Regluleg hreinsun rotþróa og annarra hreinsivirkja
Rotþróargjald var tekið upp um áramótin 2023/2024 og kemur það fram á álagningarseðlum þeirra sem reka eigin hreinsivirki eins og rotþró.
Gjaldinu er ætlað að standa undir kostnaði við reglulega hreinsun á seyru úr rotþróm og verða öll hreinsivirki losuð á 3ja ára fresti. Skylt er að safna seyru og koma í veg fyrir skaðleg áhrif vegna notkunar hennar á umhverfið og heilsu almennings. Reglugerð um meðhöndlun seyru er nr. 799/1999.
Búið er að skipta svæðum í Árborg upp í þrjá hluta. Það eru um 250 aðilar sem eiga að vera með rotþró í sveitarfélaginu.
Hreinsunin skiptist gróft svona milli svæða:
- Árið 2024 verður hreinsað í Tjarnarbyggð
- Árið 2025 verður hreinsað á Votmúlasvæðinu og Selfossi
- Árið 2026 verður hreinsað í dreifbýli Eyrarbakka og Stokkseyrar
Einnig munu íbúar geta sjálfir flett upp hvernær rotþróin var losuð síðast hjá þeim. Losun á seyru fer fram á sumrin og verður það kynnt á heimasíðu Árborgar þegar hreinunin mun fara fram. Sjá nánar reglur og samþykktir er varða fráveitur og eigin hreinsivirki hér að neðan:
Samþykkt um fráveitu í Árborg nr. 1403/2023 gildir um um uppbyggingu og rekstur fráveitna, og nær til allra fasteigna íbúðarhúsnæðis, stofnanna og atvinnustarfssemi í sveitarfélaginu samanber 1 gr. samþykktarinnar.
Kröfur um söfnun, hreinsun og losun frárennslis byggja á lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, reglugerðum um fráveitur og skolp, um meðhöndlun seyru, um varnir gegn mengun vatns og um varnir gegn mengun grunnvatns.
Í dreifbýli þar sem fráveita sveitarfélagsins nær ekki til skulu húseigendur leiða frárennsli húsa um hreinsivirki. Húseigandi skal kosta niðursetningu hreinsivirkja og lagna svo og viðhald þeirra.
Sveitarfélagið annast alla meðferð seyru í sveitarfélaginu í samræmi við reglugerð um meðhöndlun seyru
Hreinsivirki skal hreinsa og tæma eftir þörfum, og eigi sjaldnar en þriðja hvert ár. Hreinsunin fer fram á vegum sveitarfélagsins eða þess aðila sem falin er framkvæmd verksins.
Fyrir hreinsun og tæmingu á rotþró og förgun seyru skal húseigandi greiða gjald sem stendur undir útlögðum kostnaði sveitarfélagsins vegna verksins.