Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 54

Haldinn í gegnum fjarfundarbúnað,
25.11.2020 og hófst hann kl. 08:00
Fundinn sátu: Guðmundur Gestur Þórisson f.h. slökkviliðsstjóra,
Halldór Ásgeirsson f.h. slökkviliðsstjóra varamaður,
Sveinn Pálsson byggingafulltrúi, Sigurður Andrés Þorvarðarson skipulagsfulltrúi, Leifur Stefánsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Puja Acharya fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Sölvi Leví Gunnarsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði.
Fundargerð ritaði: Sigurður A. Þorvarðarson, skipulagsfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2011115 - Laxabakki 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bjarni Unnarsson sækir um leyfi til að byggja íbúðarhús og sambyggða bílgeymslu úr steinsteypu á einni hæð.
Brútóstærðir: 300,5 m2, 1244,4 m3.

Fyrir liggja gögn skv. byggingarreglugerð gr. 2.4.2.
Byggingaráform samþykkt.

Byggingarleyfi verður gefið út þegar tilskildum gögnum hefur verið skilað sbr. gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð.
2. 2011164 - Háheiði 13 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
B.R. Sverrisson ehf. sækir um leyfi til að byggja iðnaðarhús með 10 litlum iðnaðarbilum fyrir smáiðnað. Stálklæddar PIR einingar.
Brúttóstærðir: 971,8 m2, 651,5 m3

Fyrir liggja gögn skv. byggingarreglugerð gr. 2.4.2
Byggingaráform samþykkt með fyrirvara um að gerð verði grein fyrir fjölda bílastæða þar sem hleðsla rafbíla er möguleg sbr. gr. 6.8.1 í byggingarreglugerð.

Byggingarleyfi verður gefið út þegar tilskildum gögnum hefur verið skilað sbr. gr.2.4.4 í byggingarreglugerð.
3. 2011177 - Heiðarstekkur 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bjarg íbúðarfélag sæki um leyfi til að byggja tvö fjölbýlishús og hjólageymslu.
Alls 28 íbúðir.
Brúttóstærðir: 1.943,7 m2 og 5.030,8 m3

Gögn liggja fyrir skv. byggingarreglugerð gr. 2.4.2. Byggingaráform samþykkt með fyrirvara um samþykki byggingarnefndar á hönnun lóðar sbr. gr. 5.6.1 í greinargerð deiliskipulags.

Byggingarleyfi verður gefið út þegar tilskildum gögnum hefur verið skilað sbr. gr.2.4.4 í byggingarreglugerð, með fyrirvara um að brugðist verði við athugasemdum eldvarnareftirlits.
4. 2011170 - Nýibær lóð 8 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Pílatus ehf. sækir um að byggja íbúðarhús úr timbri á einni hæð með innbyggðum bílskúr.
Brúttóstærðir: 175,6 m2, 606,1 m3.

Byggingaráform samþykkt með fyrirvara um að skráningartöflu verði skilað á excel-formi og að teknu tilliti til athugasemda eldvarnareftirlits.

Skila þarf inn gögnum skv. 2.4.4 gr. byggingarreglugerðar áður en byggingarleyfi verður gefið út.
5. 2011213 - Sílalækur 15 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Eggert Guðmundsson sækir um leyfi til að byggja einbýlishús á einni hæð með bílgeymslu með flötu þaki.
Brútóstærðir:253,4 m2, 860,7 m3

Byggingaráform samþykkt með fyrirvara um að brugðist verði við athugasemd eldvarnareftirlits.

Skila þarf inn gögnum skv. 2.4.4 gr. byggingarreglugerðar áður en byggingarleyfi verður gefið út.
6. 2011215 - Hásteinsvegur Sæhvoll - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Valdimar Erlingsson sækir um leyfi til að byggja bílgeymslu úr timbri á lóðinni.
Brúttóstærðir: 60 m3, 211 m3.

Vísað til skipulags- og byggingarnefndar til grenndarkynningar sbr. afgreiðslu nefndarinnar 21. okt. s.l.
7. 2011166 - Byggingarleyfisumsókn - Austurvegur 44
Au44 ehf. óskar eftir breyttri notkun á húsnæði.
Byggingaráform samþykkt með fyrirvara um öryggisúttekt byggingarfulltrúa og eldvarnareftirlits og skil á skráningartöflu.

Byggingarleyfi verður gefið út að lokinni ofangreindri úttekt og skilum á tilskildum gögnum.
8. 2011230 - Móstekkur 41-43 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Jón Ingi Grímsson sækir um leyfi til að byggja parhús á einni hæð úr timbri.
Brúttóstærðir: 197,3 m2, 1687,8 m3

Afgreiðslu frestað. Bregðast þarf við athugasemdum við aðaluppdrætti, og athugasemdum eldvarnareftirlits.
9. 2011155 - Stöðuleyfi - Við enda Háheiðar
Sveitarfélagið Árborg sækir um stöðuleyfi fyrir 4 gáma í Háheiði vegna Unglingalandsmóts UMFÍ 2021
Samþykkt er að veita stöðuleyfi frá 1.12.2020 til 31.07.2021
10. 2011209 - Stöðuleyfi - Hrísmýri 7
Bílanaust sækir um stöðuleyfi fyrir 40' vörugám til geymslu á vörubirgðum.
Samþykkt að veita stöðuleyfi til 01.05.2021 með fyrirvara um að staðsetning verði í samráði við byggingarfulltrúa.
11. 2011159 - Rekstrarleyfisumsögn - Túngata 9
Sýslumaðurinn á Suðurlandi biður um umsögn vegna útgáfu rekstrarleyfis til sölu gistingar í flokki II að Túngötu 9.
Afgreiðslu frestað.
12. 2011160 - Norðurhólar 1 - Umsagnarbeiðni vegna starfsleyfis Baulu
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands biður um umsögn vegna útgáfu starfsleyfis fyrir íþróttahúsið Baulu.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við útgáfu starfsleyfis.
13. 2011227 - Norðurhólar 3 - Umsagnarbeiðni vegna starfsleyfis fyrir leikskólann Jötunheima
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands biður um umsögn vegna útgáfu starfsleyfis fyrir leikskólann Jötunheima.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við útgáfu starfsleyfis.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:15 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica