Iðjuþjálfi óskast í Árborg
Fjölskyldusvið Árborgar auglýsir starf í félagslegri stuðningsþjónustu laust til umsóknar.
Spennandi framþróun er í málaflokknum og því bætum við í starfshópinn. Um er að ræða 75% starfshlutfall í dagvinnu.
Í sveitarfélaginu, þar sem búa rúmlega 11 þúsund manns, er lögð áhersla á þverfaglegt samstarf og framsækið starf í velferðar-, frístunda- og skólaþjónustu.
Fjölskyldusvið sinnir fjölbreyttri og þverfaglegri þjónustu við íbúa Árborgar með snemmtækan stuðning að leiðarljósi.