Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Ungmennahús

Ungmennahús Pakkhús
Aðsetur: Austurvegi 2B | 800 Selfoss
Sími: 480 1951
Umsjónarmaður: Ellý Tómasdóttir | elly.t@arborg.is

Pakkhúsið er ungmennahús á vegum Árborgar sem stofnað var þann 1. desember 2008. Í starfi Pakkhússins er unnið út frá hugmyndafræði sem byggir á ungmennalýðræði og tryggir áhrif ungmenna í starfinu. Áhersla er lögð á samvinnu, virðingu, lýðræðisvitund, valdeflingu, samfélagslega virkni og þátttöku. Síðast en ekki síst er verið að vinna að forvörnum og skýr afstaða er tekin gegn neyslu vímuefna.

Húsið er hugsað sem samkomustaður fyrir ungt fólk á aldrinum 16 - 25 ára þar sem þau fá tækifæri til að koma hugmyndum sínum á framfæri og í framkvæmd, vinna að áhugamálum sínum og fást við skemmtileg verkefni.

Markmið Pakkhússins er að bjóða ungu fólki upp á jákvætt félagslegt umhverfi þar sem þau geta komið saman með jafnöldrum sínum. Í húsinu er þráðlaus netaðgangur og geta gestir fengið afnot af tölvum. Hægt er elda sér mat í eldhúsinu okkar, fletta blöðum, skella sér í pool, horfa á sjónvarpið eða spila spil eða tölvuleiki í góðra vina hópi. 

Einnig erum við með æfinga- og upptökuhljóðver fyrir unga tónlistarmenn sem hægt er að fá afnot af með því að setja sig í samband við starfsmenn hússins. Auk þess eru reglulega haldnir ýmsir viðburðir í húsinu á vegum starfsmanna og geta ungmenni búsett í Árborg komið með óskir um að fá að halda viðburð eftir eigin höfði.

Einnig er sjálfsagt að nýta húsið fyrir utanaðkomandi starfsemi, til dæmis frá félögum eða samtökum sem skipuð eru ungu fólki.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica