Tónlistarbekkir
Tónlistarbekkir er verkefni sem þróað er af Ingu Margrét Jónsdóttir og er hrundið af stað til að gera tónlistarsögu Árborgar sýnilega og aðgengilega fyrir almenning.
Árborg hefur í gegnum tíðina gefið af sér hæfileikaríkt tónlistarfólk sem hefur látið af sér kveða í íslensku tónlistarlífi
Tónlistarbekkirnir vekja athygli á þessu listafólki og tónlistararfi Árborgar á skemmtilegan og heilsueflandi hátt.
Þeir listamenn sem koma fram á Tónlistarbekkjum í Árborg eru Benny Crespo´s Gang, Kiriyama Family, Kristjana Stefánsdóttir, Mánar, Skítamórall og Steini Spil.
Fáið ykkur göngutúr, hlaupið eða hjólið á milli og njótið góðrar tónlistar úr ykkar heimabyggð.