Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 93

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
08.06.2022 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Sveinn Pálsson byggingafulltrúi, Puja Acharya fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Sölvi Leví Gunnarsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Rúnar Guðmundsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Guðjón Birkir Birkisson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Halldór Ásgeirsson f.h. slökkviliðsstjóra varamaður.
Fundargerð ritaði: Sveinn Pálsson, byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2205378 - Byggðarhorn Búgarður 7 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Jón Þór Jónsson hönnunarstjóri f.h. Kristjáns Arnars Jónssonar sækir um leyfi til að byggja íbúðarhús með samþyggðum bílskúr. Helstu stærðir 211,3 m2 og 794,4 m3.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Hönnuður - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.pdf
Aðaluppdrættir mótt 27.05.2022.pdf
2. 2205375 - Móavegur 6 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Kristinn Ragnarsson hönnunarstjóri f.h. Kaþólsku kirkjunnar á Íslandi sækir um leyfi til að byggja kirkjubyggingu sem samanstendur af kirkjuskipi, safnaðaheimili og íbúðahluta fyrir presta.
Helstu stærðir eru 726,3 m2 og 3.995,9 m3.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Hönnuður - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.pdf
Móavegur 4 A mótt 30.05.2022.pdf
3. 2205379 - Langholt 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Sigurlaug Sigurjónsdóttir hönnunarstjóri f.h. Smáragarðs ehf. sækir um leyfi til að setja rennihurð í stað hefðbundinnar hurðar á suðurhlið húss þar sem verður inngangur fyrir fagmenn.
Stærð húss breytist ekki.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Hönnuður - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.pdf
Landholt 1 A mótt 30.05.2022.pdf
4. 2206006 - Norðurhólar 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Arnar Jónsson f.h. Selfossveitna sækir um byggingarheimld til að setja upp fjarskiptamastur.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 1 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Umsækjandi (eigandi - einstaklingur/ fyrirtæki) - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.pdf
15184-C50.100-A (ID 277926).pdf
5. 2205099 - Háeyrarvellir 56 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Guðmundur Gunnar Guðnason hönnunarstjóri fyrir hönd Sveitarfélagsins Árborgar sækir um leyfi til að koma fyrir færanlegum kennslustofum. Helstu stærðir 519,4 m2 og 1.963,1 m3.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Grenndarkynning hefur farið fram. Engar athugasemdir bárust. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Hönnuður - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.pdf
Háeyrarvellir 56 A mótt 02.06.2022.pdf
6. 2206075 - Suðurbraut 36 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason f.h. Ágústar Freys Bachmann sækir um leyfi til að byggja íbúðarhús. Helstu stærðir 445,5 m2 og 1.743,7 m3.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag nema aðkoma að húsinu. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðkoma verði samkvæmt deiliskipulagi. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Hönnuður - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.pdf
Suðurbraut 36 A mótt 07.06.2022.pdf
7. 2206060 - Víkurheiði 21B Spennistöð - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Sigurður Þ Jakobsson hönnunarstjóri f.h. Rarik ohf sækri um leyfi til að setja upp spennistöð. Helstu stærðir 7,7 m2 og 18,3 m3.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 1 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Hönnuður - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.pdf
Aðaluppdrættir.pdf
8. 2205382 - Sílalækur 4 - Umsókn um samþykki á byggingaráformum
Lilja Böðvarsdóttir tilkynnir um samþykki nágranna að Sílalæk 6 og Urriðalæk 5 vegna áforma um að reisa skjólvegg/girðingu allt að 1,8 m nær lóðarmörkum en 1,8 m.
Byggingarfulltrúi staðfestir móttöku og gerir ekki athugasemdir við áformin enda komi skjólveggur ekki nær lóðarmörkum við götu/gangstétt en sem nemur hæð og og framkvæmdin sé í samræmi við undanþáguákvæði byggingarreglugerðar. Framvísa þarf samþykki annarra nágranna ef skjólveggur/girðing kemur nær lóðarmörkum en sem nemur hæð.
9. 2205383 - Dranghólar 35 - Tilkynning um smáhýsi
Eigendur af Dranghólum 35 tilkynna áform um að reisa smáhýsi á lóðinni.
Fyrir liggur samþykki nágranna að Dranghólum 29 um að smáhýsið verði reist lóðarmörkum en 3 m.

Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við áformin enda sé framkvæmdin í samræmi við undanþáguákvæði byggingarreglugerðar og leiðbeiningar HMS um smáhýsi nr 71-A BR2.
10. 2205384 - Dranghólar 29 - Samþykki á byggingaráformum
Eigendur af Dranghólum 29 tilkynna byggingaráform á smáhýsi og skjólvegg.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við áformin enda sé framkvæmdin í samræmi við undanþáguákvæði byggingarreglugerðar og leiðbeiningar HMS um smáhýsi nr 71-A BR2.
11. 2205395 - Bjarmaland 16 - Tilkynning um smáhýsi
Magnús D. Ingólfsson tilkynnir um uppsetningu smáhýsis. Fyrir liggur samþykki nágranna að Bjarmalandi 14 og Fagralandi 9.
Framvísa þarf samþykki annarra nágranna ef smáhýsið er staðsett nær lóðarmörkum en 3 m.
Byggingarfulltrúi gerir að öðru leyti ekki athugasemdir við áformin enda sé framkvæmdin í samræmi við undanþáguákvæði byggingarreglugerðar og leiðbeiningar HMS um smáhýsi.
12. 2205399 - Birkivellir 24 - Girðing á lóðarmörkum
Anna Sigurlín Hallgrímsdóttir mótmælir meintum áformum nágranna að Engjavegi 63 um uppsetningu 1,8 m hárrar girðingar í lóðarmörkum.
Byggingarfulltrúa falið að senda eiganda Engjavegs 63 bréf þar sem minnt er á skyldur um að framvísa samþykki nágranna fyrir skjólgirðingu á lóðarmörkum.
13. 2206011 - Fosstún 19 - Tilkynning um smáhýsi
Örlygur Jónasson og Rannveig Þórðardóttir tilkynna um uppsetningu 9,1 m2 smáhýsis. Fyrir liggur samþykki nágranna að Fosstúni 17 og Sóltúni 20 vegna staðsetningar nær lóðarmörkum en 3,0 m.
Framvísa þarf samþykki annarra nágranna ef smáhýsið er staðsett nær lóðarmörkum en 3 m.
Byggingarfulltrúi gerir að öðru leyti ekki athugasemdir við áformin enda sé framkvæmdin í samræmi við undanþáguákvæði byggingarreglugerðar og leiðbeiningar HMS um smáhýsi.
Puja víkur af fundi.
14. 2206038 - Vallarland 7 - Grindverk og smáhýsi - Ósk um samþykki sveitarfélags
Puja Acharya óskar eftir samþykki Árbogar til að setja upp girðingu hæð 1,2 m á lóðarmörkum sem liggja að opnu svæði/aðkomustíg og til að setja upp 14 m2 gróðurhús. Fyrir liggur samþykki eigenda Vallarlands 5.
Vísað til samráðsfundar með Mannvirkja- og umhverfissviði.
Puja kemur inn á fundinn.
15. 2206035 - Umsagnarbeiðni - Tímabundið starfsleyfi vgna Unglingalandsmóts UMFÍ
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna umsóknar Ungmennafélags Íslands um tímabundið starfsleyfi vegna útihátíðar á Selfossi 28. til 31. júlí nk.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við að tímabundið starfsleyfi verði gefið út.
Umsókn um starfsleyfi - almennt.pdf
2020_ulm_landsmot_yfirlitskort.pdf
16. 2206061 - Umsagnarbeiðni - Endurnýjun starfsleyfis - AB skálinn ehf
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna umsóknar Friðgeirs Jónssonar f.h. AB skálans ehf. um endurnýjun á starfsleyfi fyrir bifreiða- og vélaverkstæði með sprautun að Gagnheiði 11, Selfossi
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi og samþykktri notkun fasteignarinnar og gerir ekki athugasemdir við endurnýjun starfsleyfis.

17. 2206062 - Umsagnarbeiðni - Endurnýjun starfsleyfis - IB ehf bifreiða- og vélaverkstæði
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna umsóknar Ingimars Baldvinssonar f.h. IB ehf. um endurnýjun á starfsleyfi fyrir bifreiða- og vélaverkstæði að Fossnesi A, Selfossi
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi og samþykktri notkun fasteignarinnar og gerir ekki athugasemdir við endurnýjun starfsleyfis.

18. 2206076 - Vallarland 5 - Ósk um samþykki sveitarfélags - skjólveggur-girðingar
Hilmar Hilmarsson óskar eftir samþykki Árbogar til að setja upp girðingu hæð 1,2 m á lóðarmörkum sem liggja að opnu svæði/aðkomustíg.
Vísað til samráðsfundar með Mannvirkja- og umhverfissviði.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:15 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica