Nýráðinn sviðstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs Árborgar
Þórdís Sif Sigurðardóttir hefur verið ráðin sem bæjarritari og sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs hjá Sveitarfélaginu Árborg.
Þórdís Sif er með BSc próf í viðskiptalögfræði og meistarapróf í lögfræði. Þórdís Sif hefur langa og víðtæka reynslu af því að starfa við stjórnsýslu sveitarfélaga, hún starfaði í sjö ár sem bæjarritari og sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs Ísafjarðarbæjar ásamt því að hafa starfað sem sveitarstjóri Borgarbyggðar og nú síðast Vesturbyggðar.
Þórdís Sif hefur störf hjá sveitarfélaginu í júní.