Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 95

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
06.07.2022 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Puja Acharya fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Sölvi Leví Gunnarsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Guðjón Birkir Birkisson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Þórarinn Magnússon f.h. slökkviliðsstjóra varamaður.
Fundargerð ritaði: Sölvi Leví Gunnarsson, Aðstoðar byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2206289 - Björkurstekkur 69 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason sækir um byggingaráform og byggingarleyfi f.h.
Ingólf Snorrason fyrir einbýli byggðu úr timbri.
Helstu stærðir 190,7m² 810,9m³

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að deili verði lagfærð. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
2. 2109436 - Eyrargata 21 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Þorgeir Jónsson sækir um byggingaráform og byggingarleyfi f.h.
Aðalbjörn Jóakimsson fyrir einbýli byggðu úr timbri.
Helstu stærðir 136,9² 313,5³

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að teikningar verði lagfærðar í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og eldvarnareftirlits. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
3. 2206398 - Hulduhóll 15 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason sækir um byggingaráform og byggingarleyfi f.h.
Aðalbyggingarstjórann fyrir einbýli byggðu úr steypu.
Helstu stærðir 242,3m² 952,5m³

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
4. 2206397 - Tryggvagata 25 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Ingvar Bjarnason sækir um byggingaráform og byggingarheimild f.h.
BYKO fyrir 2 sumarbústuðum byggðir úr timbri.
Helstu stærðir 20m² 63,9m³ hvor um sig.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
5. 2206361 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi - Engjavegur 30
Sigurður Ingi Ásgeirsson tilkynnir um samþykki á byggingaráformum á skjólvegg allt að 1,8m. Samþykki liggur fyrir frá eigendum Engjaveg 28 og Mánaveg 5 & 7
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við áformin enda liggur samþykki nágranna fyrir.
6. 2207009 - Vörðuland 12 -Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Eigendur að Vörðulandi 12 tilkynnir um samþykki á byggingaráformum á skjólvegg allt að 1,8m. Samþykki liggur fyrir frá eigendum Vörðulandi 5
Erindinu er vísað til samráðsfundar Mannvirkja og umhverfissviðs.
7. 2207010 - Urriðalækur 16 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Eigendur að Urriðalæk óska eftir samþykki Sveitarfélagsins á byggingaráformum á skjólvegg allt að 1,8m.
Erindinu er vísað til samráðsfundar Mannvirkja og umhverfissviðs.
8. 2207040 - Grænuvellir 2 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Jón Sigurðsson tilkynnir um samþykki á byggingaráformum fyrir smáhýsi. Samþykki liggur fyrir frá eigendum Fagurgerði 9.
Erindinu frestað vegna ófullnægjandi staðsetningar gagna
9. 2207057 - Stöðuleyfi - Réttarholt 1
Tryggvi Skjaldarsson óskar eftir stöðuleyfi fyrir 20 feta gám við hlið bílskúrsins að Réttarholti 1
Byggingarfulltrúi samþykkir að gefa út stöðuleyfi fyrir gáminn í 6 mánuði
10. 2207008 - Ásgautstaðir - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Matfugl ehf.
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna umsóknar Sveins Vilberg Jónssonar fyrir hönd Matfugls ehf. um endurnýjun á starfsleyfi fyrir einangrunarstöð alifugla að Ásgautsstöðum, Stokkseyri
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi og samþykktri notkun fasteignarinnar og gerir ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
11. 2206109 - Eyrarvegur 1d - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir veitingastaðinn Friðriksgáfa
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna umsóknar Elísabetar Guðlaugsdóttur fyrir hönd E&S ehf. um starfsleyfi fyrir rekstur veitingarstaðar að Eyravegi 1d, Selfossi var áður tekið á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa númer 94.
Byggingarfulltrúi veitir jákvæða umsögn með fyrirvara á að öryggisþættir hafa verið lagfærðir frá úttekt sem fór fram þann 04.Júní síðastliðinn.
12. 2206139 - Rekstrarleyfisumsögn - Eyravegur 1D - Friðriksgáfa og Sviðið
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna umsóknar Elísabetar Guðlaugsdóttur fyrir hönd E&S ehf. um rekstrarleyfi fyrir rekstur veitingarstaðar að Eyravegi 1d, Selfossi. Erindið var áður tekið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 94.
Byggingarfulltrúi veitir jákvæða umsögn með fyrirvara á að öryggisþættir hafa verið lagfærðir frá úttekt sem fór fram þann 04.Júní síðastliðinn.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl.  

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica