir að heimilt verði að byggja á umræddri lóð allt að 225m2 einbýlishús, með eða án bílskúrs, og er þá miðað við nýtingarhlutfallið 0.3. Mesta leyfilega vegghæð verður 4m og hámarksmænishæð 6m. Tillagan er í samræmi við Aðalskipulag Árborgar 2020 - 2036.
Skipulagsnefnd samþykkti tillögu að deiliskipulagi í samræmi við 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, og mæltist til að Bæjarstjórn Árborgar samþykki tillöguna, og fæli skipulagsfulltrúa að auglýsa tillöguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga. - 2401078 - Reyrhagi 2 - 20 - Deiliskipulag íbúðabyggðar
Tillaga frá 20. fundi skipulagsnefndar frá 10. janúar, liður 6.
6. 2401078 - Reyrhagi 2 - 20 - Deiliskipulag íbúðabyggðar
Lögð er fram deiliskipulagstillaga Landhönnunar slf, fyrir götumyndina Reyrhaga 2-20 á Selfossi.
Skipulagsnefnd Árborgar hefur um nokkurt skeið horft til þess að reyna að þétta byggð, þar sem þess er nokkur kostur. Hefur verið horft sérstaklega til auðra lóða sem einhverra hluta vegna hafa staðið þannig árum og áratugum saman í þegar byggðum hverfum. Í einhverjum tilfellum hafa umræddar "lóðir" verið leiksvæði, sem í áranna rás hafa ekki verið nýttar.
Nefndin telur að það sé ávinningur fyrir sveitarfélagið Árborg, að það séu byggð hús á lóðunum, innan um önnur íbúðarhús, og myndist þá heilstæð götumynd á hverju svæði fyrir sig. Meginmarkmið deiliskipulagstillögunnar er að gera deiliskipulag fyrir götulínuna á fyrrgreindum húsum við Reyrhaga, og þá sérstaklega vegna lóðar nr. 8. Lóðin Reyrhagi 8, er 584m2 að stærð. Gert er ráð fyrir að heimilt verði að byggja á umræddri lóð allt að 172,5m2 einbýlishús, með eða án bílskúrs, og er þá miðað við nýtingarhlutfallið 0.3. Mesta leyfilega vegghæð verður 4m og hámarksmænishæð 6m. Tillagan er í samræmi við Aðalskipulag Árborgar 2020-2036.
Skipulagsnefnd samþykkti tillögu að deiliskipulagi í samræmi við 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, og mæltist til að Bæjarstjórn Árborgar samþykkti tillöguna, og fæli skipulagsfulltrúa að auglýsa tillöguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.
Fundargerðir - 2311033F - Skipulagsnefnd - 19
19. fundur haldinn 6. desember. - 2312002F - Fræðslu- og frístundanefnd - 9
9. fundur haldinn 6. desember. - 2312009F - Bæjarráð - 66
66. fundur haldinn 14. desember. - 2312010F - Eigna- og veitunefnd - 26
26. fundur haldinn 12. desember. - 2312016F - Bæjarráð - 67
67. fundur haldinn 21. desember. - 2312023F - Bæjarráð - 68
68. fundur haldinn 4. janúar. - 2401007F - Bæjarráð - 69
69. fundur haldinn 11. janúar.
Helga María Pálsdóttir, bæjarritari