Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Skipulags og byggingarnefnd - 17

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
03.04.2019 og hófst hann kl. 08:10
Fundinn sátu: Sigurjón Vídalín Guðmundsson formaður, Á-lista,
Ari Már Ólafsson nefndarmaður, M-lista,
Sigurður Andrés Þorvarðarson nefndarmaður, S-lista,
Ari B. Thorarensen nefndarmaður, D-lista,
Magnús Gíslason nefndarmaður, D-lista,
Bárður Guðmundsson skipulags- og byggingafulltrúi, Ástgeir Rúnar Sigmarsson aðstoðarbyggingafulltrúi, Stefán Guðmundsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði.
Fundargerð ritaði: Bárður Guðmundsson, Byggingafulltrúi
Ástgeir Rúnar Sigmarsson ritaði fundargerð.
Leitað var afbrigða til að taka á dagskrá tvö mál, umsögn um starfsleyfi og deiliskipulag að Austurvegi milli Sigtúns og Fagurgerðis.


Dagskrá: 
Erindi til kynningar
1. 1903128 - Viðauki við landsskipulagsstefnu 2015-2026
Erindi lagt fram til kynningar.
2. 1704004 - Deiliskipulagstillaga fyrir Grænuvelli og nágrenni. Erindi frá Runólfi Sigursveinssyni og Ragnheiði Thorlacius lagt fram til kynningar.
Bréf lagt fram til kynningar. Skipulags- og byggingarfulltrúa gerði grein fyrir stöðu mála.
Almenn afgreiðslumál
3. 1903181 - Beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfis til sölu gistingar í flokki II að Jórutúni 6 Selfossi. Umsagnaraðili: Sýslumaðurinn á Suðurlandi.
Samþykkt að grenndarkynna erindið fyrir eigendum að Jórutúni 2, 4, 8 og 10.
4. 1810011 - Beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfis til sölu gistingar í flokki II að Túngötu 9 Eyrarbakka. Umsagnaraðili: Sýslumaðurinn á Suðurlandi.
Frestað, skipulags- og byggingarfulltrúa falið að ræða við umsækjanda.
5. 1903278 - Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna lagningu ljósleiðara. Umsækjandi: Míla ehf.
Lagt er til við bæjarráð að framkvæmdarleyfið verði samþykkt. Allur frágangur við jarðrask verði í samræmi við reglur framkvæmda- og veitusviðs.
6. 1903222 - Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna lagningu ljósleiðara. Umsækjandi: Gagnaveita Reykjavíkur ehf.
Lagt er til við bæjarráð að framkvæmdarleyfið verði samþykkt. Allur frágangur við jarðrask verði í samræmi við reglur framkvæmda- og veitusviðs.
7. 1903305 - Framkvæmdaleyfisumsókn vegna dæluhúsa í landi Hellis. Umsækjandi: Vatnsveita Árborgar
Lagt er til við bæjarráð að framkvæmdarleyfið verði samþykkt.
8. 1903225 - Umsókn um byggingaleyfi fyrir byggingu torfbæjar að Bankavegi 8 Selfossi. Umsækjandi: Sigfús Kristinsson.
Erindinu vísað til endurskoðunar deiliskipulags svæðisins.
9. 1804263 - Afgreiðsla á grenndarkynningu vegna umsóknar um byggingaleyfi fyrir viðbyggingu að Lyngheiði 11 Selfossi. Engar athugasemdir bárust.
Lagt er til við bæjarráð að skipulagsbreytingin verði samþykkt.
10. 1903236 - Umsókn um stöðuleyfi fyrir 3 svefngáma að Háheiði 7 Selfossi. Umsækjandi: IB ehf.
Óskað er eftir samþykki meðeigenda og umsagnar eldvarnareftirlits og heilbrigðiseftirlits.
11. 1904001 - Fyrirspurn frá Kristni Óskarssyni um byggingu bíslags að Eyrarbraut 17 Stokkseyri.
Óskað er eftir fullunnum aðaluppdráttum til grenndarkynningar og umsagnar Minjastofnunar.
12. 1811085 - Afturköllun á úthlutun lóðarinnar að Larsenstræti 12 Selfossi.
Nefndin samþykkir að afturkalla úthlutun lóðarinnar Larsenstræti 12.
13. 1903287 - Umsókn um stækkun á byggingareit og aukið nýtingarhlutfall byggingareits að Sílalæk 15 Selfossi. Umsækjandi: Bent Larsen fyrir hönd lóðarhafa.
Frestað. Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að ræða við umsækjanda.
14. 1903304 - Fyrirspurn til bygginganefndar um breytingu á byggingareit að Hellismýri 2 Selfossi. Fyrirspyrjandi: Iron Fasteignir ehf.
Samþykkt að grenndarkynna erindið fyrir eigendum að Hellismýri 1, 3, 4, 5, 6 og 8 og Breiðamýri 1 og 3
15. 1903224 - Ósk um breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Selfoss. Fyrirspyrjendur: Knútsborgir ehf.
Frestað. Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að afla frekari gagna.
16. 1903302 - Tillaga að reglum um leyfisveitingar vegna reksturs gistiheimila í Sveitarfélaginu Árborg.
Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að afla frekari gagna.
17. 1810115 - Tillaga um endurskoðun aðalskipulags Árborgar 2010-2030
Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að ljúka við gerð útboðsgagna á grundvelli fyrirliggjandi draga og leggja fyrir næsta fund.
18. 1903010F - Afgreiðslunefnd byggingarfulltrúa - 16
19. 1904028 - Lýsing deiliskipulag við Austurveg milli Sigtúns og Fagurgerðis.
Lagt er til við bæjarstjórn að lýsingin verði auglýst og kynnt.
20. 1903138 - Beiðni um umsögn vegna starfsleyfi að Hrísholti 17 Selfossi. Umsagnaraðili: Heilbrigðiseftirlit Suðurlandis
Samþykkt að grenndarkynna erindið fyrir Hrísholti 18, 19 og 20.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica