Framkvæmdasjóður ferðamannastaða
Er ferðamannastaður á landinu þínu?
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila.
Sjóðnum er heimilt að fjármagna framkvæmdir er snúa að:
- Öryggi ferðamanna.
- Náttúruvernd og uppbyggingu.
- Viðhaldi og verndun mannvirkja og náttúru.
- Fjármögnun undirbúnings- og hönnunarvinnu sem er nauðsynleg vegna áðurgreindra framkvæmda.
Verkefni sem sett eru inn í gildandi áfangastaðaáætlun landshlutans njóta sérstakrar stigagjafar til viðbótar annarri stigagjöf.
Hafðu samband við þitt sveitarfélag ef þú vilt bæta öryggi, vernda náttúru og mannvirki eða bæta aðstöðu fyrir ferðamenn á þínu landi. Þau hjálpa þér að koma staðnum inn á Áfangastaðaáætlun Suðurlands ef við á, og leiðbeina þér um næstu skref.
Þú getur einnig óskað eftir samtali við Markaðsstofu Suðurlands með því að senda póst á vala@south.is.
Umsóknartímabil um styrki vegna framkvæmda á árinu 2024 er frá og með 11. september 2023 til kl. 13 fimmtudaginn 19. október 2023.