Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarstjórn - 36

Haldinn í Grænumörk 5, Selfossi,
12.05.2021 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu: Helgi Sigurður Haraldsson forseti bæjarstjórnar,
Eggert Valur Guðmundsson bæjarfulltrúi, S-lista,
Arna Ír Gunnarsdóttir bæjarfulltrúi, S-lista,
Tómas Ellert Tómasson bæjarfulltrúi, M-lista,
Sigurjón Vídalín Guðmundsson bæjarfulltrúi, Á-lista,
Sveinn Ægir Birgisson varamaður, D-lista,
Brynhildur Jónsdóttir bæjarfulltrúi, D-lista,
Kjartan Björnsson bæjarfulltrúi, D-lista,
Ari B. Thorarensen bæjarfulltrúi, D-lista,
Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri, Helga María Pálsdóttir bæjarritari.
Fundargerð ritaði: Helga María Pálsdóttir, bæjarritari
Í upphafi fundar kallar forseti eftir athugasemdum við útsent fundarboð. Engar athugasemdir eru gerðar.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2101125 - Viðauki við fjárhagsáætlun 2021
Viðauki nr. 5

Rekstur :
Málaflokkur 02 - Félagsþjónusta : Greiðsla miskabóta v/starfsmannamáls

Málflokkur 04 - Fræðslu- og uppeldismál : Aukning á stöðugildum í leikskólum skv. ákvörðun fræðslunefndar

Málaflokkur 31 - Eignasjóður : Söluhagnaður vegna sölu á Kirkjuvegi og söluhagnaður vegna sölu á Vallholti 38

Fjárfesting :
Málaflokkur 31 - Eignasjóður : Umferðar- og samgöngumál:
Árleg endurnýjunarverkefni skv. 10 ára áætlun
Tjarnarstígur Stokkseyri
Suðurhólar framhald að Gaulverjabæjarvegi

Málaflokkur 67 - Fráveita :
Árlegt endurnýjunarverkefni skv. 10 ára áætlun
Tjarnarstígur Stokkseyri
Suðurhólar framhald að Gaulverjabæjarvegi

Málaflokkur 69 - Vatnsveita :
Árlegt endurnýjunarverkefni
Tjarnarstígur Stokkseyri
Suðurhólar framhald að Gaulverjabæjarvegi


Ari B. Thorarensen, D-lista, Tómas Ellert Tómasson, M-lista og Gísli H. Halldórsson, bæjarstjóri taka til máls.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt með 5 atkvæðum. Fjórir bæjarfulltrúa D-lista sitja hjá.
Sveitarfélagið Árborg - viðauki nr. 5 2021.pdf
2. 21044048 - Ársreikningur 2020
Seinni umræða.
Ari B. Thorarensen, D-lista, Gísli H. Halldórsson, bæjarstjóri, Brynhildur Jónsdóttir, D-lista, Kjartan Björnsson, D-lista, Tómas Ellert Tómasson, M-lista, Eggert Valur Guðmundsson, S-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista, Helgi S. Haraldsson, B-lista, Sigurjón Vídalín Guðnundsson, Á-lista og Sveinn Ægir Birgisson, varafulltrúi D-lista taka til máls.
Ársreikningur 2020 er borin undir atkvæði og samþykktur samhljóða með 9 atkvæðum.

Kjartan Björnsson, D-lista leggur fram eftirfarandi bókun f.h. bæjarfulltrúa D-lista:
Bæjarfulltrúar D-lista þakka starfsfólki Sveitarfélagsins Árborgar fyrir vel unnin störf á árinu 2020 við krefjandi aðstæður í miðjum heimsfaraldri.
Þrátt fyrir breytt atvinnuástand vegna heimsfaraldurs hafa tekjur sveitarfélagsins aukist frá árinu 2019 um 638 millj.kr. Það er því dapurlegt að upplifa þá stöðu að Sveitarfélagið Árborg sé rekið með 949,4 millj.kr. tapi árið 2020, sem gerir 2,6 millj.kr. tap á dag.
Útskýringar bæjarstjóra þar sem COVID-19 faraldrinum er kennt um bága stöðu standast ekki, en eru til þess fallnar að rugla íbúa. Ársreikningurinn endurspeglar þann alvarleika sem bæjarfulltrúar D-lista hafa bent á, sem felst í því að aðhalds er ekki gætt í rekstri og að um verulega offjárfestingu er að ræða, þar sem forgangsröðun er ekki í samræmi við skyldur sveitarfélagsins. Aukast því skuldir umtalsvert á sama tíma og hægt og illa gengur að byggja nauðsynlega innviði fyrir lögbundna starfsemi.
Árið 2018 voru skuldir sveitarfélagsins 11.843 millj.kr., en 2020 voru skuldirnar orðnar 15.137 millj.kr. Líklega telst það vera Íslandsmet í skuldsetningu á einungis tveimur árum sem núverandi meirihluti hefur verið við stjórn. Skuldaviðmið sveitarfélagsins fer því hækkandi, þrátt fyrir að breytingar hafi verið gerðar á útreikningi þess og að skuldir Leigubústaða Árborgar teljist ekki lengur með í útreikningum.
Frá árinu 2018 þegar núverandi meirihluti tók við stjórn sveitarfélagsins hafa tekjur A-hluta bæjarsjóðs hækkað um 1.667 millj.kr., en gjöld hækkað um 2.361 millj.kr. Tekjur dugðu ekki fyrir rekstri á árinu 2020 og versnaði afkoma sveitarfélagsins um 900 millj.kr. frá árinu 2018. Yfirlýst markmið nýs meirihluta var að „stoppa lekann“, meintan útgjaldaleka úr bæjarsjóði. Ljóst er að lekabyttan lekur all hressilega.
Sveitarfélagið getur ekki talist rekstrarhæft þar sem það þarf að taka lán fyrir rekstrinum. Sú staða er afar dapurleg þó ekki meiri sé sagt, en þrátt fyrir það fagnar bæjarstjóri því í greinargerð sinni að sveitarfélagið sé á leið í skuldabréfaútboð, sem verulegar líkur eru á að skili hærri vöxtum en Lánasjóður sveitarfélaga getur boðið þeim sveitarfélögum sem uppfylla skilyrði til að vera þar í viðskiptum. Staðan er alvarleg og er ekki útlit fyrir að hún batni á yfirstandandi ári.

Bæjarfulltrúar D lista

Bæjarfulltrúar D-listans

Hlé var gert á fundi kl. 18:12.
Fundi fram haldið kl. 18:18

Eggert Valur Guðmundsson, S-lista leggur fram eftirfarandi bókun f.h. bæjarfulltrúa meirihlutans:

Árið 2020 skók heiminn og hann skelfur enn. Ríkisstjórnir og stórfyrirtæki um allan heim hafa þurft að standa í lappirnar andspænis erfiðum og gjörbreyttum aðstæðum. Hið sama gildir um sveitarfélög á Íslandi, sem fengu það hlutverk að verja sína íbúa og sitt starfsfólk gegn heimsfaraldri og hugsanlegum efnahagsþrengingum.

Meirihluti bæjarstjórnar Árborgar er stoltur af að hafa fengið það hlutverk að leiða viðbrögð sveitarfélagsins á þessum erfiðu tímum, þegar æðruleysi gagnvart aðstæðum er eina leiðin sem í boði er. Á sama tíma hefur meirihlutinn áfram leitt sveitarfélagið í gegnum gríðarlega íbúafjölgun síðustu ára og haft forgöngu um það breytingarferli sem þetta hefur kallað á í starfsemi og þjónustu sveitarfélagsins.

Það er gæfa okkar að starfsfólk sveitarfélagsins hefur sýnt æðruleysi og unnið af röggsemi til að bregðast við síbreytilegum veruleika. Starfsfólk hefur haldið úti eins mikilli þjónustu og mögulegt hefur verið, oft við mikla óvissu um eigið öryggi. Það er á engan hallað þó framlínustarfsfólk okkar í leikskólum Árborgar sé nefnt sérstaklega. Leikskólastarfsfólk á í mjög nánum samskiptum við sína þjónustuþega, yfirleitt án mikilla varna, og hefur haldið úti kraftmiklu starfi í gegnum brimskafla heimsfaraldurs. Af þessum sökum hefur flest starfsfólk leikskóla búið meira og minna við þrúgandi óvissu undanfarið ár ? og slík óvissa reynir á.

Markmið meirihlutans í viðbrögðum við Covid-19 heimsfaraldrinum hefur allan tímann verið að styðja við og styrkja efnahag, samfélag og þjónustu í sveitarfélaginu. Þetta er sama leið og ríkisstjórnir Íslands og margra annarra þjóða hafa farið. Sveitarfélagið hefur axlað byrðar með ríkinu og má þar benda á gríðarlegan niðurskurð Jöfnunarsjóðsframlaga. Sveitarfélagið hefur einnig tekið á sig tekjulækkun og mikinn kostnaðarauka vegna sérstakra eigin aðgerða og utanaðkomandi aðstæðna. Óhætt er að segja að Sveitarfélagið Árborg hafi tekist á við félagsþjónustuverkefni Covid-19 af sérstökum krafti og m.a. starfað mjög náið með ráðuneytum að úrbótaverkefnum, slíkt gerist ekki nema fyrir einbeittan vilja.

Heimsfaraldur Covid-19 hefur af framangreindu leitt til hallaaukningar í ársreikningi upp á hartnær hálfan milljarð. Fjármagnsliðir hækka því til viðbótar verulega, vegna aukinnar verðbólgu og 10% árshækkunar launa, svo nemur 400 milljónum. Önnur sveitarfélög glímdu við sama verkefni og sést það víða með skýrum hætti í ársreikningum þeirra.

Halli á samstæðureikningi Sveitarfélagsins Árborgar árið 2020 er alls 578 milljónir króna. Hægt er að rekja að lágmarki 460 m.kr. til heimsfaraldurs Covid-19 og 200 m.kr. til óvenjulegrar hækkunar í fjármagnsliðum. Án ofangreindra áfalla hefði orðið afgangur af rekstri samstæðu Svf. Árborgar upp á nærri 100 milljónir króna. Það er því án eftirsjár sem meirihluti bæjarstjórnar leggur fram þennan ársreikning 2020, mitt í fjölgun og uppbyggingarferli á innviðum og fjölskylduþjónustu sem ekki á sér samjöfnuð. Við höfum á árinu 2020 gert það sem þurfti að gera, með hagsæld sveitarfélagsins og íbúa þess að leiðarljósi.

Sveitarfélagið Árborg Samantekinn ársreikningur 2020.pdf
Sveitarfélagið Árborg Ársreikningur A-hluta 2020.pdf
Sveitarfélagið Árborg Ársreikningur B-hluta 2020.pdf
Sveitarfélagið Árborg_ Endurskoðunarskýrsla 2020.pdf
Fundargerðir
3. 2103027F - Eigna- og veitunefnd - 43
43. fundur haldinn 14. apríl.
Brynhildur Jónsdóttir, D-lista og Tómas Ellert Tómasson, M-lista taka til máls undir lið nr. 6 - Bygging á nýjum grunnskóla í Björkurstykki.
4. 2104015F - Frístunda- og menningarnefnd - 22
22. fundur haldinn 20. apríl.
Ari B. Thorarensen, D-lista og Gísli H. Halldórsson, bæjarstjóri taka til máls undir lið nr. 1- Frístundamiðstöð-hönnun og framkvæmdir.
5. 2104013F - Fræðslunefnd - 32
32. fundur haldinn 21. apríl.
Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista og Sveinn Ægir Birgisson, D-lista taka til máls undir lið nr. 1-Undirbúningur og framkvæmdir við Stekkjaskóla.
6. 2104003F - Skipulags og byggingarnefnd - 66
66. fundur haldinn 21. apríl.
7. 2104014F - Eigna- og veitunefnd - 44
44. fundur haldinn 21. apríl.
8. 2104021F - Bæjarráð - 112
112. fundur haldinn 29. apríl.
9. 2105001F - Bæjarráð - 113
113. fundur haldinn 6. maí.
Ari B. Thorarensen, D-lista og Tómas Ellert Tómasson, M-lista taka til máls undir lið nr. 6- Eftirlitsmyndavélar innan umdæmis lögreglustjórans á Suðurlandi.
Kjartan Björnsson, D-lista tekur til máls undir lið nr. 10- Eignasala Kirkjuvegur 18.
Brynhildur Jónsdóttir, D-lista og Gísli H. Halldórsson, bæjarstjóri taka til máls undir lið nr. 8- Afstaða Sýslumannsins á Suðurlandi til stöðuumboðs bæjarstjóra Árborgar.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica