38. fundur bæjarstjórnar, kjörtímabilið 2022 - 26
Fundur bæjarstjórnar Árborgar verður haldinn miðvikudaginn 24. apríl 2024 í Grænumörk 5, Selfossi, kl.16:00.
Bein útsending
Dagskrá:
Almenn erindi
1. 2312231 - Ársreikningur Árborgar 2024
Fyrri umræða.
2. 2312002 - Minnisblað um stöðu leikskólamála í Árborg nóv. 2023
Tillaga frá 12. fundi fræðslu- og frístundanefndar, frá 17. apríl, liður 1. Minnisblað um stöðu leikskólamála í Árborg nóv. 2023. Minnisblað og tillögur frá sviðsstjóra og leiðtoga leikskólamála um vinnuumhverfi leikskólans.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkti samhljóma tillögur frá sviðsstjóra og leiðtoga leikskólamála og lagði til við bæjarstjórn að samþykkja tillöguna.
3. 2111455 - Sértækur húsnæðisstuðningur - hækkun tekjumarka og aðrar leiðir
Tillaga frá 9. fundi velferðarnefndar frá 18. apríl, liður 1. Sértækur húsnæðisstuðningur - hækkun tekjumarka og aðrar leiðir. Lagt er til samþykktar hækkun á tekju- og eignarmörkun þeirra sem sækja um sérstakan húsnæðisstuðning hjá sveitarfélaginu Árborg. Gildandi eru reglur Árborgar um Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning.
Velferðarnefnd samþykkti samhljóða og lagði til við bæjarstjórn að samþykkja tillöguna með gildistöku frá og með 01.05.2024.
4. 2404207 - Breytingar á greiðsluþáttöku foreldra
Tillaga frá 9. fundi velferðarnefndar, frá 18. apríl, liður 4. Breytingar á greiðsluþáttöku foreldra. Tillögur að breytingu á greiðsluþátttöku foreldra barna 18 mánaða og eldri. Tilraunarverkefni ágúst 2024-ágúst 2025.
Velferðarnefnd samþykkti samhljóða tillögur frá sviðsstjóra fjölskyldusviðs og lagði til við bæjarstjórn að samþykkja tillöguna.
Velferðarnefnd felur sviðsstjóra að útfæra tillöguna nánar í samráði við félag dagforeldra.
5. 2311299 - Breyting á aðalskipulagi Árborgar 2020-2036 - breyting á legu Selfosslínu 1
Tillaga frá 26. fundi skipulagsnefndar liður 6. Breyting á aðalskipulagi Árborgar 2020-2036 - breyting á legu Selfosslínu 1. Ráðgjafafyrirtækið Efla, í samráði við Landsnet og sveitarfélögin Flóahrepp og Árborg, leggur fram tillögu að breyttu Aðalskipulagi Árborgar 2020-2036, vegna breyttrar legu Selfosslínu 1, sem auglýst verður, skv. 1.mgr. 31.gr. skipulagalaga nr.123/2010. Lýsing vegna breytingar á Aðalskipulagi Árborgar 2020-2036, hefur verið kynnt almenningi frá 8.febrúar 2024, til og með 29 febrúar 2024. Samhliða var lýsing kynnt vegna sambærilegrar breytingar á gildandi aðalskipulagi Flóahrepps 2017-2029. Tillagan hefur verið kynnt í samræmi við 2. mgr. 30.gr. skipulagslaga, frá 13. mars til og með 3. apríl 2024, í báðu sveitarfélögum. Í breytingunni felst breytt lega raflínu innan aðalskipulags Árborgar og Flóahrepps. Landsnet ráðgerir að Selfosslína 1 (66 kV) verði tekin niður á kaflanum frá núverandi tengivirki á Selfossi að mastri nr. 99 sem er norðan við Hellisskóg, norðan Ölfusár. Í staðinn verði lagður 132 kV jarðstrengur. Nýr jarðstrengur mun í megindráttum fylgja nýrri legu Suðurlandsvegar norðaustan við Selfoss og fara um nýja brú yfir Ölfusá, fylgir þaðan Ölfusá til norðurs. Áætluð lengd jarðstrengs frá tengivirki á Selfossi að mastri nr. 99 er um 3,1 km. Núverandi háspennulína og fyrirhugaður jarðstrengur liggja um Sveitarfélagið Árborg og Flóahrepp. Breytingin nær til þéttbýlis á Selfossi og dreifbýlis beggja vegna Ölfusár, norðan og austan við Selfoss. Breytingin nær einnig til dreifbýlis í Flóahreppi. Í breyttri tillögu Aðalskipulags Árborgar 2020-2036, eftir kynningu, er gert ráð fyrir að strengurinn muni fara í jörðu norðan við Austurveg (var áður við Larsenstræti) frá Spennavirkishúsi Landsnets og til norðurs, austan við hreppamörk Flóahrepps. Til skoðunar er í samráði við Vegagerðina, að strenglega verði þar færð nær nýjum Suðurlandsvegi, þ.e. meðfram hringtorgi því er beinir umferð niður á núverandi hringtorg austast á Austurvegi. Framkvæmdin er tilkynningarskyld til Skipulagsstofnunar sem ákvarðar um matsskyldu, sbr. tl. 13.02 í viðauka 1 í lögum um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. Samhliða aðalskipulagsbreytingu verður unnin matstilkynning og send til Skipulagsstofnunar.
Skipulagsnefnd Árborgar samþykkti tillögu að breytingu á gildandi Aðalskipulagi Árborgar 2020-2036, dags. 7.4.2024, í samræmi við 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr.123/2010 og mælist til við bæjarstjórn Árborgar að samþykkja tillöguna í samræmi við ofangreindar grein skipulagslaga, og feli skipulagsfulltrúa að leita heimildar Skipulagsstofnunar, til að auglýsa hana í samræmi við 1.mgr, 31. gr. skipulagslaga. Skipulagsfulltrúa verði falið að leita umsagna frá eftirtöldum stofnunum: Skipulagsstofnun, Umhverfisstofnun, Minjastofnun Íslands, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, Vegagerðinni, Veðurstofu Íslands, Náttúrufræðistofnun Íslands, Skógræktarfélagi Selfoss, auk Lands og Skóga.
6. 2307062 - Eyravegur 40 - Deiliskipulag
Tillaga frá 26. fundi skipulagsnefndar, frá 10. apríl, liður 7. Eyravegur 40 - Deiliskipulag.
Afgreiðslu málsins var frestað á fundi bæjarstjórnar Árborgar 3. apríl sl.. Í inngangi máls var prentvilla sem snéri að hæð húsa og hefur verið leiðrétt, auk þess sem skýrar er kveðið að orði varðandi dvalarsvæði á þakgarði. Larsen Hönnun, f.h. lóðarhafa leggur fram tillögu að deiliskipulagi fyrir íbúðir á lóðinni Eyravegur 40. Lóðin sem er 2605m2 að stærð, er skilgreind í Aðalskipulagi Árborgar 2020-2036 sem Miðsvæði, M6. Gert er ráð fyrir fjölbýlishúsi á lóð með nýtingarhlutfalli allt að 1.7. Tillagan gerir ráð fyrir byggingu allt að 30-35 íbúða. Fjöldi hæða verði frá 3-5, og hámarkshæð húss allt að 15 metrar. Nýtingarhlutfall allt að 1,7 og bílastæði allt að 40. Auk þess er möguleiki á byggingu kjallara.
Skipulagsnefnd samþykkti tillögu að deiliskipulagi í samræmi við 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, og mæltist til að bæjarstjórn Árborgar samþykkti tillöguna, og feli skipulagsfulltrúa að auglýsa tillöguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga, að teknu tilliti til nýrrar samþykktar Sveitarfélagsins Árborgar um samningsákvæði vegna aukins byggingarréttargjalds/byggingarmagns og nýtingarhlutfalls. Axel Sigurðsson vék af fundi skipulagsnefndar við afgreiðslu málsins.
7. 2403342 - Skipulagsgátt - Selfosslína 1 nr 324-2024 - tilkynning á framkvæmd
Umsagnarbeiðni um mál nr. 0324/2024 - Selfosslína 1, breyting, tilkynning um framkvæmd.
Fyrir liggur umsagnarbeiðni úr Skipulagsgátt frá Skipulagsstofnun um mál nr. 0324/2024, Selfosslína 1, breyting á Aðalskipulagi Árborgar 2020-2024, tilkynning um framkvæmd (tilkynning til ákvörðunar um matsskyldu). Borist hefur beiðni frá Skipulagsstofnun, þar sem óskað er umsagnar vegna tilkynningar Landsnets, um ákvörðun um matskyldu á grundvelli 20.gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr.111/2021, vegna áforma Landsnets um að koma Selfosslínu I, í jörðu innan Sveitarfélagsins Árborgar.
Óskað er eftir að í umsögn komi fram eftir því sem við á, hvort Sveitarfélagið Árborg telji að nægjanlega sé gerð grein fyrir framkvæmdinni, umhverfi hennar, umhverfisáhrifum, mótvægisaðgerðum og eða vöktun eftir því sem við á. Jafnframt hvort og þá hvaða atriði umsagnaraðili telur þurfa að skýra frekar og hvort þau kalli að hans mati á að framkvæmdin fari í umhverfismat að teknu tilliti til viðmiða í 2. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Jafnframt skal í umsögn gera grein fyrir leyfum sem framkvæmdin er háð og eru á starfssviði umsagnaraðila.
8. 2205259 - Kosning í embætti og nefndir 2022 - 2026
Breyting á fulltrúum B-lista í bæjarstjórn, fræðslu- og frístundanefnd og velferðarnefnd.
Breyting á fulltrúum B-lista í fulltrúarráð Héraðsnefndar Árnesinga.
Breyting á fulltrúum B-lista á aðalfundi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, og Bergrisans bs.
9. 2205259 - Kosning í embætti og nefndir 2022 - 2026
Kosning í kjördeildir
10. 2206157 - Fundartími bæjarstjórnar kjörtímabilið 2022-2026
Lagt er til að næsti fundur bæjarstjórnar verði 8. maí.
Fundargerðir
11. 2403020F - Skipulagsnefnd - 25
25. fundur haldinn 18. mars.
12. 2403029F - Eigna- og veitunefnd - 29
29. fundur haldinn 26. mars.
13. 2403027F - Bæjarráð - 81
81. fundur haldinn 4 apríl.
14. 2404006F - Bæjarráð - 82
82. fundur haldinn 11. apríl.
15. 2403023F - Skipulagsnefnd - 26
26. fundur haldinn 10. apríl.
16. 2404010F - Bæjarráð - 83
83. fundur haldinn 18. apríl.
Fjóla St. Kristinsdóttir bæjarstjóri