Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 53

Haldinn í gegnum fjarfundarbúnað,
11.11.2020 og hófst hann kl. 08:10
Fundinn sátu: Guðmundur Gestur Þórisson f.h. slökkviliðsstjóra,
Sveinn Pálsson byggingafulltrúi, Sigurður Andrés Þorvarðarson skipulagsfulltrúi, Leifur Stefánsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Arnar Jónsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Puja Acharya fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Sölvi Leví Gunnarsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði.
Fundargerð ritaði: Sveinn Pálsson, byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Erindi til kynningar
1. 2011047 - Tilkynning um framkvæmd - Björkurstekkur 1b
HS-Veitur hf. tilkynna um uppsetningu spennistöðvar.
Framkvæmdin fellur undir gr. 2.3.5 í byggingarreglugerð, staflið j. Smáhýsi veitna og er í samræmi við skipulagsáætlanir.

Framkvæmdaaðila hefur verið tilkynnt um yfirferð byggingarfulltrúa.
2. 2011046 - Tilkynning um framkvæmd - Austurvegur 2c
HS-Veitur tilkynna um uppsetningu spennistöðvar.
Framkvæmdin fellur undir gr. 2.3.5 í byggingarreglugerð, staflið j. Smáhýsi veitna og er í samræmi við skipulagsáætlanir.

Framkvæmdaaðila hefur verið tilkynnt um yfirferð byggingarfulltrúa.
Almenn afgreiðslumál
3. 2011001 - Heiðarstekkur 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
A hús ehf. sækir um leyfi til að byggja 10 íbúða fjölbýlishús.
Brúttóstærðir 1.027,5 m2 og 3.750,2 m3.

Framkvæmd samræmist ekki ákvæðum í greinargerð deiliskipulags t.d. gr.5.1, 5.6.1 og 5.6.3. Deiliskipulag gerir ráð fyrir fjölbýlishúsi á 3 hæðum á lóðinni.

Erindinu hafnað.
4. 2011007 - Hraunhella 5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Larsen hönnun og ráðgjöf sækir um leyfi til að byggja einbýlishús með bílgeymslu.
Brúttóstærðir 323,5 m2 og 1.357,2 m3.

Fyrir liggja gögn skv. byggingarreglugerð gr. 2.4.1

Samþykkt að gefa út byggingarleyfi
5. 2011061 - Gagnheiði 21 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Larsen hönnun og ráðgjöf ehf. sækir um leyfi til að byggja tvö iðnaðar/geymslu hús.
Brúttóstærðir:
Mhl 01 7 bil, 560 m2 og 2.445,0 m3
Mhl 02 8 bil, 635 m2 og 2.774,8 m3

Fyrir liggja gögn skv. byggingarreglugerð gr. 2.4.1

Byggingaráform samþykkt.

Byggingarleyfi verður gefið út þegar ábyrgðayfirlýsingar iðnmeistara og staðfesting starfsábyrgðar byggingarstjóra liggur fyrir
6. 2010013 - Hulduhóll 7-9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Aðal byggingastjórinn ehf. sækir um leyfi til að byggja parhús úr timbri.
Umsóknin var áður á dagskrá 51. fundar. Byggingaráformin hafa verið grenndarkynnt og fengið afgreiðslu skipulagsnefndar.
Brúttóstærðir: 346,6 m2 og 1775,1 m3.

Fyrir liggja gögn skv. byggingarreglugerð gr. 2.4.1.
Loftræsa þarf lokað rými í sökkli.

Samþykkt að gea út byggingarleyfi
7. 2001429 - Urriðalækur 21 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Eðalbyggingar ehf. sækir um leyfi til að byggja einbýlishús.
Brúttóstærðir 170,2 m2 og 727,1 m3

Fyrir liggja gögn skv. byggingarreglugerð gr. 2.4.1

Samþykkt að gefa út byggingarleyfi
8. 2011104 - Heiðarstekkur 13 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Heimaland ehf. sækir um leyfi til að byggja fjórbýlishús á tveimur hæðum úr forsteyptum einingum.
Brúttóstærðir 353,2 m2 og 1.128,6 m3

Fyrir liggja gögn skv. byggingarreglugerð gr. 2.4.1

Samþykkt að gefa út byggingarleyfi.
9. 2011034 - Norðurgata 3 Tjarnarbyggð - Umsókn um stöðuleyfi
Margrét Katrín Erlingsdóttir sækir um stöðuleyfi fyrir hús, staðsett á plani við hesthús, vegna endurbóta.
Brúttóstærð 26,1 m2.


Samþykkt að veita stöðuleyfi til 12 mánaða.
Gætt verði að a.m.k. 3 m fjarlægð frá næsta húsi.
10. 2008190 - Langholt 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Smáragarður ehf. sækir um leyfi til að byggja vindfang við norðurhlið núverandi verslunarhúss Byko.
Umsóknin var áður á dagskrá 48. fundar. Byggingaráformin hafa verið grenndarkynnt og fengið afgreiðslu skipulagsnefndar.
Brúttóstærðir 100,0 m2 og 630,0 m3.


Fyrir liggja gögn skv. byggingarreglugerð gr. 2.4.1
Byggingaráform samþykkt.

Byggingarleyfi verður gefið út þegar tekið hefur verið tilliti til athugasemda eldvarnareftirlits B.Á. og eftirfarandi liggur fyrir:
- Yfirlit hönnunarstjóra um ábyrgðarsvið einstakra hönnuða
- Ábyrgðaryfirlýsing byggingarstjóra og staðfesting starfsábyrgðartryggingar
- Ábyrgðaryfirlýsingar iðnmeistara.
11. 2008111 - Eyravegur 26 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Rekstur og fjármál ehf. sækir um leyfi til að byggja sérgeymslur ásamt sameiginlegri barnavagnageymslu.
Umsóknin var áður á dagskrá 48. fundar. Byggingaráformin hafa verið grenndarkynnt og fengið afgreiðslu skipulagsnefndar.
Brúttóstærðir 156,2 m2 og 449,1 m3

Fyrir liggja gögn skv. byggingarreglugerð gr. 2.4.1.
Byggingaráform samþykkt. Einnig staðfest fyrri samþykkt um breytta notkun úr gistihúsi í íbúðir.

Byggingarleyfi verður gefið út þegar tekið hefur verið tilliti til athugasemda eldvarnareftirlits og eftirfarandi liggur fyrir:
- Yfirlit hönnunarstjóra um ábyrgðarsvið einstakra hönnuða
- Ábyrgðaryfirlýsing byggingarstjóra og staðfesting starfsábyrgðartryggingar
- Ábyrgðaryfirlýsingar iðnmeistara.
12. 2010314 - Umsagnarbeiðni vegna starfsleyfis vöruafgreiðslu.
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands biður um umsögn vegna útgáfu starfsleyfis vöruafgreiðslu að Austurvegi 69 Selfossi, fastanr. 2185519, mhl 010112.
Óbreytt notkun.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
13. 2009701 - Austurvegur 35 - Beiðni um umsögn vegna starfsleyfis þvottahús
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands biður um umsögn vegna útgáfu starfsleyfis fyrir þvottahús að Austurvegi 35 Selfossi.
Áformuð notkun samræmist samþykktum uppdráttum.

Byggingarfulltrúi leggst gegn útgáfu starfsleyfis þar sem lokaúttekt hefur ekki verið gerð á byggingunni.
14. 2011103 - Blómsturvellir 1 - Beiðni um umsögn vegna starfsleyfis fyrir leikskólann Æskukot
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands biður um umsögn vegna útgáfu starfsleyfis fyrir leikskólann Æskukot á Stokkseyri.
Byggingarfulltrúi leggst ekki gegn endurnýjun starfsleyfis.
15. 2011113 - Suðurbraut 16 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Jean Rémi Chareyre óskar eftir að skrá breytta notkun á húsnæði sínu úr gistiheimili í íbúðarhús.
Brúttóstærðir 177,0 m2 og 577,1 m3

Fyrir liggja breyttir uppdrættir og skráningartafla,
Breytt notkun úr gistihúsi í íbúð samþykkt.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:40 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica