Norræna félagið 100 ára
Þann 29. september 2022 verða liðin 100 ár frá stofnun Norræna félagsins á Íslandi.
Norræna félagið á Íslandi vill vekja athygli á Degi Norðurlandanna sem verður haldinn hátíðlegur 23. mars nk. með fjölbreyttri dagskrá.
Norrænu félögin eiga rót sína að rekja til hugsjóna og stefnu sem uppi var á Norðurlöndunum í lok 19. aldar. Skandinavisminn var stjórnmálahreyfing sem boðaði sameiningu eða stóraukið samstarf landanna byggt á sameiginlegri menningu þeirra og sögu.
Í byrjun 20. aldar var stjórnmálaástandið í Evrópu mjög ótryggt sem varð m.a. til þess að konungar Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar ákváðu að efna til formlegs samstarfs milli ríkjanna.