Kjörskrá | Forsetakosning 2024
Kjörskrá fyrir Sveitarfélagið Árborg vegna forsetakosninga 1. júní 2024 liggur frammi í þjónustuveri í Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi.
Frá og með föstudeginum 10. maí 2024 til kjördags mun kjörskrá liggja frammi í þjónustuveri í Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi.
Opnunartími þjónustuvers er alla mánudaga – fimmtudaga kl. 9:00 – 15:00 og föstudaga frá kl. 9:00 - 12:00.
Rafræn kjörskrá
Athygli er einnig vakin á rafrænni kjörskrá á www.kosning.is þar sem kjósendur geta kannað hvar þeir eru á kjörskrá.