Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Skipulags og byggingarnefnd - 35

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
18.12.2019 og hófst hann kl. 08:10
Fundinn sátu: Sigurjón Vídalín Guðmundsson formaður, Á-lista,
Ari Már Ólafsson nefndarmaður, M-lista,
Sigurður Andrés Þorvarðarson nefndarmaður, S-lista,
Ari B. Thorarensen nefndarmaður, D-lista,
Magnús Gíslason nefndarmaður, D-lista,
Bárður Guðmundsson skipulags- og byggingafulltrúi, Leifur Stefánsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Ásdís Styrmisdóttir fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði.
Fundargerð ritaði: Bárður Guðmundsson, Byggingafulltrúi
Samþykkt var að taka mál nr 1907062 með afbrigðum.


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
2. 1909253 - Samruni spildu úr jörðinni Breiðumýrarholt við íbúðarhúsalóðina Holt 2
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir fyrir sitt leiti stofnun 13,2 ha. lóðarspildu úr Breiðumýrarholti. Einnig samþykkir nefndin fyrir sitt leiti samruna lóðarspildunar við íbúðarhúsalóðina Holt 2.
3. 1911022 - Ósk um umsögn um breytingu á reglugerð í samráðsgátt um mat á umhverfisáhrifum og reglugerð um framkvæmdaleyfi.
Skipulags- og byggingarnefnd tekur undir umsögn Sambands íslenska sveitafélaga.
4. 1912070 - Ósk um breytingu á byggingarreit og fjölgun íbúða við Hraunstekk í Björkulandi.
Hafnað. Skipulags- og byggingarnefnd telur engar forsendur fyrir breytingum á gildandi deiliskipulagi.
5. 1910064 - Fyrirspurn um byggingarleyfi að Heiðarvegi 1 Selfossi, áður á fundi 20 nóvember.
Samþykkt að grenndarkynna erindið fyrir eigendum húsa að Kirkjuvegi 12 og 14 og Heiðarvegi 2, 3 og 4.
6. 1912081 - Umsókn um stöðuleyfi fyrir flugeldaskúr við vestri enda smíðahússins á Stokkseyri.
Umsækjandi: Björgunarfélag Árborgar.
Samþykkt að veita stöðuleyfi til 9. janúar.
7. 1912082 - Umsókn um stöðuleyfi fyrir flugeldaskúr að Árvegi 1 Selfossi.
Umsækjandi: Björgunarfélag Árborgar.
Samþykkt að veita stöðuleyfi til 9. janúar.
8. 1912054 - Tillaga að deiliskipulagi að Heiðarbrún 6-6b Stokkseyri.
Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að ræða við umsækjanda.
10. 1907062 - Fyrirspurn um viðbyggingu að Eyravegi 26 Selfossi, erindið hefur verið grenndarkynnt og engar athugasemdir borist.
Lagt er til við bæjarstjórn að skipulags breytingin verði samþykkt.
Erindi til kynningar
1. 1911001 - Undirbúningur vegna nýrra byggingalóða.
Erindið var lagt fram til kynningar.
Fundargerð
9. 1912004F - Afgreiðslunefnd byggingarfulltrúa - 32

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica