Formaður leitaði afbrigða að taka á dagskrá reglur um réttir og fjallferð árið 2020 frá Afréttamálafélagi Flóa og Skeiða. Var það borið undir atkvæði og samþykkt að taka málið á dagskrá.
Dagskrá:
Almenn erindi
1. 2003186 - Leiðrétting á gjöldum leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila vegna Covid-19
Leiðrétting á gjöldum leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila þegar barn er í sóttkví.
Leikskólagjöld verða endurgreidd foreldrum þá daga sem barn mætir ekki í leikskóla vegna sóttkvíar/einangrunar foreldra byggt á fyrirmælum sóttvarnaryfirvalda. Fæðisgjöld á leikskóla verða einnig endurgreidd fyrir þá daga sem barn er heima vegna þessa. Sama fyrirkomulag gildir um gjöld fyrir frístundaheimili og fæði í grunnskólum. Þetta fyrirkomulag gildir til áramóta.
Gjöld falla jafnframt niður ef skóli/frístundaheimili geta ekki veitt barni þjónustu vegna aðstæðna sem upp geta komið vegna Covid-19.
Bæjarráð samþykkir tillöguna.
2. 2009363 - Beiðni um vilyrði fyrir lóð nr. 1 við Smáratún á Selfossi
Beiðni frá Bellahotel ehf, dags. 27. ágúst 2020, þar sem óskað er eftir vilyrði fyrir lóð nr. 1 við Smáratún á Selfossi, undir Sænska Húsið sem nú er staðsett að Austurvegi 33.
Bæjarráð samþykkir að Bellahotel ehf verði veitt vilyrði til 6 mánaða fyrir lóð nr. 1 í því skyni að þar verði "Sænska húsið" staðsett.