Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarráð - 103

Haldinn í Suðursal, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi,
04.02.2021 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu: Eggert Valur Guðmundsson formaður, S-lista,
Tómas Ellert Tómasson bæjarfulltrúi, M-lista,
Gunnar Egilsson bæjarfulltrúi, D-lista,
Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2101454 - Umsögn - frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum og lögum um tekjustofna sveitarfélaga (lágmarksíbúafjöldi sveitarfélags), 378. mál
Erindi frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 28. janúar, þar sem óskað var eftir umsögn um frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum og lögum um tekjustofna sveitarfélaga (lágmarksíbúafjöldi sveitarfélags), 378. mál.
Lagt fram til kynningar.
Umsögn - frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum og lögum um tekjustofna sveitarfélaga (lágmarksíbúafjöldi sveitarfélags), 378. mál.pdf
2. 2101392 - Umsögn - tillaga til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, 370. mál
Erindi frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 26. janúar, þar sem óskað var eftir umsögn um tillögu til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, 370. mál.

Lagt fram til kynningar.

Lagt fram til kynningar.
Umsögn - tillaga til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, 370. mál.pdf
3. 2101447 - Umsögn - tillaga til þingsályktunar um heimild sveitarfélaga til að innheimta umhverfisgjöld, 121. mál
Erindi frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 28. janúar, þar sem óskað var eftir umsögn um tillögu til þingsályktunar um heimild sveitarfélaga til að innheimta umhverfisgjöld, 121. mál.

Lagt fram til kynningar.

Lagt fram til kynningar.
Umsögn - tillaga til þingsályktunar um heimild sveitarfélaga til að innheimta umhverfisgjöld, 121. mál.pdf
4. 2012124 - Umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um frumvarp til laga um Hálendisþjóðgarð, 369. mál
Umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Umsögn um frv. til laga um Hálendisþjóðgarð, 369. mál.pdf
5. 2101457 - Umsókn um styrk - greiðsla fasteignaskatts á húsnæði Hvítasunnukirkjunnar
Erindi frá Hvítasunnukirkjunni á Selfossi, dags. 11.janúar, þar sem óskað var eftir niðurfellingu á fasteignagjöldum fyrir húsnæði Nytjamarkaðar kirkjunnar.
Bæjarráð telur að starfsemi Nytjamarkaðarins falli að reglum sveitarfélagsins um afslátt af fasteignaskatti vegna félagastarfsemi og vísar því erindinu til úrvinnslu hjá fjármálastjóra í samræmi við gildandi reglur.
Vegna fasteignagjalda .pdf
6. 1810218 - Erindisbréf - Samþykktir hverfisráða Árborgar
Síðast var kjörið í hverfisráð 16. janúar 2019.
Bæjarráð óskar eftir að samþykktirnar verði endurskoðaðar og vísar málinu til bæjarritara til úrvinnslu.
Samþykktir fyrir hverfisráð 15 maí 2019.pdf
7. 2102032 - Athugun á samstarfi um sameiginlega vatnsöflun
Erindi frá Grímsnes- og Grafningshreppi, dags. 27. janúar, um sameiginlega vatnsöflun.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og lýsir yfir vilja sveitarfélagsins til að taka þátt í athugun á grundvelli sameiginlegrar vatnsöflunar.
Sveitarfélagið Árborg.pdf
8. 2102034 - Lántökur 2021
Lántökur 2021.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að veitt verði heimild fyrir fyrir lántökum hjá Lánasjóði Sveitarfélaga í samræmi við tillögur fjármálastjóra.

Gunnar Egilsson, D-lista, situr hjá við afgreiðslu málsins.
Bókun með láni febrúar 2021.pdf
Bókun vegna lán Selfossveitna febrúar 2021.pdf
Fundargerðir
9. 2101001F - Skipulags og byggingarnefnd - 59
59. fundur haldinn 13. janúar.
10. 2101024F - Fræðslunefnd - 29
29. fundur haldinn 27. janúar.
Bókun í bæjarráði um fundargerð Fræðslunefndar

Undirritaðir furða sig á bókun sem fulltrúar sjálfstæðisflokksins í fræðslunefnd lögðu fram á 29. fundi nefndarinnar þann 27. janúar síðastliðinn, þar lýsa fulltrúarnir yfir þungum áhyggjum af þeirri „stöðu sem upp er komin í skólamálum sveitarfélagsins“, stöðu sem alfarið er á ábyrgð flokksfélaga þeirra frá síðasta kjörtímabili, sem hófu undirbúning að byggingu nýs skóla í Björkurstykki að minnsta kosti tveimur árum of seint.

Þessum fulltrúum í fræðslunefnd má einnig vera ljóst að bæjaryfirvöld hafa verið að vinna að uppbyggingu nýs skóla í Björkurstykki, Stekkjaskóla, sleitulaust frá því á vordögum 2018. Til upplýsingar má nefna að á fyrsta fundi bæjarráðs á kjörtímabilinu, þann 21. júní 2018, skipaði bæjarráð nýja byggingarnefnd skólans. Fjórum vikum síðar eða á 4. fundi bæjarráðs þann 19. júlí baðst svo oddviti sjálfstæðisflokksins, undan merkjum að taka þátt í vinnunni fram undan og lýsti þar með yfir fullkomnu áhuga- og ábyrgðarleysi í garð verkefnisins. Áhuga- og ábyrgðarleysi í að taka þátt í þeirri vinnu, að leysa úr langstærstu fjárfestingaskuldinni sem sjálfstæðisflokkurinn skildi eftir sig við lok síðasta kjörtímabils. Á fyrsta fundi fræðslunefndar þann 16. ágúst 2018 var svo til kynningar á fundinum ný skipun byggingarnefndar þar sem tilkynnt var um að oddviti sjálfstæðisflokksins hafði sagt sig frá verkefninu. Fyrsti fundur byggingarnefndar skólans var svo haldinn eftir sumarleyfi starfsmanna þann 20. ágúst 2018.

Þegar ný byggingarnefnd hóf störf, blasti við henni að vinna átti eftir sjö af átta verkþáttum verkefnisins. Einungis einum verkþætti af átta hafði verið lokið í tíð fyrri meirihluta. Hugmyndavinnu var lokið en eftir var gerð kröfulýsingar og þarfagreiningar, forsagnar, að bjóða út hönnun, að ljúka frumhönnun og fullnaðarhönnun, að bjóða út framkvæmdina og framkvæma verkið. Af þessu má sjá að eftir voru sjö verkþættir sem tekur um þrjú til fjögur ár að ljúka, ef mið er tekið af tímalínu framkvæmda grunnskóla af svipaðri stærðargráðu á landinu. Nú eftir tveggja og hálfs árs þrotlausa vinnu starfsmanna og bygginganefndar þá hyllir undir að fyrsti hluti nýbyggingar Stekkjaskóla verði tekinn í gagnið í ágúst 2022, sem verður að teljast vel af sér vikið!

Einnig vekur furðu að í fyrrnefndri bókun sinni vísa fulltrúar sjálfstæðisflokksins í fræðslunefnd að upplýsingar vegna nýs skóla í Björkurstykki komi frá öðrum en skólayfirvöldum, en upplýsa þó ekki í bókun sinni hvaðan meintar upplýsingar til foreldra séu komnar. Eru þær upplýsingar kannski frá þeim sjálfum komnar eða flokksfélögum þeirra? Hafa ber í huga að um svipað leyti og þessi bókun fulltrúa sjálfstæðisflokksins í fræðslunefnd var birt, var sent út ítarlegt bréf frá sviðsstjóra fjölskyldusviðs um hvernig staðið yrði að stofnun og rekstri skólans fyrsta skólaveturinn í nýjum rúmgóðum, færanlegum kennslueiningum, líkt og tíðkast hefur í stærri sveitarfélögum á Suð-vestur horninu á undanförnum árum, þegar að nýjar skólabyggingar eru í undirbúningi og framkvæmd.

Gera verður þær kröfur til fulltrúa í fræðslunefnd að þeir séu meðvitaðir um þá vinnu sem átt hefur sér stað á kjörtímabilinu en svo virðist ekki vera samkvæmt bókun fulltrúa sjálfstæðisflokksins á þessum fundi. Vert er að vekja athygli á því að allar fundargerðir vinnuhópa um uppbyggingu nýs skóla í Björkurstykki koma einmitt til umfjöllunar í fræðslunefnd, og því með ólíkindum að leggja fram bókun með þessum hætti og gera í leiðinni lítið úr störfum starfsmanna sveitarfélagsins sem hafa lagt hart að sér við stofnun og undirbúning nýs grunnskóla í sveitarfélaginu.

Það er von okkar að þau neikvæðu viðhorf sem birtast í þessari bókun fulltrúa sjálfstæðisflokksins í fræðslunefnd endurspegli ekki viðhorf fulltrúa sjálfstæðisflokksins almennt í bæjarstjórn og öðrum nefndum sveitarfélagsins. Það er afar flókið og krefjandi verkefni að koma nýjum skóla á laggirnar. Það er því algert lykilatriði að bæjaryfirvöld sýni samstöðu og styðji við uppbygginguna með ráðum og dáð þannig að sem best megi takast til, börnunum okkar til hagsbóta.

Eggert Valur Guðmundsson, S-lista
Tómas Ellert Tómasson, M-lista
11. 2101015F - Skipulags og byggingarnefnd - 60
60. fundur haldinn 27. janúar.
12. 2101030F - Eigna- og veitunefnd - 38
38. fundur haldinn 27. janúar.
Fundargerðir til kynningar
13. 2002034 - Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2020
893. fundur haldinn 16. desember.
Lagt fram til kynningar.
14. 2101401 - Fundargerðir stjórnar SASS 2021
566. fundur haldinn 15. janúar.
Lagt fram til kynningar.
15. 2102005 - Fundargerðir stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands 2021
299. fundur haldinn 24. janúar.
Lagt fram til kynningar.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica