2. 1911001 - Undirbúningur vegna nýrra byggingalóða
Lagt er til að hafinn verði skoðun á því hvort hægt sé að skipuleggja íbúðabyggð á opnu svæði vestan Sunnulækjarskóla og á opnu svæði við Aðaltjörn og Langholt.
Kynntar voru hugmyndir um nýjar byggingarlóðir á Selfossi, annars vegar vestan við Sunnulækjaskóla og hins vegar á opnu svæði við Aðaltjörn og Langholt. Lögmönnum Suðurlands falið að vinna málið áfram og skila niðurstöðum fyrir bæjarráðsfund 5. desember nk. Samþykkt með 2 atkvæðum og fulltrúi D-lista greiddi atkvæði á móti.
Skýrsla frá Landform um tillögu að verndarsvæði í byggð á Eyrarbakka - Húsakönnun.
Fjármálastjóra er falið að óska eftir styrk til verkefnisins.
4. 1911011 - Styrkbeiðni - Rökkur og aðventuverkefni á Eyrarbakka
Styrkbeiðni frá Bakkastofu, dags. 1. nóvember, þar sem óskað er eftir kostun við þjóðmenningarverkefnisins Ljós og jólavættir.
Bæjarráð þakkar áhugavert frumkvæði vegna "þjóðmenningarverkefnisins Ljós og jólavættir" og samþykkir erindið. Verkefninu er vísað til úrvinnslu hjá Mannvirkja- og umhverfissviði.
5. 1911020 - Umsögn - frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011 um fjölda fulltrúa í sveitarstjórn
Lagt fram til kynningar.
6. 1910304 - Útflutningur á sorpi til brennslu
Lagður var fram samningur um móttöku á almennum blönduðum úrgangi til orkuendurvinnslu. Samningurinn tekur gildi við undirritun og er ótímabundinn og uppsegjanlegur af hálfu beggja aðila með 6 mánaða fyrirvara. Bæjarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti.
Fundargerðir
7. 1910014F - Eigna- og veitunefnd - 12
12. fundur haldinn 30. október.
8. 1911001F - Frístunda- og menningarnefnd - 1
1. fundur haldinn 4. nóvember.
Bæjarráð býður nýrráðin forstöðumann sundlaugarinnar, Magnús Gísla Sveinsson velkominn til starfa.
Fundargerðir til kynningar
9. 1708133 - Undirbúningur að byggingu skóla í Björkurstykki