Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarstjórn - 37

Haldinn í Grænumörk 5, Selfossi,
09.06.2021 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu: Helgi Sigurður Haraldsson forseti bæjarstjórnar,
Eggert Valur Guðmundsson bæjarfulltrúi, S-lista,
Arna Ír Gunnarsdóttir bæjarfulltrúi, S-lista,
Tómas Ellert Tómasson bæjarfulltrúi, M-lista,
Sigurjón Vídalín Guðmundsson bæjarfulltrúi, Á-lista,
Gunnar Egilsson bæjarfulltrúi, D-lista,
Brynhildur Jónsdóttir bæjarfulltrúi, D-lista,
Kjartan Björnsson bæjarfulltrúi, D-lista,
Ari B. Thorarensen bæjarfulltrúi, D-lista,
Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri, Helga María Pálsdóttir bæjarritari.
Fundargerð ritaði: Helga María Pálsdóttir, bæjarritari
Í upphafi fundar kallar forseti eftir athugasemdum við útsent fundarboð. Engar athugasemdir eru gerðar.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2006031 - Kosning í embætti og nefndir 2021
Kosningar í embætti innan bæjarstjórnar til eins árs.

1. Kosning forseta til eins árs.
2. Kosning 1. varaforseta til eins árs.
3. Kosning 2. varaforseta til eins árs.
4. Kosning tveggja skrifara til eins árs.
5. Kosning tveggja varaskrifara til eins árs.

1. Kosning forseta til eins árs
Lagt er til að Helgi Sigurður Haraldsson, B-lista, verði kosinn forseti bæjarstjórnar til eins árs.

2. Kosning 1. varaforseta til eins árs
Lagt er til að Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista, verði kosin 1. varaforseti til eins árs.

3. Kosning 2. varaforseta til eins árs
Lagt er til að Tómas Ellert Tómasson, M-lista, verði kosinn 2. varaforseti til eins árs.

4. Kosning tveggja skrifara til eins árs
Lagt er til að Sigurjón Vídalín Guðmundsson, Á-lista, og Eggert Valur Guðmundsson, S-lista, verði kosnir skrifarar til eins árs.

5. Kosning tveggja varaskrifara til eins árs
Lagt er til að Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista, og Tómas Ellert Tómasson, M-lista, verði kosin varaskrifarar til eins árs.

Tillögurnar eru bornar undir atkvæði og samþykktar með 7 atkvæðum. 2 bæjarfulltrúar D-lista sitja hjá.
2. 2006031 - Kosning í embætti og nefndir 2021
Kosning þriggja fulltrúa í bæjarráð til eins árs og þriggja til vara sbr. 27. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Árborgar nr. 813/2018 með síðari breytingum 665/2019.
Lagt er til að eftirtaldir verði fulltrúar í bæjarráði.
Aðalmenn:
Eggert Valur Guðmundsson, S-lista
Tómas Ellert Tómasson, M-lista
Gunnar Egilsson, D-lista

Varamenn:
Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista
Guðrún Jóhannsdóttir, M-lista
Kjartan Björnsson, D-lista

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum.
3. 2006031 - Kosning í embætti og nefndir 2021
Kosning í kjörstjórnir til eins árs sbr. A-lið 46. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Árborgar nr. 813/2018 með síðari breytingum 665/2019.
Lagt er til að eftirtaldir verði fulltrúar í kjörstjórn.

1. Yfirkjörstjórn, þrír fulltrúar og þrír til vara.
Aðalmenn:
Ingimundur Sigurmundsson
Steinunn Fjóla Sigurðardóttir
Bogi Karlsson

Varamenn:
Þórarinn Sólmundarson
Anna Ingadóttir
Steinunn Erla Kolbeinsdóttir

2. Undirkjörstjórn 1, þrír fulltrúar og þrír til vara.
Aðalmenn:
Íris Böðvarsdóttir
Gunnar Gunnarsson
Ólafur Bachmann Haraldsson

Varamenn:
Guðmundur Sigmarsson
Hólmfríður Einarsdóttir
Herborg Anna Magnúsdóttir

3. Undirkjörstjórn 2, þrír fulltrúar og þrír til vara.
Aðalmenn:
Sesselja S. Sigurðardóttir
Ingibjörg Jóhannesdóttir
Valdemar Bragason

Varamenn:
Grétar Páll Gunnarsson
Ingveldur Guðjónsdóttir
Gunnar Þorkelsson

4. Undirkjörstjórn 3, þrír fulltrúar og þrír til vara.
Aðalmenn:
Sigríður Anna Guðjónsdóttir
Hafdís Kristjánsdóttir
Jónína Halldóra Jónsdóttir

Varamenn:
Kristjana Hallgrímsdóttir
Magnús Gísli Sveinsson
Ingibjörg Elfa L. Stefánsdóttir

5. Undirkjörstjórn 4, þrír fulltrúar og þrír til vara.
Aðalmenn:
Magnús Jóhannes Magnússon
Inger Schiöth
Brynja Hjálmtýsdóttir í stað Elvars Ingimundarsonar

Varamenn:
Svava Júlía Jónsdóttir
Sigríður Sigurjónsdóttir
Þorgrímur Óli Sigurðsson

6. Undirkjörstjórn 5 (Eyrarbakki), þrír fulltrúar og þrír til vara.
Aðalmenn:
Lýður Pálsson
María Gestsdóttir
Birgir Edwald

Varamenn:
Arnar Freyr Ólafsson
Þórarinn Ólafsson
Arnrún Sigurmundsdóttir

7. Undirkjörstjórn 6 (Stokkseyri), þrír fulltrúar og þrír til vara.
Aðalmenn:
Ingibjörg Ársælsdóttir
Ólafur Már Ólafsson
Ragnhildur Jónsdóttir

Varamenn:
Kristín Þ. Sigurðardóttir
Bjarkar Snorrason
Ingi Þór Jónsson

Tillaga að fulltrúum í kjörstjórnir er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
4. 21051032 - Breyting á kjördeildum í Sveitarfélaginu Árborg
Á 115. fundi bæjarráðs, frá 27. maí, liður 12, var tekin fyrir tillaga um breytingu á kjördeildum í Sveitarfélaginu Árborg.
Íbúum í Sveitarfélaginu Árborg hefur fjölgað mikið á undanförnum árum og af þeim ástæðum er orðið æskilegt að gerðar verði breytingar á kjördeildum. Gott væri að ná niðurstöðu um slíkar breytingar á fundi bæjarstjórnar þann 9. júní næstkomandi þannig að þær taki gildi fyrir komandi alþingiskosningar. Mikilvægt er að breytingar á kjördeildum verði auglýstar mjög vel og tímanlega fyrir kosningar.
Tillaga lögð fram á breytingu á kjördeildum. Bæjarráð vísaði tillögunni til umfjöllunar í yfirkjörstjórn.

Í umsögn yfirkjörstjórnar er lagt til að fyrir komandi Alþingiskosningar verði kjósendur í Sandvíkurhreppi hinum forna skráðir í kjördeild á Stokkseyri, ca. 137 kjósendur og að kjósendur í Tjarnarbyggð sæki kjörstað á Eyrarbakka, tæplega 100 kjósendur. Með því náist betri nýting á starfsmönnum í kjördeildum á ströndinni. Að öðrum kosti þurfi að taka til skoðunar að stofna fimmtu kjördeildina á Selfossi sem hefði í för með sér þörf á frekari mönnun með tilheyrandi kostnaði.

Lagt er til að tillaga yfirkjörstjórnar verði samþykkt.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum.
Umsögn yfirkjörstjórnar til bæjarráðs Árb. 7.6.2021.pdf
5. 2105503 - Beiðni um heimild til að stofna nýjan frístundaklúbb
Tillaga frá 23. fundi frístunda- og menningarnefndar, frá 10. maí sl. liður 3. Beiðni um að stofna nýjan frístundaklúbb. Rætt nánar um tilgang og markmið nýja frístundaklúbbsins en tillagan er lögð fram í kjölfar skýrslu þverfaglegs vinnuhóps á fjölskyldusviði sem kortlagði stöðu barna með fjölþættan vanda í sveitarfélaginu á aldrinum 10-16 ára.

Nefndin lagði til við bæjarstjórn Árborgar að tillaga í fyrirliggjandi minnisblaði um stofnun nýs frístundaklúbbs yrði samþykkt og kostnaðaráætlun lögð fram sem viðauki.

Brynhildur Jónsdóttir, D-lista og Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista taka til máls.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum.
Minnisblað v. Nýs frístundaklúbbs - 7.maí´21.pdf
6. 2103201 - Tilboð um leigu á bílastæðahúsi við Eyraveg
Tillaga frá 114. fundi bæjarráðs, frá 20. maí, liður 12. Tilboð um leigu á bílastæðahúsi við Eyraveg.
Beiðni frá bæjarfulltrúa D-lista um að taka á dagskrá tilboð frá Sigtúni þróunarfélagi um leigu eða kauprétt á bílastæðahúsi við Eyraveg. Áður á dagskrá bæjarráðs 18. mars sl.

Formaður bæjarráðs lagði til að frestað yrði að taka afstöðu til málsins í ljósi þess að skýrsla VSÓ um greiningu á bílastæðaþörf í miðbæ Selfoss barst ekki fyrr en stuttu fyrir fund. Þar af leiðandi hafði bæjarfulltrúum ekki gefist kostur á að kynna sér efni hennar.
Tillögu formanns var felld með 2 atkvæðum gegn 1.

Gunnar Egilsson, D-lista, lagði til að tilboð Sigtúns um leigu eða kauprétt að bílastæðahúsi yrði samþykkt og tilsvarandi viðauki lagður fyrir bæjarstjórn.

Tillaga Gunnars Egilssonar var samþykkt með tveimur atkvæðum gegn atkvæði Eggerts V. Guðmundssonar, S-lista.


Gunnar Egilsson, D-lista, Eggert Valur Guðmundsson, S-lista taka til máls.
Varaforseti Arna Ír Gunnarsdóttir tekur við stjórn fundarins.
Helgi S. Haraldsson, B-lista, Sigurjón V. Guðmundsson, Á-lista, Tómas Ellert Tómasson, M-lista, Ari B. Thorarensen, D-lista og Kjartan Björnsson, D-lista taka til máls.
Forseti bæjarstjórnar tekur við stjórn fundarins.
Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista tekur til máls.

Hlé gert á fundi kl. 18.46
Fundi fram haldið kl. 18.50

Tillagan er borin undir atkvæði og felld á jöfnu. 4 bæjarfulltrúar D-lista greiddu atkvæði með tillögunni og 4 bæjarfulltrúar meirihlutans greiddu atkvæði á móti tillögunni. Tómas Ellert Tómasson, M-lista situr hjá undir afgreiðslu málsins.

Tómas Ellert Tómasson, M-lista leggur fram eftirfarandi bókun:

Ég ákvað að setja mér það sem markmið og stefnu í upphafi þessa kjörtímabils að vinna að heill sveitarfélagsins óháð persónum og leikendum og taka afstöðu í málum byggðu á hlutlægu mati frekar en huglægu, þar sem því væri komið við.

Það hefur verið stefna Selfyssinga síðan löngu fyrir sameiningu sveitarfélagana Selfosskaupstaðar, Sandvíkur-, Eyrarbakka- og Stokkseyrhrepps í Svf. Árborg að Selfoss yrði miðstöð þjónustu og verslunar á Suðurlandi, því hef ég sem uppalinn Selfyssingur ekki gleymt.

Nokkuð ljóst er orðið, að Selfoss er sá byggðarkjarni á landinu sem mest ásókn er í að búa á og að hér hefur íbúafjölgun ætíð verið langt umfram landsmeðaltöl. Nú þegar loksins hyllir undir að stórhuga draumur sveitarstjórnarmanna á Selfossi á sínum tíma verði að veruleika, með lúkningu gerðar Menningarsalar Suðurlands á Selfossi á næstu misserum og að íbúar bæjarins munu brátt verða tvöfalt fleiri en þeir eru í dag, tel ég því rétt að staldra aðeins við og líta til umferðar og samgöngumála bæjarkjarnans Selfoss, fá þá umræðu sem málefnið á skilið af stað og setja strax af stað vinnu til lausnar á því, jafnframt því að halda uppi öflugum þrýstingi á stjórnvöld um að ráðast í byggingu nýrrar Selfossbrúar yfir Ölfusá án tafar.

Ég hef í þessu máli farið ítarlega í gegnum þær reikniaðferðir sem að viðurkenndar eru í reglugerðum, öðrum sveitarfélögum og í öðrum löndum. Mín niðurstaða er sú eftir þá vinnu, að umtalsverð vöntun er á bílastæðum á miðsvæði Selfoss og mun fleiri en þau fimmtíu sem VSÓ telur vanta í sinni greiningu. Þess skal einnig getið í því samhengi að VSÓ telur vanta allt að þrettán hundruð hjólreiðastæði á miðsvæðið.

Upp kom ágreiningur í bæjarráði þann 20. maí síðastliðinn um hvort taka ætti tilboð Sigtúns þróunarfélags, um leigu eða kaup á bílastæðahúsi við Eyraveg á Selfossi, á dagskrá fundarins og fá afgreiðslu þar. Ég var hlynntur því að málið yrði tekið á dagskrá og útskýrði afstöðu mína með eftirfarandi bókun:

„Undirritaður hefur miklar áhyggjur af aukinni bílastæðaþörf og þeim bílastæðavanda sem er í uppsiglingu á Selfossi með tilkomu þeirrar auknu starfsemi sem fyrirhuguð er eða er komin af stað í og við miðbæ Selfoss. Það er mitt mat eftir mikla yfirlegu að sú starfsemi muni auka mjög aðsókn íbúa og gesta á miðbæjarsvæðið. Fyrir utan nýjan miðbæ að þá er sveitarfélagið í samstarfi við ríkið að fullgera menningarsalinn sem mun taka um 350 manns í sæti og því nauðsynlegt að bæta við bílastæðum eingöngu vegna þess verkefnis. Nú hefur sveitarfélaginu boðist að leigja eða kaupa bílastæði af einkaaðila sem mun mæta þeirri þörf að hluta. Það er mín skoðun að ekki sé hægt að hafna þessu tilboði í ljósi framangreinds.“

Þarna var eingöngu um tilboð að ræða, sem nánar yrði útfært í samningi aðila. Þarna var ekki á ferðinni fullunninn leigu-, eða kaupsamningur sem þarfnaðist staðfestingar bæjarráðs og eða bæjarstjórnar.

Nú liggur fyrir fundinum minnisblað frá lögfræðideild sveitarfélagsins. Í niðurstöðuhluta þess er efast um að sú leið sem lagt er upp með í tilboðinu sé fær nema að fara á svig við lög og innkaupareglur sveitarfélagsins.

Í ljósi þess að ég hef haft það fyrir sið að byggja ákvarðanir mínar á hlutlægu mati hvarvetna í mínum störfum sem bæjarfulltrúi, þar sem því verður við komið, byggi ég ákvörðun mína nú einfaldlega á því að ekki er að fullu uppfyllt öll þau skilyrði sem ég hef sjálfur sett mér í mínum störfum sem bæjarfulltrúi um að byggja ákvarðanir mínar á bjargi fremur en sandi. Ég get því ekki litið framhjá því sem kemur fram í niðurstöðuhluta fyrirliggjandi lögfræðiálits, „..um að mjög miklar líkur væru á því að sveitarfélagið teldist með töku framkomins tilboðs vera fara á svig við lög og innkaupareglur sveitarfélagsins“, og sit því hjá við afgreiðslu málsins.
Tómas Ellert Tómasson, M-lista

Eggert Valur Guðmundsson, S-lista leggur fram eftirfarandi bókun f.h. þeirra bæjarfulltrúa meirihlutans sem greiddu atkvæði á móti tillögunni:

Erindi frá Sigtúni þróunarfélagi, varðandi aðkomu sveitarfélagsins að kaupum eða leigu á bílastæðahúsi í miðbæ Selfoss, hefur verið ítarlega skoðað hjá meirihluta bæjarstjórnar.

Í deiliskipulagstillögu framkvæmdaaðila miðbæjarins, sem íbúar í Árborg samþykktu í ágúst 2018, var gert ráð ákveðnum bílastæðafjölda sem ætlað væri að svara þörfum á svæðinu, ekki var neitt rætt um sérstaka aðkomu sveitarfélagsins að þeim á þeim tíma. Með skipulagsbreytingu á framkvæmdasvæði miðbæjarins sem gefin var út 13. janúar 2021 hefur byggingamagn í vesturhlutanum, þ.e. miðbænum, verið aukið um 30% og fjöldi bílastæða aukinn um 23%, ekki var heldur rætt um sérstaka aðkomu sveitarfélagsins að þeim bílastæðum þegar beiðni um skipulagsbreytinguna var lögð fram. Óskir um einhverskonar aðkomu sveitarfélagsins Árborgar, bárust formlega frá framkvæmdaaðilum í febrúar sl.

Eftir ítarlega skoðun undirritaðra bæjarfulltrúa á sl. vikum, þá teljum við ekki forsvaranlegt hjá sveitarfélaginu að taka þátt í svona verkefni með fjárkröfu uppá 350-400 milljónir. Bæjarráð óskaði eftir úttekt verkfræðistofu á bílastæðaþörf sveitarfélagsins á miðsvæði Selfoss og mun sú niðurstaða verða kynnt á næsta fundi bæjarráðs. Ef þörf er á fjölgun bílastæða er eðlilegt að sveitafélagið setji í gang skoðun á því hvernig það verði leyst, til frambúðar.

Efasemdir hafa verið uppi um að sveitarfélaginu sé heimilt að ráðast í svo stóra framkvæmd, eins og umrætt bílastæðahús, án undangengins útboðs. Þessum vafa var strax í febrúar lýst, fyrir framkvæmdaaðilum miðbæjarins. Nú liggur fyrir álit lögmanns Árborgar um að samningsgerð Árborgar um ófullgert bílastæðahús að andvirði um 350 -400 m.kr. yrði ólögmæt nema að undangengnu útboði. Væri bílastæðahúsið hins vegar fullbúið þá gæti Árborg gert samning um kaup eða leigu á húsnæðinu, ef aðrar forsendur leyfðu, svo er hins vegar ekki.

Undirritaðir fulltrúar meirihluta bæjarstjórnar Svf. Árborgar geta því með engu móti stutt tilboð um samning vegna bílastæðahúss miðbæjarins.

Eggert Valur Guðmundsson S-lista

Arna Ír Gunnarsdóttir S-lista

Sigurjón Vídalín Guðmundsson Á-lista.

Helgi Sigurður Haraldsson B-lista.


Gunnar Egilsson, D-lista leggur fram eftirfarandi bókun f.h. bæjarfulltrúa D-lista:

Hvers vegna að gera samning um bílastæðahús?

Það er mikil þörf á bílastæðum miðsvæðis á Selfossi og þetta leysir að hluta til þann vanda. Þörfin snýr m.a. að starfsemi ráðhúss Árborgar, fyrirhugaðri starfsemi í menningarsal og fleiri atriðum sem varða sveitarfélagið beint.

Erindi hefur legið fyrir frá Sigtúni þróunarfélagi um samstarf ef byggt yrði tveggja hæða bílastæðahús í stað einnar hæðar. Við viljum að tekin sé afstaða til erinda sem sveitarfélaginu berast.

Við teljum hagkvæmara að leigja húsið fyrst um sinn, en vegna kaupréttar væri hægt að kaupa það seinna meir.

Verkefnið snýst um að leigja 229 stæði á ca 41,5 millj.kr. á ári

Sveitarfélagið getur stofnað bílastæðasjóð sem myndi sjá um reksturs hússins.

Tekjur bílastæðasjóðs myndu standa undir kostnaði við leigu og annan rekstur.

Heildarleigutekjur á ári miðað við 40% nýtingu væru um 51 millj.kr, en um 63 millj.kr. miðað við 50% nýtingu og 95,5 millj.kr. miðað við 75% nýtingu.

Tækifærið til að byggja 2ja hæða bílastæðahús í stað einnar hæðar býðst núna, ekki síðar. Ekki er hægt að skorast undan því að taka ákvörðun um að leysa þessi bílastæði til langframa. Andúð einstaka bæjarfulltrúa meirihlutans á miðbæjarverkefninu má ekki verða til þess að þetta tækifæri gangi sveitarfélaginu úr greipum.

Bæjarfultrúar D listans

Gunnar Egilsson

Brynhildur Jónsdóttir

Kjartan Björnsson

Ari Björn Thorarensen

7. 2101125 - Viðauki við fjárhagsáætlun 2021
Viðauki nr. 6 - Bílastæðahús við Eyraveg


Forseti leggur til að málið verið tekið af dagskrá.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum. Þrír bæjarfulltrúar D-lista sitja hjá.
8. 1910058 - Tillaga að nýju heimæðargjaldi hitaveitu
Tillaga frá 46. fundi eigna- og veitunefndar, frá 19. maí sl. liður 2. Tillaga að nýju heimæðargjaldi hitaveitu.

Stjórn Selfossveitna samþykkti fyrirliggjandi drög að nýrri gjaldskrá Selfossveitna og lagði til við bæjarstjórn að samþykkja gjaldskrána.

Tómas Ellert Tómasson, M-lista og Ari B. Thorarensen, D-lista taka til máls.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum.
Minnisblað-Tillaga að nýrri gjaldskrá.pdf
Nú gjaldskrá 2021-Tillaga.pdf
9. 1910082 - Húsnæðismál Héraðsskjalasafns Árnessýslu
Tillaga frá 115. fundi bæjarráðs, frá 27. maí, liður 11. Húsnæðismál Héraðsskjalasafns Árnessýslu.

Tillaga af vorfundi HÁ frá 18. maí sl.

Ákveðið var að bjóða verkið út og vann Efla öll gögn fyrir útboðið. Einungis eitt tilboð barst frá Akurhólum ehf. upp á 389 millj.kr. fullbúið húsnæði án húsgagna, afhendingartími í október 2022.

Tillaga framkvæmdastjórnar er að taka tilboði Akurhóla ehf. og er stjórn falið að semja við Akurhóla ehf. að fengnu samþykki aðildarsveitarfélaga Héraðsnefndar um að fara í verkefnið. Tillagan var borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.

Í verkefninu fellst umtalsverð skuldbinding fyrir Sveitarfélagið Árborg og því nauðsynlegt að bæjarstjórn taki það til sérstakrar afgreiðslu.
Undirritaðir fagna því að loks skuli vera komin fram niðurstaða í húsnæðismálum Héraðsskjalasafns Árnesinga.

Það hefur legið fyrir lengi að húsnæðismál safnsins hafa staðið starfseminni fyrir þrifum.

Samstaða sveitarfélaganna í Árnessýslu á vettvangi Héraðsnefndar hefur nú skilað þeim árangri að hafin verður bygging á framtíðarhúsnæði fyrir safnið á Selfossi, sem ætti að uppfylla 1.grein reglugerðar nr. 283/1994 um héraðsskjalasöfn ?að þess skuli gætt að fyrir hendi sé fullnægjandi húsnæði héraðsskjalasafna?. Einnig ætti framkvæmdin að uppfylla ákvæði laga um að skjalageymslur opinberra skjalasafna þurfi að vera þannig úr garði gerðar að tryggt verði örugga varðveislu skjala og það tryggt eins og mögulegt er að lágmarka tjón sem getur orðið á skjölum.

Undirritaðir lögðu til við bæjarstjórn að samþykkt yrði þátttaka Svf Árborgar að uppbyggingu húsnæðis Héraðsskjalasafnsins samkvæmt fyrirliggjandi kostnaðarskiptingu.

Jafnframt lögðu undirritaðir til við bæjarstjórn að samþykktur yrði viðauki við fjárhagsáætlun vegna framkvæmdarinnar gerist þess þörf.

Eggert Valur Guðmundsson S -lista
Tómas Ellert Tómasson M-lista
Gunnar Egilsson, D-lista sat hjá við afgreiðslu málsins.

Lagt var til við bæjarstjórn að samþykkt yrði þátttaka Svf Árborgar að uppbyggingu húsnæðis Héraðsskjalasafnsins samkvæmt fyrirliggjandi kostnaðarskiptingu.


Kjartan Björnsson, D-lista og Ari B. Thorarensen taka til máls.
Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt með 8 atkvæðum gegn 1 mótatkvæði Gunnars Egilssonar, D-lista.
10. 2102357 - Deiliskipulagsbreyting - Þykkvaflöt 3-9
Tillaga frá 70. fundi skipulags- og byggingarnefndar frá 2. júní sl., liður 2. Deiliskipulagsbreyting - Þykkvaflöt 3-9. Tillagan var auglýst frá 14. apríl 2021 með athugasemdafresti til 26. maí 2021. Athugasemdir bárust á auglýsingartíma tillögunnar auk umsagna frá lögboðnum umsagnaraðilum. Farið yfir innkomnar athugasemdir og umsagnir. Skipulags- og byggingarnefnd lagði til við bæjarstjórn að deiliskipulagsbreytingu yrði hafnað m.t.t. innkominna athugasemda.
Sigurjón V. Guðmundsson, Á-lista og Eggert Valur Guðmundsson, S-lista taka til máls.
Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum.
Þykkvaflöt - deiliskipulagsbreyting.pdf
11. 2011149 - Óveruleg breyting á aðalskipulagi - Nauthagi
Tillaga frá 70. fundi skipulags- og byggingarnefndar, frá 2. júní sl., liður 3. Óveruleg breyting á aðalskipulagi - Nauthagi. Aðalskipulagsbreytingin hefur verið kynnt fyrir almenningi í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd lagði til við bæjarstjórn að tillagan yrði samþykkt til auglýsingar og send Skipulagsstofnun til athugunnar. Eftir yfirferð stofnunarinnar yrði tillagan auglýst í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Sigurjón V. Guðmundsson, Á-lista tekur til máls.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum.
Arborg_Adalsk-breyt-Nauthagi-01_Reitur-05.pdf
12. 2001206 - Deiliskipulagstillaga - Móavegur 4
Tillaga frá 70. fundi skipulags- og byggingarnefndar frá 2. júní sl., liður 15. Deiliskipulagstillaga - Móavegur 4.

Deiliskipulagstillaga fyrir Móaveg 4 var auglýst frá 24. febrúar 2021, með athugasemdafresti til og með 7. apríl 2021. Ein athugasemd barst á auglýsingartíma tillögunnar, ásamt umsögnum lögbundinna umsagnaraðila. Á 66. fundi skipulags- og byggingarnefndar var farið yfir innkomnar umsagnir og athugasemdir og skipulagsfulltrúa falið að vinna að breytingum á tillögunni m.t.t þeirra.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir svör og viðbrögð við umsögnum og athugasemdum og felur skipulagsfulltrúa að senda þeim sem gerðu athugasemd svör við þeim.

Skipulags- og byggingarnefnd lagði til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan með óverulegum breytingum eftir auglýsingu, yrði samþykkt og send Skipulagsstofnun til yfirferðar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Sigurjón V. Guðmundsson, Á-lista tekur til máls.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum.
19067DS-Móavegur 4 Self 20210527.pdf
13. 1810115 - Tillaga um endurskoðun aðalskipulags Árborgar 2010-2030
Tillaga frá 70. fundi skipulags- og byggingarnefndar frá 2. júní sl., liður 16. Tillaga um endurskoðun aðalskipulags Árborgar 2010- 2030.

Lagt fram til kynningar drög að heildar endurskoðun aðalskipulags Árborgar 2010-2036.

Skipulags- og bygginganefnd lagði til við bæjarstjórn að tillaga að heildar endurskoðun aðalskipulags yrði kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Sigurjón V. Guðmundsson, Á-lista, Ari B. Thorarensen, D-lista, Eggert Valur Guðmundsson, S-lista, Tómas Ellert Tómasson, M-lista og Kjartan Björnsson, D-lista taka til máls.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með eftirfarandi bókun:

Um leið og bæjarstjórn samþykkir að kynna nýja tillögu að aðalskipulagi Svf. Árborgar fyrir árin 2020-2036, vill hún ítreka að opnir kynningarfundir verða haldnir á komandi hausti fyrir íbúa og aðra hagsmunaaðila. Fundartími verður auglýstur síðar. Einnig vill bæjarstjórn þakka starfshópi, um endurskoðun á gildandi aðalskipulagi, og stafsfólki hans, fyrir vel unnin störf.


2839-111-GRG-001-V05-Greinargerð.pdf
2839-111-ASK-003-V01-Árborg.pdf
2839-111-ASK-004-V01-Selfoss.pdf
2839-111-ASK-005-V01-Eyrabakki.pdf
2839-111-ASK-006-V01-Stokkseyri.pdf
2839-111-GRG-002-V03-Forsendur-umhverfisskýrsla.pdf
14. 21051106 - Deiliskipulag - Móskógar L 193753
Tillaga frá 70. fundi skipulags- og byggingarnefndar, frá 2. júní sl., liður 17. Deiliskipulag - Mógskógar L 193753.

Lögð var fram tillaga að deiliskipulagi fyrir Móskóga, Sveitarfélaginu Árborg. Tillagan tók til bygginga á tveimur lóðum, hvor um sig um 1 ha, sem skipt er úr jörðinni Móskógum. Heimilt yrði að byggja íbúðarhús,
bílskúr og skemmu á hvorri lóð.

Skipulags- og byggingarnefnd lagði til við bæjarstjórn að
deiliskipulagstillaga fyrir Móskóga yrði samþykkt til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum.
8948-001-01-DSK-V02-Mógskógar-DSK.pdf
15. 1803028 - Fyrirspurn um deiliskipulagsbreytingu - Nýibær 8.
Tillaga frá 70. fundi skipulags- og byggingarnefndar frá 2. júní sl., liður 19. Fyrirspurn um deiliskipulagsbreytingu - Nýibær 8.

Deiliskipulagstillaga fyrir Nýjabæ var auglýst frá 24. febrúar 2021, með athugasemdafresti til og með 7. apríl 2021. Engar athugasemdir bárust á auglýsingartíma tillögunnar, en umsagnir bárust frá lögboðnum
umsagnaraðilum. Á 66. fundi skipulags- og byggingarnefndar var farið yfir innkomnar umsagnir og skipulagsfulltrúa falið að vinna að breytingum á
tillögunni m.t.t þeirra.

Skipulags- og byggingarnefnd lagði til við bæjarstjórn að
deiliskipulagstillagan með óverulegum breytingum eftir auglýsingu, yrði samþykkt og send Skipulagsstofnun til yfirferðar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum.
5143-02-Nýibær deiliskipulagsbreyting eftir auglýsingu 18.05.2021.pdf
16. 2102035 - Lántökur 2021 - Selfossveitur
Bæjarstjórn Árborgar samþykkir hér með að veita einfalda ábyrgð vegna lántöku Selfossveitna bs. hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 360.000.000 kr. til 13 ára, í samræmi við skilmála láns til ársins 2034 með föstum verðtryggðum vöxtum eins og þeir verða á þeim tíma er lánið er tekið. Ábyrgð þessi er veitt sbr. heimild í 1.mgr. 69. gr, sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, og veitir sveitarstjórnin lánasjóðnum veð í tekjum sínum til tryggingar þeirri ábyrgð, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sömu laga. Ábyrgðin tekur til greiðslu höfuðstóls láns þessa, ásamt vöxtum og verðbótum auk hvers kyns innheimtukostnaðar. Lánið er tekið til að fjármagna framkvæmdir skv. samþykktri fjárhagsáætlun, sem fellur undir lánshæf verkefni, sbr. 3.gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.

Bæjarstjórn Árborgar skuldbindur hér með sveitarfélagið sem eiganda Selfossveitna bs. til að selja ekki eignarhlut sinn í Selfossveitum bs. til einkaaðila, í heild eða að hluta, fram til þess tíma að lán þetta er að fullu greitt.

Fari svo að Sveitarfélagið Árborg selji eignarhlut í Selfossveitum bs. til annarra opinberra aðila, skuldbindur Sveitarfélagið Árborg sig til þess að tryggja að samhliða yfirtaki nýr eigandi ábyrgð á láninu í hlutfalli við eignarhlut sinn í félaginu.

Jafnframt er Gísla Halldóri Halldórssyni, bæjarstjóra, kt. 151066-5779, veitt fullt og ótakmarkað umboð til að samþykkja f.h. Sveitarfélagsins Árborgar veitingu ofangreindrar ábyrgðar og veðsetningu og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast veitingu ábyrgðar þessarar.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt með 5 atkvæðum. 4 bæjarfulltrúar D-lista sitja hjá.
17. 2102034 - Lántökur 2021
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. að fjárhæð 740.000.000 kr. til 13 ára í samræmi við skilmála láns til ársins 2034 með föstum verðtryggðum vöxtum eins og þeir verða á þeim tíma er lánið er tekið. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Er lánið tekið til að fjármagna framkvæmdir skv. fjárhagsáætlun ársins 2021 sbr. 3.gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.

Jafnframt er Gísla Halldóri Halldórssyni, bæjarstjóra, kt. 151066-5779, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Sveitarfélagsins Árborgar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga ohf. sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt með 5 atkvæðum. 4 bæjarfulltrúar D-lista sitja hjá.
18. 2106112 - Fundartími bæjarráðs og bæjarstjórnar sumar 2021
Forseti lagði til að bæjarstjórn taki sumarleyfi og að fundir bæjarstjórnar liggi niðri í júlí. Næsti fundur bæjarstjórnar verði þann 18. ágúst næstkomandi.

Meðan bæjarstjórn er í sumarleyfi fari bæjarráð með sömu heimildir og bæjarstjórn hefði ella. Bæjarráð tekur ákvarðanir um að víkja frá fundartímum skv. bæjarmálasamþykkt eftir því sem þurfa þykir.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum.
Fundargerðir
19. 2105002F - Eigna- og veitunefnd - 45
45. fundur haldinn 5. maí
Tómas Ellert Tómasson, M-lista tekur til máls undir lið nr. 1 - Tæknilýsing gatnagerða.
20. 2104023F - Skipulags og byggingarnefnd - 67
67. fundur haldinn 5. maí.
21. 2104020F - Frístunda- og menningarnefnd - 23
23. fundur haldinn 10. maí.
22. 2105016F - Bæjarráð - 114
114. fundur haldinn 20. maí.
23. 2105017F - Eigna- og veitunefnd - 46
46. fundur haldinn 19. maí.
24. 2105014F - Fræðslunefnd - 33
33. fundur haldinn 19. maí.
Brynhildur Jónsdóttir, D-lista tekur til máls undir lið nr. 2. - Samtal og starfhópur um leikskólamál.
Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista tekur til máls undir lið nr. 1.- Heimsókn fræðslunefndar í Goðheima.
25. 2105005F - Skipulags og byggingarnefnd - 68
68. fundur haldinn 19. maí.
26. 2105021F - Bæjarráð - 115
115. fundur haldinn 27. maí.
27. 2105024F - Skipulags og byggingarnefnd - 69
69. fundur haldinn 31. maí.
28. 2105027F - Bæjarráð - 116
116. fundur haldinn 3. júní.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 20:15 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica