Endurbætur á sundlaug Stokkseyrar
Framkvæmdir eru að hafnar við viðhald og endurbætur á sundlaugakari í sundlaug Stokkseyrar. Vonir standa til að verkinu verði lokið snemma í sumar en veður gæti sett strik í reikninginn.
Ljóst er að karið er verr farið en vonast var til og þar sem framkvæmdir eru mjög háðar veðri er óljóst um framgang þeirra. Áætlanir gera ráð fyrir að hægt verði að opna í byrjun sumars og rétt að halda í bjartsýnina og vonast eftir velvild veðurguðanna. Frekari frétta af stöðu mála er að vænta þegar líður á vorið.